Fréttablaðið - 22.04.2007, Page 12

Fréttablaðið - 22.04.2007, Page 12
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. „Lifðu lífi þínu með það að leiðar- ljósi að breytni þín gæti orðið að algildum lögum.“ Efnavopn kynnt til sögunnar Eftir miklar umræður og yfirlegu hefur verið ákveðið að skipta út orgelinu í Hafnarfjarðarkirkju og verður gripur- inn kvaddur með kurt og pí á tónleikum í kvöld. Þegar orgel þetta var keypt af stór- hug og myndarskap um miðja síðustu öld var það eitt stærsta orgel landsins og markaði tímamót í þeirri tónlistar- sögu Íslands. Hljóðfærið hefur þjón- að Hafnfirðingum í gleði og sorg við ýmsar kirkjulegar athafnir og á tón- leikum. Guðmundur Sigurðsson, kantor Hafnarfjarðarkirkju, útskýrir að orgel- skiptin haldist í hendur við gagngerar endurbætur á kirkjunni – byggingunni verði lokað í haust en opni síðan aftur fyrir næstu jól. „Orgelið hefur þó svo gott sem runn- ið sitt skeið á enda og það verður tekið niður í sumar. Það þjáist af ýmsum al- varlegum tæknilegum bilunum og margar pípur þess eru einfaldlega ónýt- ar,“ segir Guðmundur og bætir við að færustu orgelsérfræðingar hér heima og erlendis hafi kveðið upp þann dóm að ekki væri forsvaranlegt að gera hljóð- færið upp. Ástæðan er sú, að þó svo org- elsmíði á eftirstríðsárunum hafi vissu- lega borið merki um forna frægð og mikla sögu, var efnahagurinn það slæm- ur á þeim tíma að ógerningur var að fá úrvalshráefni í pípugerð og tæknibún- að. Því er líftími orgela frá þessum tíma almennt styttri en þeirra orgela sem smíðuð eru úr besta mögulega efni. Sjálfur er Guðmundur nýtekinn við kantorstöðunni og hefur því ekki náð að bindast hljóðfærinu jafn sterkum bönd- um og aðrir bæjarbúar. Hann segir að viðeigandi sé að hafnfirskir listamenn séu í öndvegi á kveðjutónleikunum og efnisskráin verður fjölbreytt. Guð- mundur leikur á orgelið og stýrir kór kirkjunnar sem flytur messu eftir Schu- bert í kveðjuskyni. Meðleikari kórsins er Bjarni Þór Jónatansson. Barnakór Hafnarfjarðarkirkju kemur fram undir stjórn Helgu Loftsdóttur og með kórn- um leikur Anna Magnúsdóttir á píanó. Þá koma einnig fram Hafnfirðingarn- ir Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Ás- geir Páll Ágústsson baritónsöngvari. Ókeypis er inn á tónleikana sem hefj- ast kl. 17 og eru Hafnfirðingar og aðrir velunnarar kirkjunnar hvattir til að mæta. Sóknarnefndin leitar annars tilboða í arftaka orgelsins og hefur augastað á rómantísku hljóðfæri í þýskum stíl svo haldið sé í horfinu í Hafnarfirðinum. Elskulegur eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir, Gísli Sigurður Guðjónsson prentari, Ofanleiti 17, lést á heimili sínu fimmtudaginn 12. apríl. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. apríl kl. 13.00. Auður Fanney Jóhannesdóttir Reynir Sigurður Gíslason Sigríður Edda Hafberg Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, Unnur Runólfsdóttir Kambaseli 85, sem lést fimmtudaginn 12. apríl sl., verður jarðsungin frá Seljakirkju mánudaginn 23. apríl kl. 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjartavernd. Birna Valgeirsdóttir Rúnar G. Guðjónsson Víðir Valgeirsson Guðrún Valgeirsdóttir Ásgeir Sigurðsson Auður Valgeirsdóttir Sigurgeir Þráinn Jónsson Stefanía Runólfsdóttir Sigurður Runólfsson Aðalheiður Runólfsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Gunnars Þ. Júlíussonar Holtsgötu 13, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Unnur Guðmundsdóttir Guðmundur Gunnarsson Guðrún Arndal K. Helgi Gunnarsson Sigrún Guðlaug Ragnarsdóttir Björn V. Gunnarsson Guðrún Kr. Óladóttir Margrét Gunnarsdóttir Sigurður V. Jónsson Helga Gunnarsdóttir Jón Júlíusson Gunnar J. Gunnarsson Ágústa Halldórsdóttir Hulda Gunnarsdóttir Ísak J. Matthíasson Unnur B. Gunnarsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson afabörn og langafabörn. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Agnesar Auðunsdóttur Guðni Auðunsson Alda Þorsteinsdóttir Sonja Hilmarsdóttir Ómar Kristmannsson Erna Hilmarsdóttir Kristinn Stefánsson Auðunn Hilmarsson Guðbjörg Jóhanna Snorradóttir Guðlaugur Hilmarsson Guðbjörg Haraldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ingvi Brynjar Jakobsson fyrrv. lögregluvarðstjóri á Keflavíkurflugvelli, sem lést þriðjudaginn 17. apríl sl., verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 24. apríl kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Ragnheiður Elín Jónsdóttir Eva Bryndís Ingvadóttir Þórunn Elísabet Ingvadóttir Eyrún Jóna Ingvadóttir Aðalheiður Ingvadóttir Anna Ingvadóttir Erla Ingvadóttir Brynjar Ragnar Ingvason tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Alúðarþakkir færum við þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Einars Inga Siggeirssonar dr. rer. hort. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á FB4 á Landspítala Fossvogi fyrir frábæra umönnun. Kristín Friðriksdóttir Gylfi Magnús Einarsson Katrín Jónína Björgvinsdóttir Valgarð Einarsson Linda María Stefánsdóttir Margrét Ástrún Einarsdóttir Þórir Kristinsson barnabörn og barnabarnabarn. FÆDDUST ÞENNAN DAG

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.