Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.04.2007, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 22.04.2007, Qupperneq 30
Snæbjörn Ragnarsson tónlistamaður var sendur í sveit tólf ára gamall. Síðan þá hefur hann átt mikilli lukku að fagna, enda fann hann tugi fjögurra laufa smára úti á túni. Snæbjörn er einn af mönn- unum á bak við Stund- ina okkar, en handtökin þar eru töluvert öðruvísi en þau sem hann iðkaði í sínu fyrsta starfi. „Ég var sendur í sveit að Reykjum í Vestur-Húnavatnssýslu til systur mömmu,“ segir Snæbjörn. „Það var fyrsta alvöru vinnan mín. Þrír mánuðir í heyskap, sauð- burði og öllu sem nöfnum tjáir að nefna. Ég var tólf ára gamall enda er maður talinn fullorðinn í sveitinni um leið og maður getur staðið í lappirnar.“ Eins og tólf ára strák- um er tamt var mjói veg- urinn ekki alltaf fetaður og ýmislegt gert sem ekki getur talist gáfulegt, í það minnsta eftir á að hyggja. „Við frændurnir vorum settir í að mála traktorana á bænum og honum fannst voða sniðugt að mála nefið á mér með rauðum lit,“ segir Snæbjörn, sem reyndar fannst uppátæk- ið sömuleiðis mjög snið- ugt. Það átti eftir að breyt- ast. „Þetta var eitthvert svakalegt dráttarvélalakk sem ég náði ekki af. Það var sama hvað við reynd- um, terpentína og hvað eina. Liturinn fór ekki af og ég var með dráttarvéla- rautt nef í mánuð.“ Annað og öllu happa- drjúgara atvik átti sér stað þegar Snæbjörn og frændi hans fundu þúfu sem var full af fjögurra laufa smárum. „Já, ekki bara það heldur fimm, sex og sjö laufa smárum líka. Ætli þetta hafi ekki verið fjörutíu til fimmtíu stykki,“ segir Snæbjörn. „Enda hefur þvílík ríf- andi lukka fylgt mér síðan þá að annað eins þekk- ist varla,“ bætir hann við hlæjandi. Dráttarvélarautt nef í mánuð Atvinnuleysi var 1,3 pró- sent í mars. Atvinnuleysi í mars var jafn hátt og í febrúar, eða 1,3 pró- sent, samkvæmt upplýsing- um frá Vinnumálastofnun. Þetta er þó örlítið minna en á sama tíma í fyrra. Er talið að atvinnuástand muni jafnvel skána á næst- unni þar sem lausum störf- um fjölgaði talsvert í mars, um 111. Þó hafa borist frétt- ir af erfiðleikum sums stað- ar á landsbyggðinni. Á vef Alþýðusambands Íslands www.asi.is kemur fram að á Bakkafirði hafi fjórum síð- ustu starfsmönnum í salt- fiskverkuninni Gunnólfi verið sagt upp störfum og á Flateyri hafi níu konum í fiskvinnslunni Kambi verið sagt upp störfum í apríl. Atvinnulausum á land- inu öllu fækkaði í mars um 103 frá fyrri mánuði. Á höfuðborgarsvæðinu fækk- aði atvinnulausum um 29 og á landsbyggðinni um 74. Síðastliðna 12 mánuði dró úr fjölda atvinnulausra alls staðar nema á Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi. Miðað við tölur Vinnumála- stofnunar virðist atvinnu- ástandið núna vera einna verst á Suðurnesjum. Skánar með vorinu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.