Fréttablaðið - 22.04.2007, Side 77

Fréttablaðið - 22.04.2007, Side 77
heimilinu að sitja á mér og stríða þessu hrukkulausa fólki ekki of mikið. En það er skrítin lífsbar- átta að hafa áhyggjur af því einu hvernig maður lítur út. Svanhildur: Svolítið góður punktur. En ég held samt að við séum ekkert sérstaklega upptek- in af útliti okkar í dag. Við topp- um aldrei tímann í kringum miðj- an níunda áratuginn þegar Hófi varð ungfrú heimur. Þá varstu bara ekki neitt neitt nema vera í álfafosspeysu, með aflitað hár og ljósabrúnn. Konurnar bryðjandi megrunarkaramellur og á hvít- vínskúrnum. Það er viss heims- ósómi að halda að þetta sé eitt- hvað verra í dag. Nú vinnur þú Didda í sorpinu. Ný- lega var grein í Fréttablaðinu þar sem fólk í sorphirðustörfum sagð- ist finna fyrir fordómum hjá íbúum borgarinnar í sinn garð. Finnur þú fyrir slíkum fordómum? Og Svan- hildur, nú ert þú á skjánum hvert kvöld? Finnur þú fyrir því að fólki finnist það þekkja þig – taki jafn- vel út hvað þú ert með í innkaupa- kerrunni í Hapkaupum? Didda: Á meðan ég er í vinnugall- anum, í aðvörunarlitunum, þá sér fólk oft ekki að maður er mann- eskja. Ég hef til dæmis lent í ein- hverri kellingu sem hvæsti á mig út um gluggann, segja mér til hvernig átti að vinna vinnuna mína og ég bað hana vinsamleg- ast um að sýna mér kurteisi, ég væri líka manneskja. Hún svaraði því til að hún vissi nú ekkert um það! En auðvitað finna margar at- vinnustéttir fyrir fordómum. Fjöl- miðlafólk verður vart við það að einhverjir segja að allir fjölmiðla- menn séu svona og svona. Svanhildur: Ég finn nú lítið fyrir því að vera fræga kellingin í búð- inni. Ég held líka að ég komi mér sjaldan í þær aðstæður að það reyni á þetta og fer til dæmis lítið út á lífið. Það er frekar að það sé kallað í Loga enda skagar hann jú upp úr mannfjöldanum eins há- vaxinn og hann er. Svo er skrítið að eftir klukkan 2 að nóttu til er eins og eitthvað gerist. Fram að því erum við frekar prúð og allir í góðum fíling en svo verður allt í einu allt stjörnuvitlaust og fólk verður stjarnfræðilega ölvað. En þó að fólk komi stundum og þurfi að ræða eitthvað við mann þá er það ekkert sérstakt vandamál, maður lendir sjaldnast í því að fólk sé dónalegt. Svo eru auðvit- að allir frægir á Íslandi og engum finnst í rauninni þessi eða hinn neitt merkilegri. Didda: Frægasti Íslendingurinn er sá sem enginn veit hver er. Svanhildur: En það er kannski eitt sem maður finnur fyrir þegar maður er alltaf á skjánum, en það er það hvað útlit manns verður ein- hvern veginn aðalatriðið. Ef maður skiptir um háralit eða greiðslu eða mætir í nýjum jakka er það frekar rætt en það sem maður er að segja. Fullt af fólki sem maður hittir, sem maður þekkir eða þekkir ekki telur sig hafa fullkominn rétt á því að kommentera á það að jakkinn sem maður hafi verið í gær hafi verið hrikalega ljótur eða að hár- liturinn klæði mann ekki. Eins og það komi þeim við hvernig ég lít út bara af því að ég er á skjánum. Didda: Ó, já. Ég hef líka oft lent í þessu og eitt sinn labbaði maður að mér sem sagði: Ég veit hver þú ert – geturðu ekki greitt þér? Eins og hann gæti ráðið hárgreiðslunni minni af því einu að hann vissi hver ég er. Svanhildur: Þetta er bara eins og að labba að ókunnugri konu í röð- inni í Melabúðinni og segja henni að þessi háralitur sé bara engan veginn að gera sig. En auðvitað er þetta líka einhver tegund af um- hyggju, fólk er almennt ekki að segja þetta til að vera andstyggi- legt. Að lokum. Ef þið fenguð töfra- sprotann og mættuð breyta ein- hverju einu í íslensku samfélagi? Hverju mynduð þið breyta? Didda: Fleiri í bíl. Allir á gangi og talandi saman. Hestvagnar og lömb í Hlíðunum til að taka á móti. Svanhildur: Húmorsleysi er ákveð- ið vandamál og vilji til að skilja allt á versta veg. Ég myndi vilja að fólk bæri virðingu fyrir skoðunum annarra, hugsaði áður en það talar eða skrifar, og hefði líka húmor fyrir sjálfu sér og umhverfinu. Við erum allt of viðkvæm, fljót- fær og dómhörð. pirraður

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.