Fréttablaðið - 22.04.2007, Síða 94

Fréttablaðið - 22.04.2007, Síða 94
Þrír hlaupagarpar úr röðum Glitnis hlaupa maraþon í London í dag. Bala Murughan Kamallakharan og Sigrún Kjartansdóttir hlaupa sitt þriðja maraþon á átta mánuðum, en Bryn- hildur Magnúsdóttir spreytir sig í fyrsta sinn. Bala, sem er indverskur, fluttist til landsins frá Bandaríkjunum ásamt íslenskri eiginkonu sinni í janúar í fyrra. Að hans sögn var það Bjarni Ár- mannsson, forstjóri Glitnis, sem vakti hlaupa- áhugann. „Hann sagði mér frá því að hann ætlaði að hlaupa Reykjavíkurmaraþonið. Ég hugsaði að ef að hann fyndi tíma til að undirbúa sig ætti ég að geta það líka,“ sagði Bala. Eftir fjög- urra mánaða undirbúning hljóp Bala því Reykjavíkurmaraþon, Óslóarmaraþon hljóp hann rúmum mánuði síðar og nú er stefnan sett á London. Á þessum skamma tíma má segja að Bala hafi hlaupið af sér sykursýki, sem hann greindist með í læknisskoð- un fyrir flutninginn. „Ég er ekki með nein sjúkdómseinkenni lengur. Síðan ég fór að hlaupa hef ég lést um átján kíló,“ sagði hann. „Hlaupin eru holl, ólæknisfræðileg leið til að tak- ast á við sjúkdóminn. Ég hef ekki þurft að taka nein lyf, en hef breytt mataræðinu tölu- vert,“ sagði Bala. Flutningurinn til Íslands hefur því látið ýmis- legt gott af sér leiða. „Já, mér finnst það. Ef ég gæti nú bara náð tökum á tungumálinu… Það er ekki jafn auðvelt og að hlaupa maraþon,“ sagði Bala og hló við. Sigrún Kjartansdóttir var 47 ára gömul þegar hún hljóp sitt fyrsta maraþon í fyrra, en hafði áður hlaupið hálfmaraþon. Hún segir stemning- una innan fyrirtækisins hafa hvatt sig til dáða. „Þegar Glitnir ákváð að styrkja starfsfólk fyrir hvern kílómetra sá ég líka fram á að það skipti máli hvort ég hlypi hálft eða heilt,“ sagði Sigrún. „Maður beit bara í borðröndina og lét vaða og það gekk voða vel.“ Sigrún segir það skipta sig miklu máli að geta lagt eitthvað af mörkum, og hún og Brynhildur hlaupa því til styrktar Ljósinu, endurhæfing- ar- og stuðningsmiðstöðvar fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstand- endur þeirra, í London. Brynhildur hafði ekki áhyggjur af út- komunni á laugardag, þrátt fyrir nokkurn fiðring í maganum. „Ég klára þetta, ég á ekki von á öðru,“ sagði hún og hló. „Og ef það gengur ekki vel núna er þetta góð upp- hitun fyrir Reykjavíkur- maraþonið,“ bætti hún við. Styrktarreikningur hlaupakvennanna er 515- 26-400120, kt. 080758- 4219. Bala vill hins vegar leggja Central Asia Ins- titute lið og bendir á bók- ina Three Cups of Tea. Bókin er saga Gregs Mortenson, sem hefur byggt yfir 58 skóla á afskekktum svæðum í Paki- stan og Afganistan á síðustu árum. „Sagan snart mig verulega. Hluti ágóðans af sölu bókarinnar rennur til samtakanna, svo ég vil bara benda á hana,“ sagði Bala. „Það var alveg hrika- lega sorglegt að sjá þessi gömlu hús brenna í miðbæn- um. Það er verið að rífa svo mikið af göml- um húsum að það er ekki á það bætandi. Þess vegna vil ég að húsin sem brunnu verði endurbyggð. Það er kannski ekki frumlegt sjónarmið en ég held að við verðum að halda í það litla sem er eftir af upprunlegri götumynd miðbæjarins.“ Góður í borðtennis og klippir sig sjálfur „Við ætlum að fara yfir það núna um helgina hvað það er sem við viljum gera á sviðinu,“ segir Eiríkur Hauksson en hann var ný- lentur þegar Fréttablaðið náði tali af honum á sumardeginum fyrsta, var að ljúka við viðskiptin í Frí- höfninni og beið eftir töskunni sinni. Aðeins þrjár vikur eru þang- að til að söngvarinn hárfagri stíg- ur á sviðið í Helskinki og reynir að koma Íslendingum upp úr for- keppninni á fimmtudeginum. „Við ætlum að nýta okkur helgina til að slípa þetta saman og taka loka- ákvarðanir um allt sem tengist laginu og sviðsetningunni,“ bætir hann við. Eiríkur segist þó geta lofað því að þeir ætli ekki vera með nein- ar sprengingar eða flugeldasýn- ingar og að strákarnir á gítarn- um verði að öllum líkindum með. „Hins vegar ætlum við að halda því opnu hvort leðurjakkinn góði verði með eða ekki. Um það verð- ur tekin ákvörðun núna,“ útskýr- ir Eiríkur. Lagið Valentine Lost hefur fengið prýðisgóða dóma og ný- lega gáfu meðdómarar Eiríks í norræna Eurovision-þættinum honum nánast allir sem einn fullt hús. Eiríkur tekur þó öllu þessu með fyrirvara. „Við höfum allt- af fengið góða dóma fyrir lögin okkar en það hefur eitthvað annað gerst þegar kemur að talningu atkvæða,“ segir Eiríkur. „Land- fræðilega séð erum við alveg á mörkunum á því að vera í Evr- ópu og margir á Balkanskagan- um hugsa eflaust lítið til litla Ís- lands þegar þeir greiða atkvæði,“ útskýrir söngvarinn. „Þetta verð- ur bara spurning um að reyna að fanga sem flesta á þessum þrem- ur mínútum enda hef ég alltaf sagt að það er erfiðara að vera meðal þeirra tíu sem komast áfram í for- keppninni heldur en lenda í tíu efstu sætunum á lokakvöldinu,“ segir Eiríkur. Íhugar að sleppa leðurfrakkanum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.