Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 32
LEIKIR er fjöldinn sem tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir, sem leika
nú með FH, hafa spilað í efstu deild á gifturíkum ferlinum. Þeir hafa hvor um
sig spilað 96 leiki með ÍA og KR og hafa samanlagt skorað 85 mörk í þeim.192
» ÓLAFUR ÞÓRÐARSON er einhver litríkasti og skemmti-
legasti knattspyrnumaður sem Ísland hefur alið af sér. Ólafur er
uppalinn Skagamaður og lék fyrstu árin með ÍA. Hann spilaði
síðan sem atvinnumaður með Brann og Lyn í Noregi en kom
heim árið 1993 og spilaði með ÍA til loka ársins 1997. Þá varð
hann spilandi þjálfari hjá Fylki í tvö ár áður en hann sneri aftur
upp á Skaga sem þjálfari. Hann lagði skóna á hilluna eftir tíma-
bilið 2002 og hætti sem þjálfari ÍA á miðju síðasta tímabili. Hann
stýrir nú Fram í Landsbankadeild-
inni. Ólafur lék 182 leiki í efstu
deild og skoraði í þeim 28 mörk.
Hann varð sex sinnum meistari
með ÍA sem leikmaður og einu
sinni sem þjálfari. Ólafur lék 72
A-landsleiki á ferlinum. Sport
fékk Ólaf til að velja draumalið
sitt úr þeim hópi leikmanna sem
hann spilaði með á löngum og
farsælum ferli.
DRAUMALIÐIÐ
Bjarni
Sigurðsson
Árni
Sveinsson
Ólafur
Þórðarson
Sævar
Jónsson
Guðni
Bergsson
Atli
Eðvaldsson
Pétur
Pétursson
2 sport
Florentina Grecu, markvörður Stjörnunnar, valdi Ísland fram yfir Serbíu þegar hún ákvað að hleypa heimdraganum. SPORTMYND/ANTON
FRÁ RITSTJÓRA
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
ALLIR ELTA FH
Forráða-
menn FH
hafa búið
til umgjörð
sem
hæfir liði í
fremstu röð
og stuðn-
ingsmenn-
irnir hafa
ekki látið
sitt eftir
liggja. Það
er einhver
stórveldis-
bragur á FH
og ég kann
vel við það.
Forsíðumyndina tók Anton
Brink af þeim leikmönnum og
þjálfurum FH sem hafa orðið
Íslandsmeistarar undanfarin þrjú
ár. Sjá viðtal á blaðsíðu 10.
Útgefandi: 365, Ritstjóri: Óskar Hrafn
Þorvaldsson oskar@frettabladid.is,
Útlitshönnun: Kristín Agnarsdóttir
kristina@frettabladid.is
sport
» ÍÞRÓTTABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS 3.TBL. 2007
LAGT AF STAÐ Í ÞRIÐJU TITILVÖRNINA
SP
O
RT
M
YN
D
/A
N
TO
N
LANDSBANKADEILDIN Í FÓTBOLTA FER AF STAÐ Á LAUGARDAGINN.
FH-INGAR HAFA UNNIÐ SÍÐUSTU ÞRJÚ ÁR OG ÆTLA SÉR FJÓRÐA TITILINN.
Landsbankadeildin í fótbolta hefst á laugardag-
inn. Flestir eiga von á því FH-ingar muni vinna
Íslandsmeistaratitilinn fjórða árið í röð og sá
sem þetta skrifar er þar ekki undanskilinn.
FH-ingar hafa byggt upp ótrúlega öflugt lið á
tiltölulega stuttum tíma. Forráðamenn félagsins
hafa búið til umgjörð sem hæfir liði í fremstu
röð og stuðningsmennirnir hafa heldur ekki
látið sitt eftir liggja. Það er einhver stórveldis-
bragur á FH sem ég kann vel við. Og það verður
að líkindum engin breyting á í
sumar. Andstæðingar FH verða
í eltingarleik í sumar. Ekki
bara inni á vellinum heldur
líka utan vallar. Andstæð-
ingana vantar ekki bara
betri fótboltamenn
heldur líka betri
umgjörð. Þá vantar
meiri stemningu, meira
sjálfstraust. Það eina sem
mörg af þessum liðum
eiga eru peningar. En
peningar kaupa ekki árangur
eins og margoft hefur komið
fram. Um það geta til að mynda KR-
ingar og Valsmenn vitnað.
