Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 44
14 sport
GÆFI ALLT FYRIR AÐ
SKORA TÍU MÖRK
Sinisa Valdimar Kekic er aldursforseti Landsbankadeildarinnar. Hann verður 38 ára
í nóvember en segist vera í toppformi. Víkingar treysta á að galdurinn í fótum Kekic
minnki ekki þótt árunum fjölgi. EFTIR ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON
Malarhöfða 2a • 110 Reykjavík
Sími 570 9900 • www.fiat.is
Opið:
virka daga frá 8–18
laugardaga frá 12–16
Saga er umboðsaðili fyrir Alfa Romeo, Ducati, Ferrari, Fiat og Maserati
Byggt til að sigra Nýju hjólin eru komin– og fara hratt!
Sinisa Kekic er aldursforseti Landsbankadeildarinnar. Hann stefnir að því að festa
Víking í sessi í efstu deild, sem gleður örugglega gömlu kempurnar Einar Þorsteins-
son og Gunnlaug Lárusson. SPORTMYND/HÖRÐUR
» LANDSBANKADEILDIN «
Þeir eru ekki margir
sem geta mótmælt
því að Sinisa Valdi-
mar Kekic hafi verið
einn besti leikmaður
íslenskrar knatt-
spyrnu þau tíu ár
sem hann hefur dval-
ið hér á landi. Þessi 37 ára gamli
leikmaður lék lengst af með
Grindavík en söðlaði um í fyrra og
lék með Þrótti í 1. deildinni. Nú er
hann mættur aftur í úrvalsdeild-
ina með Víkingi og segist vera í
toppformi þrátt fyrir að vera ald-
ursforseti deildarinnar.
„Ég hef ekki misst úr eina
æfingu í vetur og er bara í topp-
formi,“ segir elsti leikmaður
Landsbankadeildarinnar í samtali
við Sport. Kekic segir heilsuna
vera góða og þótt hann verði
stundum þreyttur eftir leiki sé
það bara eðlilegt.
Kekic er reyndasti leikmaður
Víkings og ljóst að mikið mun
mæða á honum í sumar. „Ég finn
auðvitað til ábyrgðar sem elsti
leikmaður liðsins og reyni eins og
ég get að miðla reynslu minni til
hinna leikmanna liðsins. Við tölum
mikið saman og reynum að bæta
okkur sem lið. Ég finn að þjálfar-
inn treystir mér og vona að ég
standi undir því,“ segir Kekic, sem
hefur eingöngu spilað sem fram-
liggjandi miðjumaður hjá Víkingi
og er afskaplega ánægður með að
vera bara í einni stöðu eftir að hafa
flakkað á milli varnar, miðju og
sóknar á löngum ferli.
„Þessi staða hentar mér vel. Ég
er ekki jafn fljótur og ég var en ég
reyni alltaf að vera hættulegur,“
segir Kekic og hlær.
Spurður um markmið sín segir
Kekic að það skipti öllu máli að
Víkingur vinni leiki en viðurkennir
þó að hann myndi gefa allt fyrir að
skora tíu mörk í deildinni. „Það
myndi vera afskaplega mikilvægt
fyrir liðið. Þetta verður auðvitað
erfitt en ég hef tröllatrú á liðinu.
Það er góð samstaða frá formanni
til yngsta leikmanns. Við erum
með gott lið sem erfitt er að spila
á móti,“ segir Kekic.
Kekic flutti til Reykjavíkur síð-
asta sumar eftir að hafa búið í
Grindavík lengstan hluta dvalar
sinnar hér á Íslandi og honum
líður vel í höfuðborginni. „Lífið er
alveg stórglæsilegt og miklu
skemmtilegra að búa hér heldur
en í Grindavík,“ segir Kekic, sem
veit ekki hvort þetta er hans síð-
asta tímabil.
„Ég er með samning út þetta
tímabil en ef ég er heill heilsu
langar mig til að spila áfram. Í það
minnsta þar til ég hef ekki lengur
gaman af því að spila fótbolta.“