Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 56
Samfylkingarfólk veit að hægt er að gera mikið betur í menntamálum hér á landi. Sig- urður Kári Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, virð- ist hins vegar vera á öðru máli í grein sinni í Fréttablaðinu 3. maí sl. Þar lýsir hann því hvernig allt sé í fínu standi í menntamál- um á Íslandi og segir okkur vera þar í fremstu röð. Sigurður Kári skammast heilmikið út í undir- rituð fyrir að styðjast í gagnrýni okkar við gögn frá OECD, sem þó sérhæfir sig í að bera saman töl- fræði á milli landa. Við studdumst við nýjustu skýrslu OECD um menntamál (Education at a Glance) frá 2006. Þar sést að við stöndum illa í al- þjóðlegum samanburði á stöðu framhalds- og háskóla. Þenn- an samanburð vill Sjálfstæðis- flokkurinn ekki heyra. Flestar samanburðartölur OECD í þess- ari skýrslu eru frá árinu 2004 og gefa því góða mynd af stöðu menntamála. Frammistaða íslenskra stjórn- valda er að sjálfsögðu mæld í samanburði við önnur lönd. Vörn Sjálfstæðisflokksins virðist hins vegar felast í að vilja bera saman framlög mismunandi ára milli landa. Það gengur auðvit- að ekki að bera saman framlög- in til framhaldsskóla eins og þau voru á Íslandi árið 2007 við fram- lög til framhaldsskóla í Svíþjóð árið 2004. Það er lenska hjá Sjálfstæðis- flokknum að véfengja ætíð óhag- stæðan samanburð, hvort sem hann kemur frá OECD, Lands- sambandi eldri borgara, ASÍ eða öðrum aðilum. Í töflu B2.1c á bls. 207 í skýrslu OECD um opinber útgjöld til há- skólastigsins sést að Ísland er að verja 1,2% af landsframleiðslu en meðaltalið í OECD er 1,4%. Danir, Norðmenn og Finnar verja 1,8% og Svíar 1,5%. Ísland er í 21. sæti af 30 þjóðum. Í sömu töflu má sjá hverju önnur ríki verja til framhalds- skóla en samkvæmt upplýsinga- þjónustu Alþingis varði Ísland 1,3% til þeirra. Sá samanburð- ur sýnir að Ísland er í 16. sæti af 30 OECD-þjóðum. Sigurður Kári reynir ekki að hrekja þennan samanburð í grein sinni og minn- ist ekki á hann. 68% á aldursbilinu 25-34 ára hafa lokið framhaldsskólanámi en á hinum Norðurlöndunum er þetta 86-96% skv. töflu A1 2a á bls. 38. Meðaltalið í OECD er 77% og í ESB 78%. Við erum hér í 23. sæti af 30 þjóðum. 31% á aldrinum 25-34 ára hafa lokið háskólanámi hér en á hinum Norðurlöndunum er þetta hlutfall 35-42% skv. töflu A1.3a. á bls. 39. Hér er Ísland í 17. sæti af 30 þjóðum. Sigurður Kári rengir ekki þessa tölu. Sigurði Kára tekst því ekki að hrekja samanburðinn. Honum er bara illa við samanburðinn sjálf- an. Heimild sem hann vitnar sjálfur til í greininni styður mál okkar enn frekar. Samkvæmt töl- fræðiskýrslu norrænu Hagstof- unnar (Nordic Statistical Year- book 2006) sést að hlutfall fólks á aldrinum 15-74 sem hafði lokið námi á háskólastigi árið 2005 var 18,9% á Íslandi en 24,7% í Nor- egi, 23,3% í Svíþjóð, 22,2% í Dan- mörku og 26,5% í Finnlandi. Sigurður Kári heldur því fram að á þessu kjörtímabili hafi fjár- framlögin aukist svo mikið að samanburðurinn sé úreldur. Lítum því aðeins betur á hvað hefur gerst í þróun útgjalda til framhaldsskólanna frá árinu 2004. Á vef Hagstofunnar kemur fram að 2004-2005 hafi framlög til framhaldsskóla lækkað um 123,7 milljónir og hlutur fram- haldsskólans í landsframleiðsl- unni lækkað úr 1,41% í 1,33%. Á sama tíma fjölgaði skráðum nem- endum á framhaldsskólastigi um 873. Þá nemur niðurskurður til framhaldsskóla 2007, 650 milljón- ir króna. Það virtist koma stjórn- völdum á óvart að þeir einstakl- ingar sem fæddust í stórum ár- göngum 1989 og 1990 skiluðu sér í menntaskóla. Fjármagn hefur ekki fylgt þessari „óvæntu“ nem- endafjölgun. Loks hefur reiknilíkaninu sem nota á til að reikna út raunkostn- að á hvern nemanda í framhalds- skóla verið breytt þannig að nú er það notað til að dreifa niður- skurðinum. Sigurður Kári getur því ekki haldið því fram að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi tekið sig saman í andlitinu á kjörtímabilinu nema síður sé. En í samanburði á heildarút- gjöldum til menntamála komum við þó ágætlega út í skýrslu OECD. Sú staða er hins vegar til- komin vegna þess að við erum nálægt toppi þegar kemur að út- gjöldum til leik- og grunnskóla. Þau skólastig eru hins vegar rekin af sveitarfélögum en ekki ríkisvaldinu. Ríkisvaldið rekur framhalds- og háskólana þar sem við