Fréttablaðið - 22.04.2007, Page 27

Fréttablaðið - 22.04.2007, Page 27
HRAFNISTA TM Software er alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki með skrifstofur í 4 löndum og um 260 starfsmenn. TM Software er í fremstu röð við þróun hugbúnaðar, ráðgjöf og rekstur upplýsingakerfa og býður fjölbreyttar lausnir í nánu samstarfi við helstu upplýsingatæknifyrirtæki heims. TM Software hefur undanfarin sex ár hlotið viðurkenningu sem eitt af 500 framsæknustu fyrirtækjum Evrópu. Netsérfræðingar Rekstur og umsjón með netkerfum. Hönnun og uppsetning á nýjum netkerfum. Þátttaka í ráðgjöf til viðskiptavina. Samskipti við fjarskiptabirgja og aðra samstarfsaðila. Spennandi og krefjandi verkefni eru í boði. Hæfnis- og menntunarkröfur: • Háskólamenntun á sviði tölvunar-, verk- eða tæknifræði æskileg. Önnur tæknimenntun auk starfsreynslu kemur vel til álita • Samstarfshæfni ásamt sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum • Starfsreynsla af rekstri netkerfa er kostur • Þekking á Cisco-búnaði, CheckPoint og PIX-eldveggjum er kostur • Cisco-gráður eru kostur Tæknimenn/sérfræð- ingar í útstöðvarekstri Starfið felst í fjölbreyttum verkefnum við daglegt eftirlit og umsjón með tölvukerfum fyrir mörg af leiðandi og framsæknustu fyrirtæki landsins. Unnið er með nýjustu tækni á hverjum tíma. Þetta er draumastarfið fyrir þá sem hafa gaman af tækni, fjölbreyttum mannlegum samskiptum og lifandi starfs- umhverfi. Lögð er áhersla á að einstaklingar geti vaxið og dafnað í starfi. Hæfnis- og menntunarkröfur: • Góð þekking á Windows-stýrikerfum er skilyrði • Mikill áhugi á tæknimálum og tölvugrúski ásamt lipurð í samskiptum • Æskileg menntun er t.d. tölvudeild Iðnskólans, rafeindavirkjun eða önnur menntun á tæknisviði • Starfsreynsla er æskileg en efnilegir einstaklingar með t.d. MCSA, MCSE eða MCP gráður koma einnig til greina Sérfræðingar í þjónustumiðstöð Starfið felst í úrvinnslu tæknilegra fyrirspurna og verkbeiðna, lausn þeirra og skráningu. Spennandi starf fyrir þá sem hafa gaman af tækni, fjölbreyttum mannlegum samskiptum og lifandi starfsumhverfi. Lögð er áhersla á góða vinnuaðstöðu og að einstaklingar geti vaxið og dafnað í starfi. Hæfnis- og menntunarkröfur: • Góð alhliða þekking á upplýsingatækni Þekking á Windows-stýrikerfum er nauðsynleg • Mikill áhugi á tæknimálum og tölvugrúski ásamt lipurð í samskiptum • Menntun á tæknisviði er æskileg Starfsreynsla er æskileg en efnilegir einstaklingar með góðan tölvubakgrunn koma einnig til greina. Microsoft-gráður eru kostur Gætt ver›ur fyllsta trúna›ar var›andi allar umsóknir og fyrirspurnir. Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon, starfsmannastjóri. Umsóknir með ferilskrá sendist til starfsmannastjóra torfi@t.is, fyrir 6. maí nk. P IP A R • S ÍA • 7 0 7 3 5 Holtasmári 1 | 201 Kópavogur | Sími 545 3000 | Fax 545 3001 | www.tm-software.com Við leitum að þér! Vegna vaxandi umsvifa og fjölbreyttra framtíðarverkefna fyrir viðskiptavini okkar Kerfisstjóri Starfið felst í þróun, uppbyggingu og daglegum rekstri tækniumhverfis TM Software og viðskiptavina þess. Spennandi og krefjandi verkefni í boði þar sem unnið er með nýjustu tækni á hverjum tíma. Lögð er áhersla á góða vinnuaðstöðu og faglegt umhverfi. Hæfnis- og menntunarkröfur: • Háskólamenntun á sviði tölvunar-, verk eða tæknifræði er æskileg • Önnur tæknimenntun auk starfsreynslu kemur vel til álita • Þekking á Active Directory, Windows Server 2000 og 2003 er nauðsynleg. MCSA eða MCSE gráður eru kostur Við bjóðum og leggjum áherslu á: • Frábæran starfsanda og liðsheild • Góða starfsaðstöðu • Sveigjanlegan og fjölskylduvænan vinnutíma • Virka endurmenntun í starfi • Margvísleg tækifæri til starfsþróunar • Gott mötuneyti • Laun og önnur starfskjör eftir samkomulagi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.