Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 30
Þegar sólarljósið hellist inn um
gluggana og lýsir upp hverja
einustu rykörðu sem kann að
leynast á heimilinu finna marg-
ir fyrir þörf til að þrífa heimili
sín hátt og lágt. Vorhreingern-
ing er þannig oft gerð af illri
nauðsyn fremur en öðru.
Þegar gera á hreint á heimilinu
skiptir undirbúningur oft jafn
miklu máli og sjálf athöfnin. Allar
nauðsynlegar hreinlætisvörur
verða að vera til taks og ómögu-
legt er að hafa götótta gúmmí-
hanska á höndunum. Farið því yfir
birgðirnar og endurnýið þar sem
við á.
Best er að byrja tiltektina með
því að setja alla hluti á sinn stað,
en þetta getur oft tekið eina eða
tvær tarnir á sumum heimilum og
verður þannig einn mikilvægasti
þáttur aðgerðarinnar.
Þegar allt er komið á sinn stað er
næsta mál að taka niður gardínur
og þrífa þær, svo má ráðast í skápa
og skúffur. Taka allt út, sortera og
flokka og henda því sem ýmist er
útrunnið eða búið að missa gildi
sitt. Því næst eru skáparnir þrifn-
ir og svo er raðað í þá aftur, eftir
því hvað er notað mest. Það sem er
mest notað fer yst og það sem er
minnst notað fer innst.
Ef fólk kýs að þrífa vegg-
ina heima hjá sér er best að nota
moppur í það en muna að nota litla
sápu þar sem óhreinindi á veggj-
um sitja yfirleitt ekki mjög föst.
Nú eru allir lauslegir munir
teknir af gólfum og mottur barðar,
sængur, pullur, púðar og koddar
viðraðir og gluggar opnaðir upp
á gátt. Nauðsynlegt að lofta vel
út og hafa góða, hvetjandi tónlist
á fóninum til að efla táp og fjör.
Við mælum með Abba, AC/DC eða
Daft Punk. Svo er allt skúrað og
ryksugað, sófinn, ofnar og gólf-
listar og húsgögn eru færð til svo
að hægt sé að þrífa undir þeim.
Þegar þessu stórkostlega verki
er lokið er nauðsynlegt að halda
upp á dugnaðinn, til dæmis með
góðri máltíð eða heitu unaðsbaði,
hvítvínsglasi og jafnvel stórum
vindli ef því er að skipta. Koma
svo!
Vertu til er vorið kallar á þig
Fremstir síðan 1966.
Ítalir hafa löngum verið heims-
þekktir fyrir góðan smekk og
ástríðu fyrir vandaðri fram-
leiðslu.
Síðan árið 1966 hefur hús-
gagnaframleiðandinn B&B
Italia verið ofarlega á listan-
um yfir þá sem skara fram úr
í smekkvísi en þeir hafa lagt
sig fram um að skynja það sem
koma skal og framleiða eftir
því. Höfuðstöðvar B&B Ital-
ia eru í Como-héraðinu á Ítalíu
en verslanir þeirra eru í öllum
borgum heimsins og nú í mars
var ein að opna í Soho-hverfinu
í New York.
Til að kynna sér vöruúrval og
framleiðslu B&B Italia má fara
á vefsíðuna www.bebitalia.it
Ítölsk
húsgögn
Verið velkomin
Rýmingarsala
10 til 50%
afsláttur af öllum
vörum í búðinni, nýjum og eldri
Ótrúlegt úrval af fallegum gjafavörum