Fréttablaðið - 19.05.2007, Síða 29

Fréttablaðið - 19.05.2007, Síða 29
Þessi litla saga um fyrirgefningu í íslenskri stjórnmálasögu á senni- lega nokkurn þátt í því að stjórn- málamenn hafa verið tregir til að biðja hver annan afsökunar eða fal- ast eftir afsökunarbeiðnum. Við vorum boðin í skírnarveislu í dag. Systursonardóttir mín, ef það orð er þá til, var til skírnar borin í Háteigskirkju og var skírð Birna Mjöll. Enginn organisti var við athöfn- ina, en það kom ekki að sök því að presturinn, séra Helga Soffía hefur svo fallega söngrödd að annað eins hef ég ekki heyrt í kirkjum lands síðan síra Þorsteinn heitinn Björns- son söng í Fríkirkjunni fyrir margt löngu. Ég spái því þegar Birna Mjöll skírir börnin sín verði Framsókn- arflokkurinn fyrir löngu risinn upp úr sínum andlegu og líkamlegu veik- indum og búinn að finna aftur löngu gleymd stefnumál sín og eigi falleg heimili bæði í borg og sveit og hafi á nýjan leik lært að treysta óbreytt- um flokksmönnum sínum, sem sé þá kúnst að hlusta á grasið gróa. Það eru fleiri en stjórnmálamenn sem eiga það til að vera ekki vand- ir að meðulum. Það er dapurlegur og ljótur leikur að nota sjúklinginn Lalla Johns í auglýsingu Öryggis- miðstöðv- arinnar. Það er hrein og klár mann- vonska að notfæra sér neyð annarra. Ég skora á alla sem eru í við- skiptum við þetta fyrir- tæki að hugsa sinn gang og velta því fyrir sér hvort ekki sé vitlegra að beina við- skiptum til einhvers sem hefur vott af siðferðisþroska. „Himinn og haf“ heitir víst auglýsingastofan sem fékk þessa smekklegu hugmynd. Gott að vita það fyrir þá auglýsing- endur sem sækjast eftir því að fá al- menningsálitið upp á móti sér. Ég skil vel að nú er fengitíminn hjá stjórnmálaflokkunum og for- menn þeirra langar til að sýna mann- dóm sinn með því að belgja sig út til marks um að þeir kunni öll trixin í faginu. Eflaust er tilgangur Geirs með yf- irlýsingum um að stjórnin sé ekki fallin sá að sýna öðrum flokkum að hann þurfi í rauninni ekkert á þeim að halda, svo að þeir geri ekki óraun- hæfar kröfur þegar til þeirra verð- ur leitað. En yfirlýsing um að stjórn D og B geti setið áfram finnst mér álíka trú- verðug og ef einhver lýsti því yfir að hann ætlaði að ganga með ömmu sinni á Everest – þegar allir vita að amman er í öndunarvél. Þessi flensa sem ég fékk um helg- ina ætlar ekki að gera það enda- sleppt við mig. Ég búinn að vera með skelfilega verki í beinum og liðamót- um síðan ég stóð upp úr flensunni, og nú gat ég bara ekki staðið lengur á löppunum. Í kvöld var ég lagður inn á Land- spítalann, bráðamóttöku ofan í kjall- ara við Eiríksgötu. Ég er hér í sex eða átta manna stofu. Sé það ekki ná- kvæmlega af því að stofunni er skipt niður með bláum tjöldum sem eru dáldið sjúskuð og á sífelldri hreyf- ingu eins og leiktjöld á fjörugri leik- sýningu. Hér er algert jafnrétti í reynd. Konur og karlar í einni kös. Ég er lukkunnar pamfíll og hef ekki yfir neinu að kvarta. Ég var að fá mitt einkahorn í alvöru sjúkra- stofu. Aðeins þrír aðrir hér inni hafa aðgang að 90° horni. Frammi á gangi liggur fullt af fólki sem er svo óheppið að veikjast á eftir mér. Það getur þó haft sína kosti. Ef maður liggur á ganginum