Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 74
BREYTTU
GLITNIS
PUNKTUM
Í PENINGA
Teitur Örlygsson sæk-
ist eftir því að fá að taka við meist-
araflokksliði karla hjá Njarðvík-
ingum, sem eru nú þjálfaralaus-
ir eftir að Einar Árni Jóhannsson
hætti með liðið. Teitur hefur ekk-
ert komið að Njarðvíkurliðinu
síðan hann lagði skóna á hilluna
vorið 2003.
„Áhugi minn á körfubolta dofn-
aði aðeins en síðan blossaði hann
upp aftur og ég sá að ég gat ekkert
verið án þess að lifa og hrærast í
körfunni. Ég hætti aldrei að fylgj-
ast með liðinu en núna er ég klár
aftur og mig langar alveg rosalega
að taka þátt í þessu,“ segir Teit-
ur. Hann er sigursælasti körfu-
boltamaður Íslands frá upphafi,
vann tíu Íslandsmeistaratitla og
sjö bikarmeistaratitla með Njarð-
vík á árunum 1984 til 2002 og er
bæði leikjahæsti (406) og stiga-
hæsti (6.597) leikmaður félagsins
frá upphafi.
„Ég segi ekki að ég sé að fara
aftur í þjálfun. Þetta yrði í fyrsta
skipti sem ég yrði alvöru þjálfari.
Þetta ár sem ég var með Friðriki
Ragnarssyni þróaðist það þannig
að Friðrik tók við þessu og ég var
bara leikmaður. Ég var að spila
þarna í kringum 35 mínútur í leik
og Friðrik tók þetta því að sér,“
segir Teitur en saman gerðu þeir
Njarðvíkinga að Íslandsmeistur-
um sumarið 2001.
Teitur var titlaður þjálfari þenn-
an veturinn en í kjölfar hans tók
Friðrik við og þjálfaði Njarðvík-
urliðið til ársins 2004. „Þetta yrði
mitt fyrsta tækifæri þar sem ég
fengi að vera með lið frá byrjun.
Ég er búinn að láta þá vita af því
að ég hef áhuga á þessu og mér
heyrist að þeir séu jákvæðir fyrir
mér,“ segir Teitur og bætir við:
„Við eigum eftir að funda saman
en ég kem sterklega til greina og
ég er gríðarlega spenntur.“
Teitur veit að kröfurnar eru
miklar í Njarðvík og þekkir það
sem leikmaður. „Í Njarðvík eru
svolítið klikkaðar kröfur. Út af
velgengni liðsins undanfarin ár
þekkir fólk ekkert annað í bænum
og þá ósjálfrátt myndast svona
miklar kröfur,“ segir Teitur, sem
þekkir það frá sínum tíma sem
leikmaður að til mikils er ætl-
ast af meistaraflokksleikmönnum
Njarðvíkur.
Njarðvíkingar hafa haft þann
háttinn á að ráða Njarðvíkinga
sem þjálfara. Hrannar Hólm, sem
þjálfaði liðið frá 1995-1996, er síð-
asti þjálfarinn sem er ekki upp-
alinn Njarðvíkingur og er sá eini
fyrir utan erlenda þjálfara í sig-
ursælli sögu Njarðvíkur í úrvals-
deild karla sem ekki hefur komið
upp í gegnum félagsstarfið. Það er
ekki ólíklegt að Teitur Örlygsson
bætist í hópinn og lengi keðjuna
enn frekar.
Njarðvíkingar eru að leita sér að nýjum þjálfara í Iceland Express-deild karla
eftir að Einar Árni Jóhannsson ákvað að hætta með liðið. Sigursælasti leikmað-
ur félagsins segist spenntur fyrir að fá tækifæri til að þjálfa liðið.
Bertil Valderhaug, rit-
stjóri íþróttadeildar Aftenposten,
vill meina að Árni Gautur Arason
landsliðsmarkvörður sé besti út-
lendingur sem spilað hafi í norsku
úrvalsdeildinni frá upphafi.
