Tíminn - 20.04.1980, Page 6

Tíminn - 20.04.1980, Page 6
6 t\Ot\ ft Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur Ólafsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Síöu- múla 15. Simi 86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I iausasölu kr. 230.- Askriftargjald kr. 4.500 á mánuöi. V Blaöaprent J Skynsemi í fararbroddi Talandi dæmi um þann timabundna vanda sem islenskur landbúnaður stendur andspænis eru sölu- horfur islenskra afurða á erlendum markaði. Bandarikjamenn hafa sett takmarkanir á innflutn- ing búsafurða, en i Evrópu ræður vemdarstefna Efnahagsbandalagsins. í Noregi fást 35% verðs fyrir dilkakjötið, i Sviþjóð 27% og i Danmörku 22%. Að meðaltali er gert ráð fyrir að útfluttur ostur gefi af sér um 21% af innlenda verðinu. Varðandi mjólk- urafurðir almennt er svo komið að útflutningur þeirra skilar aðeins rúmum tveimur hundraðshlut- um til bóndans sjálfs eftir að allir kostnaðarliðir hafa verið greiddir miðað við það verð sem fæst. •% Gert er ráð fyrir þvi að landbúnaðinn muni á þessu verðlagsári vanta sem næst sjö milljarða króna vegna útflutningsins, eftir að réttur til út- flutningsbóta hefur verið nýttur að fullu. í hnotskurn má segja að þessar upplýsingar gefi svipmynd af þeim mikla vanda sem bændastéttin stendur frammi fyrir. Bændasamtökin hafa fyrir löngu varað við þvi hvert rikjandi kerfi i afurðasölu- og framleiðslumálum gæti leitt, en það var loks á sl. ári sem þvi fékkst breytt á Alþingi á þá lund að unnt er að snúast gegn vandanum. Á þessu ári er hið nýja kerfi, sem kallað hefur verið „búmark á landbúnaðarframleiðsluna”, að koma til framkvæmda. Ekki þarf að efa það að framkvæmd þess verður vandaverk og mikið i húfi að ekkert beri út af. Bændur standa frammi fyrir þvi að tekjur þeirra munu skerðast, en hinu nýja kerfi er fyrst og fremst ætlað að draga úr raunveru- legri tekjuskerðingu og búa svo i haginn að hún verði ekki varanleg. Hins vegar blandast mönnum ekki hugur um það að óbreytt eldra kerfi hefði fyrr en varir leitt stór- felld áföll yfir bændur og framleiðslustöðvar land- búnaðarins. A þessu ári er stefnt að þvl að samdráttur verði I landbúnaðarframleiðslunni um sem næst 10%. Hef- ur svokallað „búmark” verið sett miðað við meðal- talsframleiðslu hvers bónda 1976-78 og gert ráð fyrir 8% skerðingu á minni bú og meðalstór en 20% á það sem fram yfir er á stærra búi. Nú skiptir öllu máli að bændur kynni sér hið nýja kerfi rækilega og bregðist rétt við þvi. Vandinn er mjög mikill, og afskaplega mikilvægt - jafnt fyrir bændur sem þjóðina — að komist verði hjá mistök- um og óvæntum áföllum. Skerðingin sem bændur standa frammi fyrir er nægilega stórfellt vandamál ein út af fyrir sig þó að við hana verði engu bætt. Og meginatriðið er að með þessum timabundna sam- drætti er verið að búa I haginn fyrir framtiðina. Einn af forystumönnum bænda orðaði þetta svo á fundi nýlega: „Við verðum að vera íslendingar til þess að axla. byrðar af kjarki, skynsemi og þeim manndómi sem bændafólki sæmir. Oft hefur árað verr hjá Islensk- um landbúnaði en nú þegar við verðum aðeins að minnka skriðinn á skútunni um sinn og fara okkur eilitið hægar með skynsemi i fararbroddi”. JS Sunnudagur 20. april 1980 Erlent yfirlit Kjartan Jónasson: Meirihlutinn vill aðra frambjóðendur Síöustu forvöð fyrir Kennedy á þriöjudag Aö morgni forkosninganna I Wisconsin lýsti Carter yfir þvl aö lausn gislamálsins væri I sjónmáli, — og vann. Samkvæmt skoöanakönnunum hlaut hann fylgi nær allra sem áttu eftir aö ákveöa sig á kjördegi. Sjaldan hafa forseta- kosningar (forkosningar) i Bandarikjunum veriö hjúpaöar jafn neikvæöum viöhorfum og um þessar mundir. Samkvæmt skoöanakönnunum þar i landi viröist helst sem menn kjósi á móti forsetaefnum fremur en aö þeir beri traust til þess fram- bjóöanda sem þeir þó kjósa. Talandi dæmi um þetta eru niöurstööur úr skoöanakönnun sem vikuritiö Time stóö nýlega fyrir. Um þaö bil 81% kjósenda telur nú aö Bandarikin séu i alvarlegum vandræöum. Meiri- hluti k jdsenda telur aö Carter og Reagan muni i nóvember næst- komandi þreyta kapp um for- setaembættiö en um 58% aö- spuröra heföu kosiö aöra og betri valkosti. Annaö er þaö sem athygli vekur I þessari og öörum nýlegum skoöanakönnunum, og þaö er sd staöreynd aö Reagan er aö skriöa fram úr Carter I keppninni um forsetaembætti. I skoöanakönnun Time t.d. kusu 44% aöspuröra *Reagan sem forseta en 43% Carter, sem fram til þessa hefur jafnan sýnt verulega yfirburöi yfir Reagan. Þessa tilhneigingu staöfestu forkosningarnar I Wisconsin þar sem kosningalög eru mjög frjálsleg og gefa mönnum kost á aö taka þátt i prófkjörum demókrata eöa repúblikana aö eigin vali og burtséö frá flokksskirteinum þeirra. 1 fyrsta skipti i 20 ár kusu fleiri hjá repúblikönum en demókrötum og þar af margt fólk úr miöstétt sem fram aö þessu heur fylgt demókrötum aö málum. Er þetta þeim mun alvarlegra fyrir Carter þar sem haft er fyrir satt aö úrslitin i Wisconsin hafi á slöustu áratug- um gefiö góöar visbendingar um hug bandariskra kjósenda og þá ekki sist demókrata. EftirUrslitin I Wisconsin hætti Jerry Brown rlkisstjóri Kali- forniu keppni aö útnefningu. Kennedy heldur hins vegar ó- trauöur áram og síöustu skoöanakannanir og for- kosningar hafa gefiö honum ör- litla bjartsýni, en likurnar á aö hann nái nægilegum fjölda kjör- manna til aö vinna Carter i slagnum um útnefningu eru hverfandi. Raunverulega er þaö aöeins tvennt sem leitt gæti til þess aö hann hlyti útnefningu. Annaö er þaö aö kjósendur sneru nú algjörlega bakinu viö Carter og Kennedy hlyti I öllum forkosningum sem eftir eru ná- lægt 70% atkvæöa. Þaö er eina leiö Kennedys til aö ná tilskild- um kjörmannafjölda þar sem Carter hefur nú þegar meira en helmingi fleiri en hann og er rúmlega hálfnaöur aö markinu á sama tima og Kennedy hefur ekki nema rúman fjóröung til- Reagan er nú sigurstranglegri en Carter samkvæmt skoöana- könnunum I Bandarlkjunum en kjósendur vildu eiga kost á öör- um frambjóöendum. skilinna kjörmanna. Hinn möguleiki Kennedys er sá aö hann sýnifljótlega yfirburði yfir Carter, vinni hann i hverjum forkosningum á fætur öörum án þess þó aö vinna tilskilinn fjölda kjörmanna. A fiokksþingi demókrata þar sem útnefning- unni yröi ráöiö yröi erfitt aö horfa fram hjá slikri staðreynd og þá gæti allt gerst jafnvel þo Carter heföi yfir aö ráöa flest- um kjörmönnum. Þegar allt kemur til alls lúta kjörmennirn- ir engum lögum öörum en eigin skoöunum og siöferöislögmál- um þegar aö útnefningunni kemur. En kæmi einhver slik staöa ur), má fullvist þykja aö útnefiiing hvort heldur væri Carters eöa Kennedys yröi eng- in fagnaöarhátið. En hvaö sem ööru liöur biöa menn nú spenntir úrslitanna á þriöjudaginn I forkosningunum I Pennsylvania. Þar er um aö ræöa stórt kjördæmi, iönaöar- og borgarsamfélag sem af reynslunni aö dæma gefur Kennedy nokkra sigurmögu- leika. 