er sennilega betra útsýni yfir starf- semi deildarinnar og hugsanlega betri aðstaða til að ná læknisfundi ef maður hefur verið nógu forsjáll til að taka með sér háf eða krókstjaka. Hér eru gerð á mér hjartalínu- rit, ómanir, speglanir, teknar blóð- prufur, þvagprufur. Ég er tengd- ur við súrefni, mælitæki og ýmiss konar hátæknibúnað svo að ég get ekki ímyndað hvað vantar upp á að þetta sé hátæknisjúkrahús. Nema kannski breikka gangana svo að fleiri sjúklingar geti legið á þeim og starfsfólkið samt komist leiðar sinnar. Ég svaf alveg dásamlega í nótt. Reyndar vaknaði ég til að öfunda konuna í næsta rúmi af því hvað hún hraut einstaklega vel og hraustlega. Ég reyni að finna betri svefn- stellingu. Við bröltið slít ég af mér einhverja víra sem tengja mig við mælitæki. Þetta sjá næturhjúkk- urnar og koma á harðaspretti. Þær spyrja hvort ég vilji fá eitt- hvað til að geta sofið. Ég bendi á konuna sem hrýtur og bið um að fá það sama og hún –- kannski aðeins meira. Og eftir augnablik er ég sofnaður aftur. Mér er færð- ur morgunmat- ur í rúmið eins og á besta hóteli og svo fara að tínast að mér læknar og sérfræðingar til að kynna rannsóknarnið- urstöður úr honum ýmsu kjördæmum líkamans. Rökstuddur grunur beinist að illvígum bakteríum sem heita því ljóta nafni streptókokkar sem eru taldir hafa átt sök á hálsbólgu, beinverkjum og vanlíðan um síðustu helgi. Sjúk- dómsgreiningin er gauklabólga eða nýrnabólga. Góðu fréttirnar eru að þetta lag- ast – yfirleitt. Vondu fréttirnar eru að það tekur nokkrar vikur eða nokkra mánuði að komast til sæmi- legrar heilsu – ef það tekur þá ekki lengri tíma. Klukkan hálffimm fæ ég að fara heim. Næ ekki að kveðja neinn til að þakka fyrir mig. Það er verið að hátta nýjan sjúkling ofan í rúmið mitt og verið að skipta um sængurföt á rúminu sem losnaði á ganginum. Sem betur fer eru engar biðraðir á planinu fyrir utan spítalann. Ég er með handskrifuð fyrir- mæli, tímabókun hjá Arnóri gigt- arlækni næstkomandi þriðjudag, og lyfseðla upp á vasann þegar frú Sólveig kemur að sækja mig. Það eina sem mér finnst vanta upp á að Landspítalinn sé hátæknisjúkrahús er betra kaffi. Góðar kaffivélar kosta frá 50 til 100 þúsund kall. Nú sé ég í netfréttum að Geir er hættur í áfallahjálpinni, búinn að skrúfa fyrir öndunarvélina og hætt- ur við að þræla Jónka upp á Ever- est með sér. Geir er farinn að vinna fyrir kaup- inu sínu og huga að því að mynda hér almennilega og starfhæfa ríkis- stjórn. Með Samfylkingunni. Það finnst mér skynsamlegt og ég heiti ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar fullum stuðningi fyrstu tíu dagana. Svo sný ég mér aftur að mínum skylduverkum. Í stjórnarandstöðu! Gangi ykkur allt í haginn! 3.590.000kr. Ertu ekki örugglega í þotuliðinu? Það er klassi yfir Saab 9-3 ARC bílunum, enda á Saab sér áratugalanga sögu sem einn stílhreinasti og öruggasti bíll sem völ er á. Saab 9-3 er margverðlaunaður bíll þar sem öryggi og mýkt í akstri eru í fyrirrúmi. Stórkostleg hönnun, öflug vél og ríkulegur staðalbúnaður gera Saab 9-3 að góðum kosti fyrir þá sem gera miklar kröfur! Komdu og reynsluaktu, finndu muninn! Saab 9-3 ARC
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.