Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 72
Hefur vantað herslumuninn
SENDU SMS JA FSP
Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR Á SPID
ERMAN,
SPIDERMAN TÖLVULEIKIR, TÓNLIS
T ÚR SPIDERMAN,
DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA
SMS
LEIKUR
SJÁÐU MYND
INA!
SPILAÐU LEI
KINN!J
I !
I I I
!
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
Úrslitakeppni NBA-
deildarinnar tók á sig nýja mynd á
sunnudagskvöldið þegar Phoenix
Suns og San Antonio Spurs léku
sinn fyrsta leik í undanúrsltum
Vesturdeildar. Leikurinn var mjög
skemmtilegur, jafn og spennandi
en á lokamínútunum tóku örlögin
völdin.
„Það var ekkert sem ég gat
gert. Þetta var að sjálfsögðu mjög
svekkjandi en þetta var ekki í
mínum höndum,“ sagði Steve
Nash, sem mátti ekki fara inn á
á lokamínútunnni þar sem lækn-
ar liðsins gátu ekki stöðvað blæð-
ingu úr skurði niður eftir miðju
nefi hans.
Skurðurinn á Nash opnaðist
þegar hann rakst á Tony Parker
þegar 2 mínútur og 53 sekúnd-
ur voru eftir af leiknum. Parker
hafði þá stolið boltanm af Nash í
stöðunni 100-99 fyrir San Antonio.
Nash fékk aðhlynningu og skor-
aði næstu fimm stig Phoenix áður
en dómarar leiksins neituðu að
hleypa honum inn á þegar 54 sek-
úndur voru eftir. Phoenix var þá
með boltann en Spurs var tveimur
stigum yfir, 106-104.
Sjúkraþjálfari liðsins lét hafa
það eftir sér eftir leikinn að það
hefði verið betra ef Nash hefði
nefbrotnað. Hann og félagar hans
reyndu og reyndu að stöðva blæð-
inguna en tókst ekki, sama hversu
oft var skipt um plástra eða hin
ýmsu smyrsl borin á sárið. „Auð-
vitað vildi ég komast inn á og við
reyndum allt til þess,“ sagði Nash
en þótt aðeins tæpar þrjár mín-
útur hefðu verið eftir af leikn-
um tók það um hálftíma að klára
hann. Þennan tíma var ekki minni
spenna að fylgjast með læknum
Phoenix huga að Nash, sem skipti
nokkrum sinnum um búning þar
sem þeir urðu alblóðugir hver á
fætur öðrum.
Eftir leikinn þurfti sex spor til
þess að loka skurðinum. Steve
Nash var með 31 stig og 8 stoð-
sendingar í leiknum en hjá Spurs
voru þeir Tim Duncan (33 stig og
16 fráköst) og Tony Parker (32
stig og 8 stoðsendingar) illviðráð-
anlegir.
„Þetta er nokkuð sem maður
sér bara í boxhringnum. Auðvitað
fann maður til með Steve því öll
lið þurfa að hafa sína bestu menn
inni á í lokin og hann var ekki
með,“ sagði Robert Horry, leik-
maður San Antonio.
Hætti bara ekki að blæða úr Nash
Íslenska U-17 landslið-
ið tapaði í gær fyrir heimamönn-
um á Evrópumótinu í Belgíu, 5-
1, í loka-leik liðsins í keppninni.
Þar með hlaut Ísland ekkert stig
í keppninni og kemst ekki áfram
í undanúrslit eða leik um fimmta
sæti mótsins.
Kolbeinn Sigþórsson skoraði
mark Íslands í gær en það var það
eina sem Ísland skoraði á mótinu.
Þetta var í fyrsta sinn sem Ísland
á landslið í úrslitakeppni stór-
móts í knattspyrnu en þarna voru
saman komin átta bestu lið álfunn-
ar í þessum aldursflokki.
„Strákarnir spiluðu feikivel í
fyrri hálfleik en það var okkar
besti hálfleikur á mótinu,“ sagði
Lúkas Kostic landsliðsþjálfari
eftir leikinn. Staðan í hálfleik var
1-1. Ísland náði reyndar að skora
annað mark í hálfleiknum en það
var dæmt af vegna rangstöðu.
„Við áttum skot að marki sem
var varið. Varnarmaður Belga ætl-
aði að hreinsa boltann úr teignum
en hikaði og Dofri (Snorrason) náði
að skora. Markið var svo dæmt af
og er ég ekki viss um þann dóm. Ég
sá það ekki nógu vel en aðrir sem
sáu atvikið betur segja að Dofri
hafi ekki verið rangstæður.“
Lúkas segir þó að vendipunkt-
ur leiksins hafi verið tvö umdeild
atvik undir lok fyrri hálfleiksins.
„Dómarar leiksins, sem voru
frá Georgíu, voru á bandi heima-
manna. Öll vafaatriði féllu Belg-
um í hag. Svo þegar Finnur lenti
í einvígi við leikmann fékk hann
olnbogaskot í hausinn og lá eftir á
vellinum með risastóra kúlu. Dóm-
arinn verður að stoppa leikinn við
höfuðhögg en gerði ekki neitt.“
Skömmu síðar varð svo Hólmar
Örn Eyjólfsson fyrir olnbogaskoti.
„Hann fékk högg á nefið og munn-
inn þannig að blæddi úr beint
fyrir framan annan línuvörð-
inn. Aftur dæmdu þeir ekki neitt.
Hvaða skilaboð voru dómararnir
að gefa?“
Hann segir að þetta hafi haft
áhrif á leik íslenska liðsins í síð-
ari hálfleik. „Ég sagði þeim að
vera áfram prúðir sem og þeir
gerðu. En dómararnir höfðu tekið
alla orku úr okkar liði og það nýttu
Belgarnir sér og skoruðu mörkin í
kjölfarið,“ sagði Lúkas.
Þrátt fyrir allt er hann ánægður
með sína menn.
„Það er margt í okkar leik sem
má laga en þeir voru prúðir og
reyndu allan tímann að spila fót-
bolta. Við lögðumst ekki í vörn og
kýldum boltann fram þegar við
gátum. Við reyndum að sækja eins
mikið og við gátum og vil ég held-
ur tapa þannig þótt það hafi verið
stórt eins og í dag. Við töpuðum þó
í knattspyrnuleik.“
Íslenska U-17 landsliðið lauk í gær keppni á Evrópumótinu í Belgíu með 5-1 tapi gegn heimamönnum. Lúkas
Kostic, þjálfari liðsins, segir það lykilatriði í leiknum er dómari leiksins tók ekkert á grófum brotum Belg-
Hermann Hreiðarsson
og félagar í Charlton féllu í gær
úr ensku úrvalsdeildinni eftir að
hafa tapað, 2-0, fyrir Tottenham á
heimavelli. Dimitar Berbatov og
Jermain Defoe skoruðu mörk
Tottenham.
Þetta er í fjórða sinn sem Her-
mann leikur með liði sem fell-
ur úr úrvalsdeildinni. Áður hafði
hann fallið með Crystal Palace,
Wimbledon og Ipswich.
Eins og Fréttablaðið hefur áður
sagt er Hermanni nú frjálst að
fara frá liðinu samkvæmt samn-
ingi sínum við Charlton.
Charlton fallið