Fréttablaðið - 22.04.2007, Síða 20

Fréttablaðið - 22.04.2007, Síða 20
M óðir Svanhild- ar veit hvaða dag hún var getin og móðir hennar Diddu veit hvar hún var stödd. Sjálfar eru þær báðar tveggja barna mæður. Elsta barn beggja er tíu árum eldra en það yngsta og á milli þeirra sjálfra eru svo tíu ár: Svanildur er fædd árið 1974 og Didda árið 1964. Skemmti- legar tilviljanir eða hvað, sem þó hafa ekki dugað til að láta leiðir þeirra liggja saman áður? Svanhildur: Við höfum sést í mý- flugumynd á Eddunni eitt sinn þegar ég var að veita verðlaun og Didda að taka við einum. Ann- ars er Didda bara eins og Björg- vin Halldórsson, hún hefur alltaf verið til. Didda: Ég tengi Svanhildi að sjálf- sögðu við sjónvarpið og get því ekki alveg staðsett hana einhvers staðar á upphafsreit. Svanhildur: Þú hefur sem sagt ekki vaknað klukkan sex til að hlusta á mig í morgunútvarpinu? Didda: Kannski ég hafi einhvern tímann náð því, en mig minnti endilega að þú værir ljóshærð? Svanhildur: Jú, ég var það. Ég datt í strípupakkann í nokkur ár eins og flestar íslenskar konur, þar til í fyrra þegar ég varð ólétt. Þá áttaði ég mig á því að ég myndi svo inni- lega vilja gera eitthvað allt annað við þessa fimm klukkutíma sem ég sat með álpappírinn í hárinu á hárgreiðslustofu. Talandi um breytingar. Nokkrum klukkutímum áður en Svanhildur og Didda settust niður á Vínbarinn logaði miðborgin og nú lítur allt út fyrir að þarna hafi Reykvíkingar misst gömul og merk hús. Eru þær á brunabömmer? Svanhildur: Maður hugsar út í hvaða starfsemi er búin að vera þarna. Sjoppa, kebabstaður og alls konar missorglegir skemmtistað- ir. Þetta eru ein elstu timburhús landsins, Trampe greifi bjó þarna og meira til þannig að maður hugsar með sjálfum sér: Ef mönn- um var svona annt um þessi hús – af hverju var þá ekki hugsað al- mennilega um þau og af hverju voru þau ekki lögð undir einhverja starfsemi sem auðveldara var að fylgjast með? Að vera með stand- andi sjoppurekstur þarna, heita potta og sígarettur á skemmtistað er auðvitað bara fáránlegt. Didda: Auðvitað átti þetta horn að vera flottara, öllu betur viðhaldið og það er búið að vera erfitt fyrir veitingamenn að reka þarna veit- ingahús og halda þessum gömlu spýtum við í leiðinni. Ég er alveg viss um að eigendur hefðu alveg verið til í að selja ríkinu þessar eignir ef ríkið hefði haft almenni- legan áhuga á þessu. Þetta er eitt af þessum hornum sem öllum þykir vænt um: Allir hafa kysst þarna á 17. júní. Svanhildur: Og óteljandi héraðs- dómarar hlaupið yfir torgið og fengið sér pylsu. Bruninn býður upp á ákveðna endurnýjun þarna sem hefði kannski annars ekki orðið. En ég er mikið fyrir gamla hluti og mun sakna bygginganna. Ég er íhaldssöm og helst vildi ég fá gömlu bláu og hvítu mjólkur- fernurnar aftur með Auðhumlu framan á. Næst skal vikið að umræðuefni sem Svanhildur tekur strax fram að hún nenni varla að ræða. Hana langi helst til að gubba þegar hún heyri þá umræðu. Það er hin sívin- sæla spurning um markaðssetn- ingu á íslenskum konum. Við höld- um því fram að íslenskar konur séu gáfaðar og vel menntaðar en oftar en ekki eru þær markaðssett- ar sem sætar og lauslátar hórur. Finna þær fyrir þessari markaðs- setningu? Didda: Ég skil Svanhildi svo sem vel. En mín skoðun er sú að þær eyjar sem fá flestu heimsóknirn- ar eru þær sem búa yfir bestu goð- sögnunum. Þannig að hugmyndin um sprækar stelpur hafa alltaf laðað skip að landi. Á Kúbu segj- ast þeir eiga sætustu stelpurnar og gröðustu mennina. Á Íslandi eru það sætustu stelpurnar og sterk- ustu mennirnir. Og á meðan fólk kaupir miða til að koma og tékka á þessu; þá erum við ekki að tapa, þó að þetta sé ekki einu sinni satt. Það þarf svo aldrei neitt að fjöl- yrða um það að menn eru miklu fjölþreifnari en konur og vilja því fremur koma í svona ferðir. Svanhildur: Er það? Ég hef séð konur taka svoleiðis atriði að maður hugsar með sér: Ó, já, svona