Fréttablaðið - 19.05.2007, Síða 10

Fréttablaðið - 19.05.2007, Síða 10
Það sem af er þessu ári hafa 373 ökumenn verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Hvols- velli. Það er 130 ökumönnum fleira en á sama tíma í fyrra. Nær allir eru stöðvaðir á þjóðvegi eitt. „Eftir að umdæmin voru sameinuð höfum við tekið harðar á hraðakstri en áður,“ segir Sveinn K. Rúnarsson, yfirlög- regluþjónn á Hvolsvelli. Hann segir að flestir séu stöðvaðir á veginum um Mýrdalssand. Þá vekur athygli að í 110 tilfellum var um útlendinga að ræða, oftast ferðamenn á bílaleigubílum. Hafa stöðvað 373 ökumenn Minnihluti A- listans í bæjarstjórn Hveragerðis segir vinnubrögð meirihluta sjálfstæðismanna hafa leitt til 8 milljóna króna aukakostnaðar við eignarnám á beitarréttindum í landi jarðarinnar Kross. Fyrrverandi meirihluti hafði boðið 6,2 milljónir króna en ábúendur vildu 6,6 milljónir. Málið fór fyrir matsnefnd eignarnámsbóta sem úrskurðaði að bærinn ætti að greiða samtals 15 milljónir fyrir landið og í málskostnað. Minnihlutinn vill skýringar frá bæjarstjóra en sjálfstæðismenn segja vinnu- brögðin ekki óeðlileg. Beitarland á tvöföldu verði Paul Wolfowitz, bankastjóri Alþjóðabankans, til- kynnti á fimmtudag að hann myndi segja af sér í kjölfar hneykslis- máls varðandi stöðu- og launa- hækkun ástkonu hans, Shaha Riza. Wolfowitz hyggst láta af starfi 30. júní næstkomandi. Tvö ár eru síðan George W. Bush Bandaríkjaforseti skipaði Wolfowitz í embætti. Skipunin olli ólgu hjá Evrópusambandinu og fleiri ríkjum vegna aðkomu Wolf- owitz að innrásinni í Írak en hann var áður aðstoðarvarnarmálaráð- herra Bandaríkjanna. Undanfarnar vikur hefur Wolf- owitz sætt harðri gagnrýni eftir að upp komst um að Riza hafði fengið stöðu- og launahækkun eftir að hann tók við starfi. Hneykslismálið olli mikilli ónægju meðal starfsfólks bankans og þykir hafa skaðað orðstír bank- ans og tengsl hans út á við. Wolfowitz háði harða baráttu fyrir starfi sínu en sérstök rann- sóknarnefnd sem stjórn bankans skipaði úrskurðaði að hann hefði brotið reglur með aðkomu sinni að málinu. Wolfowitz fékk það þó í gegn að stjórn bankans viður- kenndi að hann bæri ekki einn alla ábyrgð. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu að George W. Bush Bandaríkjafor- seti myndi tilnefna eftirmann Wolfowitz sem fyrst svo starfsemi bankans komist í samt lag. Stjórn bankans þarf að staðfesta hvern þann sem Bush mun tilnefna. Segir af sér í kjölfar hneykslis Fjölskylduskemmtun í Grafarholtsútibúi við Vínlandsleið í dag kl. 14–16 Hlökkum til að sjá þig! • Hara úr X–factor • Stígur og Snæfríður úr Stundinni okkar • Andlitsmálun og hoppkastali fyrir krakkana • Sproti kíkir í heimsókn • Skemmtileg getraun – spennandi vinningar • Pylsur fyrir alla ÍS L E N S K A /S IA .I S /L B I 37 45 2 05 /0 7 Stórhætta hefur skapast í hesthúsahverfinu Heimsenda í Kópavogi. Verktaki er að fylla upp í tipp á svæðinu og óttast hestamenn að hestar fælist og börn lendi í slysum. Þorvaldur Sigurðsson, formaður hesta- mannafélagsins Andvara, segir að stöðug umferð sé af vörubílum að fylla á tippinn. Stórir bílar sturti fram af brúninni eða í hrúgu og jarðýta ýtir svo fram af. „Þetta var ekki svona mikið vandamál þegar bílarnir voru lengra í burtu en nú eru þeir komnir svo nærri reiðveginum. Þegar jarðvegurinn kemur hrynj- andi niður þá skynja hestarnir það sem jarðskjálfta,“ segir Þor- valdur. „Þetta er stór slysahætta. Sem betur fer hefur ekkert slys orðið en ef þetta heldur svona áfram þá er það ekki spurning hvort, heldur hvenær.“ Stefán L. Stefánsson, deildar- stjóri hjá Kópavogsbæ, segir að unnið sé að gatnagerð fyrir nýtt hesthúsahverfi. Bæjaryfirvöld hafi átt fundi með hússtjórn Heimsendahverfis og skýrt ástand mála. Reynt sé að fara eftir athugasemdum. Því hafi verið beint til verktaka að fleyg- vinna verði ekki í gangi seinni part dagsins og verktakar taki fullt tillit til hestamanna. Kvört- un hafi borist vegna þess að vöru- bíll hafi sturtað jarðvegi í átt að reiðstíg „og það var náttúrulega stoppað snarlega“. Hestamenn vilja að verktakinn taki meira tillit til þeirra og geri hlé seinnipart dags meðan riðið er út. Hestarnir skynja raskið sem jarðskjálfta
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.