Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 40
V ið erum ekki búnir að fá nóg. Mér sjálfum líður ekk-ert öðruvísi en tvö síðustu
ár. Mér líður eins og við eigum bik-
arinn og munum halda dauðahaldi í
hann. Ég held að þannig sé með
alla. Það er komið stolt í mannskap-
inn og menn þekkja tilfinninguna
sem fylgir því að vinna Íslands-
meistaratitilinn. Ég lofa því að við
erum enn jafn hungraðir,“ segir
Daði Lárusson, markvörður og
fyrirliði FH, spurður um stemning-
una í herbúðum FH fyrir komandi
tímabil í Landsbankadeildinni.
TOPPURINN AÐ LYFTA
BIKARNUM
Daði er uppalinn FH-ingur og hann
segir það hafa verið toppinn á ferl-
inum þegar hann lyfti sjálfur
Íslandsmeistarabikarnum á loft í
fyrra en hann tók við fyrirliða-
bandinu af Heimi Guðjónssyni
sem lagði skóna á hilluna fyrir síð-
asta tímabil og skellti sér í þjálf-
aragallann. „Þegar ég lyfti bikarn-
um á loft leið mér ótrúlega vel.
Þetta varð allt svo raunverulegt.
Þetta var hlutur sem var afskap-
lega fjarlægur þegar ég lék í yngri
flokkunum enda var FH á þeim
tíma ekki þekkt fyrir að vinna
titla,“ segir Daði, sem er eini leik-
maður FH sem hefur spilað alla 54
leiki liðsins á þessum þremur
Íslandsmeistaratímabilum.
SAMSTILLTUR HÓPUR
FH-ingar hafa að sönnu borið ægis-
hjálm yfir önnur lið á Íslandi und-
anfarin þrjú ár undir stjórn Ólafs
Jóhannessonar og Daði segir þátt
Ólafs vera gífurlega mikilvægan.
„Það er í raun lyginni líkast að
þjálfaranum hafi tekist að halda
hópnum saman og hafa alla góða.
Honum hefur tekist að halda
mönnum á tánum öll þessi ár og
það sama er uppi á teningnum í ár.
Það er svo margt sem þjálfarinn
þarf að huga að og hann hefur séð
til þess að hópurinn sé samstilltur.
Það standa allir þétt við bakið hver
á öðrum og menn sýna á stundum
ótrúlega þolinmæði. Það er held ég
helsti styrkur FH-liðsins að leik-
menn hugsa fyrst um liðið og síðan
sjálfa sig,“ segir Daði og bætir við
að ekki megi gleyma stjórninni og
stuðningsmönnunum.
„Stjórnin hefur staðið sig frá-
bærlega við að skapa flotta umgjörð
í kringum félagið og vöxturinn
hefur verið ótrúlegur. Í kjölfarið
hefur stemningin á vellinum aukist
til muna og það er ekki síst að taka
strákunum í Botnleðju sem settu á
fót Hafnarfjarðarmafíuna. Fyrst
voru þetta nokkrir strákar en nú er
þetta breiðfylking hóps sem styður
okkur sama hvað á dynur. Það sem
er líka skemmtilegast við stuðnings-
mennina er að þeir fagna hverjum
titli eins og hann sé sá fyrsti.“
BÍÐ EFTIR TOPPTÍMABILINU
Daði, sem er 33 ára, hefur á undan-
förnum árum skipað sér í hóp
bestu markvarða landsins með
stöðugri frammistöðu. Hann seg-
ist þó enn vera að bíða eftir sínu
besta tímabili.
„Ég er alltaf að bíða eftir topp-
tímabilinu. Ég er alltaf í því að
reyna að toppa sjálfan mig á
hverju ári enda er það hluti af því
að halda einbeitingunni ár eftir ár.
Mér finnst ég hafa farið þessi þrjú
síðustu tímabil á pari, þau voru öll
frekar svipuð. Sumir leikir voru
góðir, aðrir verri en flestir svona
þokkalegir,“ segir Daði hógværðin
uppmáluð. Og það er ekki hægt að
fá hann til að segja að hann sé besti
markvörður deildarinnar. „Þeir
sem þekkja mig vita að ég myndi
aldrei viðurkenna það. Það er fullt
af góðum markvörðum en eigum
við ekki að segja að ég sé í hópi
bestu markvarða landsins,“ segir
Daði og hlær.
MEÐ SAMNING TIL 2010
Og Daði er ekki á þeim buxunum
að hætta þótt titlunum fjölgi sem
og árunum. „Ég er með samning
við FH til 2010. Þá verð ég 37 ára
gamall. Ég ætla að klára þennan
samning með fullri reisn en síðan
verður bara að skoða árið 2011
þegar þar að kemur. Ef skrokkur-
inn er í lagi þá er aldrei að vita
hvað gerist. Eru markmenn ekki
að toppa á þessum aldri nú til
dags?“ spyr Daði og hlær.
10 sport
„LÍÐUR EINS OG VIÐ
EIGUM BIKARINN“
FH-ingar hafa orðið Íslandsmeistarar undanfarin þrjú ár.
Markvörðurinn Daði Lárusson hefur spilað alla leiki liðsins
þessi þrjú ár. Ef eitthvað er að marka hann eru FH-ingar
ekki orðnir saddir. EFTIR ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON
FH hefur unnið
Íslandsmeistara-
titilinn þrívegis á
þremur árum. Fyrst
árið 2004 þar sem
félagið tryggði sigur
í síðustu umferðinni
gegn KA á Akureyri.
Árið 2005 hafði
liðið sjaldséða
yfirburði, var 16
stigum á undan
liðinu í öðru sæti.
Í fyrra kom þriðji
titillinn þó kannski
með minnsta
glæsibragnum en
samt urðu FH-ingar
sex stigum á undan
KR-ingum.
2004 2005
2006
DAÐI LÁRUSSON
Markvörður » 54 leikir af 54
(100%) » Í byrjunarliði 54 » Vara-
maður 0 » Fyrirliði í 24 leikjum
2004
18+0/0
2005
18+0/0
2006
18+0/0
ÁSGEIR GUNNAR
ÁSGEIRSSON
Miðjumaður » 51 leikur af 54
(94%) » Í byrjunarliði 39 » Vara-
maður 12
2004
7+9/2 mörk
2005
14+3/2
2006
18+0/2
GUÐMUNDUR
SÆVARSSON
Hægri bakvörður » 51 leikur af
54 (94%) » Í byrjunarliði 48 »
Varamaður 3
2004
15+3/1
2005
18+0/0
2006
15+0/1
TOMMY NIELSEN
Miðvörður » 44 leikir af 54 (81%)
» Í byrjunarliði 44 » Varamaður 0
2004
17+0/3
2005
15+0/0
2006
12+0/1
FREYR BJARNASON
Bakvörður » 43 leikir af 54 (80%)
» Í byrjunarliði 43 » Varamaður 0
2004
17+0/1
2005
18+0/1
2006
8+0/1
ATLI VIÐAR BJÖRNSSON
Framherji » 40 leikir af 54 (74%) »
Í byrjunarliði 27 » Varamaður 13
2004
16+1/6
2005
5+9/3
2006
7+2/4
DAVÍÐ ÞÓR VIÐARSSON
Miðjumaður » 37 leikir af 54 (69%)
» Í byrjunarliði 31 » Varamaður 6
2004
2+6/0
2005
18+0/1
2006
11+0/0
» LANDSBANKADEILDIN «