er líka hægt að gera. Og verður svo á einhvern undarlegan hátt samt glaður í hjarta sínu því þarna sér maður líklega jafnrétt- ið í verki. Didda: Ég verð samt meira vör við lauslæti hjá karlmönnum. Þess vegna ef auglýsa skal eyju, þá þýðir ekkert að auglýsa að hér vaði allt uppi í lauslátum karlmönnum. Og þetta er líka gömul saga og byggist allt á gömlum merg. Skipin hér á öldum áður voru ekki full af kven- fólki að leita að hressum gaurum. Þar var að finna karlmenn í leit að höfnum fullum af píum. Svanhildur: Ég held þetta hafi byrjað þannig að einhver erlendur lúðablaðamaður hafi komið hing- að til lands, einhver kona aumkvað sig yfir hann og hann skrifað um það. Hugsið ykkur líka hvað það er ósanngjarnt að tala til dæmis um ástandið. Spáið í það hvernig íslenskir karlmenn hefðu látið ef vel baðaðar, útlenskar konur í flottum einkennisbúningum hefðu komið hingað á þessum tíma. Og jafnvel síðar. Hver man ekki eftir látunum út af ítölsku sjóliðunum? Það hefur bara ekkert verið í boði að hingað kæmu full herskip af ítölskum gellum. Didda: Það má kannski ráða bót á því. En ég held að það sé líka svo- lítið á okkar eigin ábyrgð að snúa þessu þannig að markaðssetningin sé orðuð öðruvísi. Það að fólkið viti að hér séu sjálfstæðar konur er jafngóð markaðssetning. Svanhildur: Það búa rúmlega 6 milljarðar manna í heiminum. Ég held að lítill hluti þess fólks sé raunverulega eitthvað að spá í því hvort íslenskar konur hafi einhvern tímann verið markaðs- settar. Ekki frekar en fólk er að sniðganga íslenskar vörur vegna hvalveiða eða að Ísland sé orðið skotmark al-Kaída. Við þurfum bara að fara að finna eitthvað al- mennilegt og nýtt til að nota sem gulrót. Ekki bara fallegt kvenfólk, hvali og sterka menn. Didda: Já, við getum líka notað að við eigum líka feita karlmenn og ... Fyrst við erum að ræða um hvernig Íslendingar eru hér í boði. Hvernig kemur Íslendingurinn ykkur sjálf- um fyrir sjónir? Didda: Hann er aleinn inni í bíl. Einhvers staðar pirraður í um- ferð. Svanhildur: Já. Það var allavega ég í dag. Að reyna að komast suður í Hafnarfjörð. Didda: Ég geng mikið og ég sé því vel hvað það eru fáir sem fjöl- menna í bílana. Og það er merki- legt en það er ekki ein einasta manneskja sem býður manni far. Hér áður fyrr komst maður varla milli gatna án þess að ein- hver stoppaði og spyrði maður hvert maður væri að fara. Þannig að já, við erum ein og afskipt. Íslendingurinn fyrir mér er líka svo sem mjög merkilegt fyrir- bæri: Við erum hreinlega alls stað- ar. Það stoppar okkur ekkert. Svanhildur: Einmitt! Íslendingur- inn er alltaf einhvern veginn á rétt- um tíma og á réttum stað. Þú finnur pottþétt Íslending í ábyrgðarstöðu í stórfyrirtæki í Bandaríkjunum og hann er svo auðvitað á staðnum þegar einhver brjálæðingur geng- ur um og skýtur fólk vestanhafs. Þetta er bara alveg ótrúlegt því við erum ekki nema 300.000. Við erum ekki dvergríki – við erum örríki. Örríkið Ísland er samt með allt til alls. Föstur, detox, lýtaaðgerðir og stólpípur – að vísu í Póllandi. Hvernig kemur þessi útlitsdýrkun þeim fyrir sjónir? Svanhildur: Ég held ég sé ekki rétta manneskjan til að spyrja um þetta (segir Svanhildur meðan hún gæðir sér á sykurmola). Didda: Ég hef bara eina skoðun á þessu. Ég held að ef fólk hefur svona mikinn tíma til að pæla í útlitinu, að þá hafi það alls ekki nægileg vandamál í lífinu til að glíma við og bara alls ekki nóg að gera. Mér er svo sem alveg sama, ég þarf bara að passa mig á elli- Ókunnugur maður hefur undið sér upp að Diddu Jónsdóttur og spurt hana af hverju hún greiði sér ekki. Svanhildur Hólm Valsdóttir hefur verið spurð af hverju hún hafi verið í svona ljótum jakka í sjónvarpinu í gær. Júlía Margrét Alexandersdóttir dró þær stöllur á rökstóla og þær segja Íslendinginn eins og góðan fréttaritara: Ætíð staddan á réttum stað. Íslendingurinn er aleinn og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.