Fréttablaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 78
H vað ætla ég að gera við peninginn? Ég er nú þannig, og ég hef náð ákveð- inni tækni í því hvernig búa má til peninga, að ég mun umsvifalaust fá fyrirtæki og samtök til að leggja fram mótframlög gegn því að ég styrki tiltekin verkefni,“ segir Orri Vigfússon, athafnamaður og sér- legur verndari villtra laxastofna í Norður-Atlantshafi. Undanfarin átján ár hefur Orri helgað líf sitt baráttunni fyrir verndun og viðgangi villts lax á norðurslóðum. Aðferðafræði hans í umhverfisvernd byggir á kapítal- ískum hugmyndum. Hann kaupir upp veiðiréttindi og ræðst þannig gegn laxveiðum í net á hafi úti. En í fullri sátt við sjómenn – hans markmið er að allir hagnist. Í gegn- um tíðina hafa Orra hlotnast ýmsar viðurkenningar fyrir þessa viða- miklu baráttu sína. En þó líklega enga meiri en þá að vera nú meðal sex sem fá nú verðlaun og viður- kenningu frá hinum virtu Goldman- umhverfisverðlaununum – þeim stærstu sinnar tegundar á heims- vísu. Kandídatar eru valdir af ráði sem í sitja fulltrúar ýmissa um- hverfisverndarsamtaka víðs vegar að úr heiminum. Í rökstuðningi með verðlaununum eru hvergi spöruð stóru orðin og er Orra meðal ann- ars þakkað öðrum mönnum fremur að villti laxinn á norðurslóð er ekki útdauður. Hann er annar Norður- landabúinn sem hreppir verðlaunin frá upphafi. Í hlut Orra koma um tíu milljónir ís- lenskra króna og þær ætlar hann að margfalda. Og velta áfram til góðra verka. „Meðal helstu samstarfsmanna okkar eru The National and Wildlife Foundation. Þegar ég kom til þeirra fyrst og bað um 250 þúsund dollara til verkefnisins sögðu þeir gott og vel. En þú verður fyrst að safna 500 þúsund dollurum. Það tók mig ár en þá átti ég 750 þúsund dollara.“ Eins og kapítalíski frasinn segir: „It takes money to make money.“ Ýmis verkefni blasa við; kaupa upp net í Skotlandi, kaupa upp net í Wales, leigja upp net í Þrándheimi í Noregi og setja upp dagskrá í Rúss- landi fyrir Kólaskagann. Orri segir þetta góða hugmynd, að byggja á „matching funds“ eða sjóðum sem miða að mótframlögum. „Svona gerði ég þetta á Græn- landi. Stofnaði sjóð þar. Græn- lensku sjómennirnir hættu að veiða lax en til að stunda línuveið- ar til dæmis á þorski og ufsa þurftu þeir línubeitningarvél sem kost- ar 200 þúsund danskar. Ég sagði við þá: Finnið þið 60 þúsund og ég skal koma með mótframlag upp á 40 þúsund. Svo getur sveitarfélagið lagt fram 100 þúsund og þá er beitn- ingarvélin komin. Mér finnst þetta sniðug aðferðafræði. Og hef hug á að koma á fót slíkum sjóði á Íslandi. Sem gæti til dæmis beitt sér fyrir endurheimt votlendis. Ég fór þó í umhverfisráðuneytið og lýsti þessu fyrir Sigríði Önnu [Þórðardóttur þá umhverfisráðherra] en ég held hún hafi ekki skilið þetta. Ég er kannski svona lélegur sölumaður?“ Ætli það. Allt frá árinu 1989 hafa samtök Orra, North Atlantic Salmon Fund (NASF), safnað 2.313.850.000 krónum, varla að menn kunni að nefna slíkar tölur, til að kaupa upp veiðiréttindi af sjómönnum sem veiða lax í net sín víðs vegar á norðurhveli jarðar. Orri segist alla tíð hafa verið áhuga- samur um laxinn. Hann var á sínum tíma kjörinn formaður Laxárfélags- ins við Laxá í Aðaldal og er stoltur af því. Hann er þriðji formaður fé- lagsins á 67 árum og er enn. Félagið hefur haft ána á leigu frá 1940. „Við sáum laxinn minnka með hverju árinu, fækka, og þegar við vorum að undirbúa fimmtíu ára af- mæli félagsins í september 1989 og veltum við því fyrir okkur hvað ætti að gera til að fagna því sagðist ég vilja stoppa allar veiðar á laxi í úthafinu. Ég hélt að það myndi taka tvö til þrjú ár. En ekki óraði mig fyrir því að þetta yrði tuttugu ára fullt starf.