1 Pennsylvaniu er flest með Kennedy og á móti Carter og sigri Kennedy ekki þar er varla hægt aö verjast þeirri skoöunaösliku vantrausti megi hann ekki svara ööru visi en meö því aö draga sig I hlé og reyna þannig aö stuöla aö því aö einhver eining skapist um Cart- ermeöal demókrata þá mánuöi sem eftir eru uns til alvörunnar kemur I nóvember. Sigri hann hins vegar meö nokkrum mun er sá möguleiki fyrir hendi aö hjólin taki aö snúast honum i hag en i þessu forkosningakerfi Bandarikjanna hefur það marg- sýnt sig aö sá sem veröur undir I upphfi kosningabaráttunnar á sér varla viöreisnar von þaö sem eftir er þar sem kjósendur viröast fylkja sér um sigurveg- arann jafnvel þó aö hann sé aö- eins búinn aö sigra i baráttunni um einn tuttugasta af kjör- mönnum. Eítir þvi sem liöiö hefur á kosningahriöina i Bandarikjun- um hefur eflst mjög umræöa um galla kosningakerfisins en þetta kerfi á forkosningum i Bandarlkjunum er nú notaö i fyrsta skipti. Aður voru al- mennar kosningar i forkjöri mun færri og þá kosiö innan flokkanna, I flokksstjórnum og á slíkum stööum, um kjörmenn- ina. Þetta nýja kerfi er innleitt tilaðauka á lýöræöiö, en gallar þess eru augljóslega þeir aö kosningabaráttan stendur um margra mánaða skeiö og bland- ast þá allt inn 1 kosningamar, jafnvel friöur I Mið-Austurlönd- um og gislarnir I íran. Enn- fremur hefur þaö sýnt sig aö úr- slitin viörast ráöast mjög snemma i kosningabaráttunni og litiö ráörúm er ti þess aö skáka fram nýjum fram- bjóðendum síöar I slagnum. Þegar ljóst varö I slagnum að þessu sinni aö þjóöin var i raun litt spennt fyrir þeim fram- bjóöendum sem hún væntanlega mundi veröa aö kjósa á milli I nóvember en að mótfram- bjóöendur þeirra tveggja heföu hins vegar ekki styrk til þess aö skáka þeim út, komu upp hug- myndir i báðum flokkum um nýja frambjóöendur (Ford hjá repúblikönum). Ekkert varö þó úr þessu þar sem kerfiö viröist ekki nægilega sveigjanlegt til þess aö slikir menn næöu tilskildum kjör- mannafjölda. Alvarlegast er þó þaö aö saman hefur fariö löng kosningabarátta, lltt sigurviss forseti og mikil umbrot á sviöi alþjóöastjómmála. Hefur þaö sýnt sig oftar en einu sinni aö aðstaöa forsetans meö tálliti til kosningabaráttunnar og lltt sigurstranglegrar stööu hans á I þeim hefur haft áhrif til hins verra I heimi alheimspólitikur- innar. Þaö var til dæmis aö morgni kjördags i Wisconsin sem Carter lýsti þvi yfir I sjón- varpi aö lausn gislamáisins I Ir- an væri I nánd en Bandarlkin þyrftu ekki aö biöja neinn afsök- unar á athöfnum sinum i Iran, hvorki fýrr né síðar. Eftir aö fréttir um ræöu þessa bárust til lran snerist byltingarráöiö gegn BaniSadrl gislamálinu og fullyrt var aö ræöa Carters heföi veriö i fullkomnu mótvægi viö efni bréfs sem Carter hafi sent Khomeini erkiklerk, I þvi bréfi hafi a.m.k. falist hálf- gildingsa fsö kunarbeiöni.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.