Reyndar komast tveir íslenskir
markverðir á lista fimmtán efstu
manna en Bjarni Sigurðsson, sem
varði mark Brann á níunda áratug
síðustu aldar, er í sjötta sæti.
Í umsögn sinni um Árna Gaut
segir Valderhaug að hann hafi
unnið sjö meistaratitla með Ros-
enborg og einn með Vålerenga.
„Hann á samt silfurmedalíu og
bronsmedalíu. Meistaradeildar-
leikir hans með Rosenborg voru
ógleymanlegir.“
Um Bjarna segir Valderhaug
að hann sé goðsögn í Brann þar
sem hann lék á sínum tíma. „Var
oft lýst sem lifandi vegg í marki
Brann. Varð þó aldrei meistari.“
Þriðji Íslendingurinn kemst á
listann en það er Stefán Gíslason,
leikmaður Lyn, sem hefur átt góðu
gengi að fagna í vor. „Afar van-
metinn leikmaður,“ segir hann
um Stefán sem hann hefur í þrett-
ánda sæti. „Með frábæra yfirsýn,
öruggur á boltann og getur stýrt
spilinu vel. Lyn má vera ánægt ef
því tekst að halda honum hjá fé-
laginu.“
Meðal þekktra knattspyrnu-
manna sem eru á listanum má
nefna Christian Wilhelmsson (3.
sæti), Tobias Linderoth (7. sæti),
Paul Scharner (9. sæti) og John
Obi Mikel (15. sæti).
Valderhaug nefnir einnig ellefu
leikmenn sem voru nálægt því að
komast á listann. Þar af eru fjór-
ir Íslendingar. Þeir eru Rúnar
Kristinsson (Lilleström), Veigar
Páll Gunnarsson (Stabæk), Heiðar
Helguson (Lilleström) og Kristján
Örn Sigurðsson (Brann).
Árni Gautur gat þó ekki tekið
undir valið í samtali við Aften-
posten. „Það hafa verið margir
góðir leikmenn í Noregi. Ég veit
ekki hvort ég er betri en allir þess-
ir,“ sagði hann er hann las yfir list-
ann.
Samningur hans við félagið
rennur út í haust og ganga við-
ræður hægt við félagið um nýjan
samning. „Ég veit ekki hvað verð-
ur eða hvort félagið vill halda mér.
En mér líður vel hjá Vålerenga,“
sagði Árni Gautur.
Árni Gautur besti útlending-
urinn frá upphafi í Noregi
Eins og búist hefur verið
við í allan vetur er Rúnar Krist-
insson af öllum líkindum á leið í
KR. Ekkert er þó frágengið enn
sem komið er.
„Ég er ekki búinn að ganga frá
samningi við KR né neins konar
samkomulagi. Ég hef hins vegar
rætt við Teit og ef við höldum
okkur uppi, sem skýrist vonandi
um helgina, þá eru mestar líkur
á því að ég fari heim og spili með
KR,“ sagði Rúnar.
Lokeren, lið Rúnars í Belgíu,
er í þriðja neðsta sæti deildar-
innar eins og er, með fimm stiga
forskot á liðið fyrir neðan. Tvær
umferðir eru eftir af belgísku
deildinni og ef liðið vinnur Zulte
Waregem um helgina hefur liðið
tryggt sæti sitt í deildinni.
Deildin klárast svo 19. maí og
ef Lokeren bjargar sér ætti ekk-
ert að vera því til fyrirstöðu að
hann komi heim og leiki með KR.
Ef Lokeren þarf hins vegar að
taka þátt í sérstakri aukakeppni
um lið í úrvalsdeildinni sem þau
tvö neðstu í deildinni þurfa að
gera frestast heimför Rúnars um
mánuð.
„Það getur margt gerst í þess-
um leikjum og miklu meiri óvissa
um hvað gerist í kjölfarið. Ég get
ekkert fullyrt um hvað gerist þá,“
sagði Rúnar.
Rúnar gæti komið heim í lok maí