En af hverju er FH með langbesta liðið?
1) FH-ingar hafa haldið svipuðu liði undanfarin
þrjú ár.
2) Félaginu hefur tekist að stoppa í þau göt sem
hafa myndast með brotthvarfi leikmanna eins og
Allans Borgvardt og Ármanns Smára Björnssonar
án sýnilegra vandræða.
3) FH-liðið er með þjálfara sem hefur sýnt að
hann veit hvað hann vill og það sem meira er –
hann veit hvernig á að ná því fram.
4) FH-liðið er það eina á Íslandi sem hefur fyrir-
fram skilgreindan sóknarleik sem byggist ekki á
tilviljunarkenndum sendingum fram völlinn og
síðan að vona það besta. FH-liðið raðar saman
mönnum í stöður sem henta leikstílnum. Þar er
tilviljun ekki látin ráða ferðinni.
5) Leikmenn liðsins er komnir með óbilandi
sjálfstraust eftir sigurgöngu síðustu ára. Sjálfs-
traustið lýsir sér þó ekki í hroka heldur í þeirri
vissu að FH-liðið hefur á sannfærandi hátt einok-
að hlaðborðið í Landsbankadeildinni undanfarin
þrjú ár.
6) FH hefur unnið tvo titla það sem af er þessu
ári, þá tvo sem í boði hafa verið.
7) Leikmenn FH eru enn eins og gráðugir
gammar á eftir bikarnum sem þeim hefur ekki
tekist að landa á síðustu þremur árum. Þeir eru
drifnir áfram að því takmarki að sigra loksins
tvöfalt.
Við hin liðin níu sem ætla sér að keppa við
FH í Landsbankadeildinni í sumar segir ég:
Gangi ykkur vel!
Sigurður
Jónsson
Ásgeir
Sigurvinsson
Pétur
Ormslev
Arnór
Guðjohnsen
É g hef verið hérna í þrjú ár og líkar alveg afskaplega vel,“ segir hin 24 ára gamla rúm-
enska Florentina Grecu sem varð
á dögunum Íslandsmeistari í hand-
bolta annað árið í röð. Grecu, sem
kom hingað þegar hún var tvítug,
lék í þrjú ár með ÍBV en skipti yfir
í Stjörnuna síðastliðið haust.
Grecu kom hingað til lands
vegna þess að hún var of sein að
finna sér lið í Evrópu en hún gat
valið á milli Serbíu og Íslands. Og
valdi Ísland.
„Ég sé ekki eftir því. Hér líður
mér afar vel,“ segir Grecu en hún
býr hér með manni sínum og vinn-
ur þrjá tíma á leikskóla auk þess
að spila handbolta. „Ég hef það
mjög gott fjárhagslega og við
erum mjög hamingjusöm,“ segir
Grecu.
Hana dreymir um að spila í
sterkari deild í Evrópu og það er
líkt með henni og mörgum öðrum
að Danmörk er draumastaðurinn.
„Ég er með tilboð frá Danmörku
en ég á eitt ár eftir af samningi
mínum við Stjörnuna og ætla að
virða hann. Ég stefni að því að fara
til Danmerkur á næsta ári og það
verður hvatning fyrir mig á næsta
ári að verða enn betri til að komast
að hjá betra liði,“ segir Grecu.
En hefur hún einhvern tíma
hugleitt að sækja um íslenskan
ríkisborgararétt þegar hún hefur
rétt til?
„Ég get ekki sagt að ég hafi
hugsað út í það. Kannski aðeins
smá en ég er Rúmeni og spila með
rúmenska landsliðinu þegar ég
get. Ég yrði að hugsa mig afskap-
lega vel um en það er ekki hægt að
útiloka neitt,“ segir Grecu.
Rúmenski markvörðurinn Florentina Grecu, sem leikur með Stjörnunni, er ein af bestu
handboltakonum landsins. Hún hefur verið hér í þrjú ár og sér ekki eftir því að hafa
valið Ísland fram yfir Serbíu á sínum tíma. EFTIR ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON
TEKUR GARÐABÆ
FRAM YFIR DANMÖRK