fáum hina alræmdu fallein- kunn. En það hafa verið jafnað- armenn í Reykjavík, Hafnarfirði og víðar sem hafa rekið flesta grunnskóla og leikskóla landsins undanfarinn áratug. Það er fjárfesting sveitarfé- laga í grunnskólum og leikskólum sem togar Ísland upp þegar litið er til heildarútgjalda til mennta- mála. Framlög ríkisvaldsins til framhalds- og háskólanna toga okkur hins vegar niður. Ísland er jafnframt hið eina af Norðurlöndunum sem ekki styrk- ir sína námsmenn heldur lánar þeim eingöngu. Sjálfstæðisflokk- urinn er búinn að stjórna mennta- málaráðuneytinu í 16 ár. Árang- urinn er falleinkun í menntamál- um. Við þessi orð stöndum við. Varnarleikur Sjálfstæðisflokks- ins er tilraun til sjónarspils, eins og ofangreindar staðreyndir sýna glögglega. Höfundar eru alþingismenn Samfylkingarinnar. Falleinkunn í menntamálum Höfundar þessarar greinar hafa sýnt með margvísleg- um hætti á liðnum misserum að hagur stórs hóps eldri borgara á Íslandi hefur ekki verið með þeim hætti sem skyldi. Lífeyris- þegar hafa dregist afturúr öðrum þjóðfélagshópum. Fernt hefur ráðið mestu um það. Í fyrsta lagi hefur sá hluti líf- eyris frá almannatryggingum sem flestir fá (grunnlífeyrir og tekjutrygging eins og hún var skilgreind til ársins 2006) ekki aukist jafn hratt og lágmarks- laun, meðaltekjur og hærri tekj- ur á vinnumarkaði. Í öðru lagi hafa tekjur úr flest- um lífeyrissjóðum fylgt verðlagi frá ári til árs en ekki kaupmátt- arþróuninni í samfélaginu. Vegna þeirrar kaupmáttaraukningar sem verið hefur frá 1995 hefur þessi þáttur lífeyristekna dregist afturúr tekjum á vinnumarkaði. Í þriðja lagi hafa skerðingará- kvæði vegna greiðslna frá Trygg- ingastofnun valdið því að ellilíf- eyrisþegi heldur minna eftir af tekjum sínum úr lífeyrissjóði en eðlilegt getur talist. Í fjórða lagi hefur skattbyrði lífeyrisþega og þeirra sem lægst- ar hafa tekjurnar aukist mun meira en hjá öðrum tekjuhópum. Það varð vegna rýrnunar skatt- leysismarka að raungildi. Lífeyr- isþegar hafa alla jafna lægri tekj- ur en fólk á vinnumarkaði og slík- ir hópar eru viðkvæmari fyrir raunlækkun skattleysismarkanna en fólk með hærri tekjur. Skatt- leysismörk eru nú 90.000 krónur á mánuði en ættu að vera hærri en 140.000 krónur ef þau hefðu haldið gildi sínu miðað við launa- vísitölu frá 1988. Ofangreind þróun hefur leitt til þess að hækkun kaupmáttar ráð- stöfunartekna dæmigerðs ellilíf- eyrisþega með t.d. um 53 þúsund krónur í tekjur úr lífeyrissjóði á mánuði og greiðslur almanna- trygginga, hefur verið mun minni en varð hjá meðaltekjufólki og hátekjufólki á síðasta áratug. Þannig hafa ráðstöfunartekj- ur hans hækkað um u.þ.b. 20% frá árinu 1995 á meðan hækkun- in er sögð yfir 60% fyrir heimil- in í landinu. Þegar þessi þróun er höfð í huga vekur furðu að stjórn- málaheimspeki- prófessor við Háskóla Íslands skuli halda því ítrekað fram, að kjör íslenskra lífeyrisþega séu betri en er hjá sambæri- legum hópum í grannríkjun- um. Það er gert með tilvísunum í talnaefni, m.a frá ráðuneyt- um, sem er ósambærilegt og vill- andi. Við höfum í fyrri grein bent á annað efni sem sýnir hið gagn- stæða, en í því voru notaðar sam- bærilegri reikniaðferðir. Fleira mætti tína til um það. Nýleg skoðanakönnun Gallup um mat einstaklinga á hvort kjör þeirra hafi batnað, staðið í stað eða versnað styður niðurstöður okkar fyllilega. Fólk finnur þessa þróun á eigin skinni. Mun færri í hópi eldri svarenda telja kjör sín hafa batnað á sl. 4 árum en er meðal þjóðarinnar alls og mun fleiri úr hópi eldri svarenda segja kjör sín hafa staðið í stað eða versnað. Þetta er afleitur vitnis- burður um misjafna kjaraþróun á góðæristíma í samfélaginu. Enginn skyldi því leggja trún- að á tal um að lífeyriskjör eldri borgara séu almennt betri hér á landi en í grannríkjunum. Það er væntanlega sagt til að fela ofan- greinda þróun lífeyriskjara og réttlæta áframhaldandi sinnu- leysi stjórnvalda um hag lífeyr- isþega. Einar Árnason er hagfræðing- ur Landssambands eldri borg- ara, Ólafur Ólafsson er formað- ur LEB og fyrrverandi landlækn- ir og Stefán Ólafsson er prófessor við Háskóla Íslands. Óviðunandi hagur Þegar öllu er á botninn hvolft er traust efnahagsstjórn stærsta velferðarmálið xd.is Nýir tímar - á traustum grunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.