“ Helstu fjölmiðlar hins vestræna heims hafa fjallað um þetta átak Orra. Hann er formaður í stjórn margra veiðiklúbba um heim allan, í tengslum við sjóði sem miða að verndun vatnasvæða víða um Evr- ópu, í Rússlandi, Kanada... „Já, hingað og þangað. Við erum orðnir „brand“ í tengslum við laxavernd. Við söfnum peningum með ýmsum hætti, biðjum áreigendur og stang- veiðimenn sem hafa áhuga á þessu verkefni um liðsinni, höldum laxa- veislur, hátíðir þar sem við erum með eitthvað til dýrðar laxinum og fáum helst ríkt fólk til að koma og leggja eitthvað af mörkum. Höld- um gjarnan uppboð. Bjóðum þá upp veiði sem annars er erfitt að kom- ast í, stöng eða einhverja rauðvíns- flösku. Ein flaska fór til að mynda á eina og hálfa milljón í vetur. Var reyndar Romanée-Conti frá 1971. Nei, ég má ekki segja hver keypti. Já, gerum sitthvað skemmtilegt til að styðja þetta.“ Þó fjáröflunaraðferðir séu af ýmsu tagi og skemmtilegar er það ekki síst aðferðafræðin sem athygli vekur. Hugmyndafræði sem Orri kallar grænan kapítalisma. Hann notar efnahagslausnir til að takast á við vandamál sem snúa að lífríki laxins. „Við erum með allskonar verk- efni sem varða það markmið okkar að endurreisa villta laxastofna í sögulega gnægð. Og það gerum við fyrst og fremst með því að upp- ræta allar veiðar í hafinu þar sem þær eru stundaðar úr óaðgreindum stofnum. Vísindaleg rök eru gegn því að veiða lax í net í sjó,“ segir Orri. Sem leggur á það áherslu að upptaka neta í hafi sé í samlyndi við sjómenn. Sjómönnum er greitt úr sérstök- um sjóði sem stofnað er til í við- komandi landi. Úr honum er veitt til annarra verka sem veiðimenn geta snúið sér að. Þetta er því félagslegt verkefni öðrum þræði. „Ekki að- eins er þetta fyrir stangveiðimenn sem fá fleiri laxa að njóta og verðið hækkar heldur stórgræða neta- veiðimennirnir einnig vegna verk- efna sem gefa meira af sér. Hug- myndin er að allir græði,“ segir Orri og nefnir sem dæmi veiðimenn Bjargvættur villta laxins Í dag hlýtur Orri Vigfússon hin virtu Goldman-umhverfisverðlaun fyrir hvorki meira né minna en að bjarga villta laxinum á norðurhveli jarðar frá útrýmingu. Allt að því. Aðferðafræði Orra er frumleg – grænn kapítalismi. Orri hefur, í gegnum samtök sín NFSA, keypt markvisst upp laxveiðinet og veiði- réttindi í hafi. Jakob Bjarnar Grétarsson ræddi við Orra um þessa baráttu sem nú hefur staðið í átján ár. Aðalvandamálið með fiskveiðar í heiminum er að við höfum drepið allt of mikið allt of lengi. Skiljum aldrei nóg eftir. Ef við étum allt útsæðið erum við í slæmum málum. KVENFRELSI ER OKKAR MÁL Kolbrún Halldórsdóttir 1. sæti Reykjavíkurkjördæmi Suður Auður Lilja Erlingsdóttir 3. sæti Reykjavíkurkjördæmi Suður Þuríður Backman 2. sæti Norðausturkjördæmi Alma Lísa Jóhannsdóttir 2. sæti Suðurkjördæmi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.