Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 38
Hollendingurinn
Ruud van Nistel-
rooy hefur verið
sjóðandi heitur í
framlínu Real
Madrid í spænsku
úrvalsdeildinni að undanförnu.
Hann hefur skorað níu mörk í síð-
ustu níu leikjum liðsins og átt stór-
an þátt í því að liðið er aðeins
tveimur stigum á eftir Barcelona á
toppi deildarinnar.
Í SÖGUBÆKURNAR
Það er óhætt að segja að van Nistel-
rooy hafi alltaf skorað, hvar sem
hann hefur stigið niður fæti. Hann
var markahæsti leikmaður hol-
lensku deildarinnar í tvígang með
PSV, 1999 með 31 mark og 2000
með 29 mörk. Hann var einnig
markahæsti leikmaður ensku
úrvalsdeildarinnar með Manchest-
er United árið 2002 en þá skoraði
hann 25 mörk. Eins og áður sagði er
van Nistelrooy markahæstur í
spænsku úralsdeildinni með 20
mörk, einu meira en Alberto Diego
Milito og Freddie Kanoute. Verði
hann efstur til loka nær hann þeim
áfanga að verða fyrsti framherjinn
sem hirðir markakóngstitil í þrem-
ur af sex bestu deildum heims.
EKKI SLÆMUR FÉLAGSSKAPUR
Það má með sanni segja að van
Nistelrooy sé ekki í félagsskap af
verri endanum þegar þeir leik-
menn sem hafa orðið markakóng-
ar í tveimur deildum eru skoðaðir.
Þeirra á meðal eru landi hans
Marco van Basten sem varð tví-
vegis markakóngur með Ajax í
Hollandi og tvívegis með AC Milan
á Ítalíu og Brasilíumennirnir Rom-
ario og Ronaldo sem urðu báðir
markakóng- ar með
PSV í Hollandi og Bar-
celona á Spáni
en Ronaldo
varð auk þess markahæstur með
Real Madrid.
HÖRÐ KEPPNI
Það munar ekki miklu á van Nistel-
rooy og næstu mönnum því Argent-
ínumaðurinn Alberto Diego Milito,
sem leikur með Real Zaragoza, og
Frakkinn Freddie Kanoute hjá
Sevilla eru báðir með nítján mörk.
Þeir eru .þó ekki í eins miklu stuði
og van Nistelrooy. Kanoute hefur
ekki skorað í deildinni síðan 18.
mars síðastliðinn og Milito hefur
ekki fundið netmöskvana í undan-
förnum fjórum leikjum. Öfugt
við van Nistelrooy , sem hefur
skorað fjögur mörk í síðustu
tveimur leikjum og níu
mörk í síðustu níu.
Fari svo að AC Milan sigri í Meistaradeild-
inni er líklegt að harmsaga núverandi
leiktíðar á Ítalíu verði endurrituð. Titlar
telja í sögubókum og sjálfsagt munu
komandi kynslóðir líta á árin 2006 og 2007
sem gullöld ítalska boltans. Árin sem Ítalir
urðu heimsmeistarar og ítalskt lið varð
Evrópumeistari. Svona geta nokkrir leikir
breytt miklu. AC Milan er búið að eiga
einhverja döprustu leiktíð sína í deildinni í
mörg ár, þjakað af Calciopoli-málinu og
mínusstigunum átta sem liðið lagði af stað
með. En frá áramótum hefur stígandi verið
í leik liðsins og á vordögum hefur það
verið óstöðvandi. Hamskiptin á liðinu eru
algjör á nokkrum vikum. Þannig á liðið
sem mætti teinrétt og keikt til leiks gegn
Manchester United lítið sameiginlegt með
liðinu sem átti í miklum vandræðum að
brjóta Celtic á bak aftur og þurfti einstakl-
ingsframtak Kaká til í framlengingu síðari
leiksins.
Ítalir hafa verið í miklu þunglyndi í vetur
og haft hálfgerða skömm á fótbolta.
Lélegasta leiktíð frá stríðslokum segja
menn og aðsóknin endurspeglar það. Ekki
verið minni í fjörutíu ár. Upprisa Milan
hefur vakið menn af þyrnirósarsvefni
þunglyndisins og ráða fjölmiðlar sér vart
fyrir kæti. Geðshræringin dásamlega
öfgakennd að sjálfsögðu. Þakklætið í garð
Milan fyrir að bjarga heiðri þjóðarinnar
svo mikið að strikað er yfir allt sem á
undan er gengið. Þannig voru átta af ellefu
sérfræðingum sem La Gazzetta dello Sport
leitaði til á þeirri skoðun að Milan væri
sterkara lið en meistarar Inter sem
sigruðu í deildinni með mestu yfirburðum í
sögunni. Inter lagði Milan sannfærandi að
velli í báðum innbyrðisviðureignum
vetrarins.
Á sveif með Milan lögðust óvilhallir
meistarar úr ýmsum áttum; Marcello
Lippi, Pierluigi Casiraghi, Claudio Ranieri,
Luca Marchegiani, Giuseppe Giannini,
Franco Causio, Giuseppe Signori og
Gianfranco Zola. Aðeins Giancarlo
Antognoni, Zbignew Boniek og Fabrizio
Ravanelli töldu Inter fremri.
En kálið er ekki sopið þótt í ausuna sé
komið og tapi Milan úrslitaleiknum blasir
svartnættið við á nýjan leik. Þá verður
leiktíðarinnar minnst í framtíðinni sem
eignar Englendinga. „Annus horribilis“
heitið sem svo oft hefur verið notað í vetur
jafnframt geirneglt á spjöld sögunnar.
8 sport
NAUTABANINN
Einar Logi Vignisson
Á LEIÐ Í SÖGUBÆKURNAR
John Charles (Leeds
United, Englandi 1957
og Juventus á Ítalíu
1958)
Marco van Basten
(Ajax, Hollandi 1984 og
1987 og AC Milan, Ítalíu
1990 og 1992).
Romario (PSV, Hollandi
1989 og 1991 og Barce-
lona, Spáni 1994)
Ronaldo (PSV, Hollandi
1995, Barcelona, spáni
1997 og Real Madrid,
Spáni 2004)
Marcio Amor-
oso (Udinese,
Ítalíu 1999 og
Borussia Dort-
mund, Þýskalandi
2002).
Christian Vieri (Atletico
Madrid, Spáni 1998 og
Hollenski markahrókurinn
RUUD VAN NISTELROOY
skoraði tvö mörk fyrir Real
Madrid í 3-2 sigri á Sevilla
um helgina. Þar með er
hann orðinn markahæsti
leikmaður spænsku
úrvalsdeildarinnar með
20 mörk. Haldi hann
toppsætinu kemst hann
á spjöld sögunnar. EFTIR
ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON
Internazionale,
ítalíu 2003).
Ruud van Nistelrooy
(PSV, Hollandi 1999 og
2000 og Manchester
United, Englandi
2003.
HAFA ORÐIÐ MARKAKÓNGAR Í TVEIMUR DEILDUM
MILAN GEGN INTER 8-3!
Hollenski framherj-
inn Ruud van Nistel-
rooy skorar mörk
hvar sem hann er.