Fréttablaðið - 19.05.2007, Side 30
Guðjón Sigmundsson, betur
þekktur sem Gaui litli, er
fimmtugur í dag. Gaui verð-
ur staddur á Snæfellsnesi
á afmælisdeginum þar sem
ljósmyndatökur standa yfir
fyrir bandarísk tískufyrir-
tæki. Heldur Gaui utan um
hópinn, sem í eru 45 manns.
Í kvöld ætlar Gaui að gista
á Hótel Glym í Hvalfirði en
fer síðan aftur til starfa á
Snæfellsnesinu í fyrramál-
ið. „Glymur er eitt af mínum
uppáhaldshótelum því það er
fallegt og býður upp á góðan
mat og þjónustu. Ég verð
þarna með stórfjölskyld-
unni og ekki með neina stór-
veislu,“ segir Gaui, sem bauð
tvö hundruð manns í fertugs-
afmælið sitt sem hann hélt á
Fjörukránni í Hafnarfirði.
„Það er alltaf spurning fyrir
hvern maður er að halda af-
mæli. Það varð ofan á að
eyða þessu svolítið í mig,
ég ætti það kannski inni hjá
sjálfum mér.“
Gauja líst vel á að vera
kominn á sextugsaldurinn
en segist núna í fyrsta skipti
vera farinn að hugsa um ald-
urinn. „Þegar maður er orð-
inn fimmtugur fer maður
að hugsa dálítið fram á við.
Ég á kannski 25 til 30 ár
eftir og mér finnst núna að
maður þurfi svolítið að huga
að því að eyða þessum árum
í sátt og samlyndi við menn
og mýs og halda heilsunni.
Maður verður að huga að því
að geta hreyft sig og verið
heilsusamlegur fram í and-
látið. Það þarf að setja það í
forgang,“ segir hann.
Gaui segist vera við góða
heilsu um þessar mundir
enda hafi hann verið dugleg-
ur við að æfa í vetur. „Ég held
að þessi tímamót skipti sköp-
um. Fyrir tíu árum hljómaði
þetta hjá mér: „Allt er fer-
tugum fært“ en núna er rétt-
látari og skynsamari tónn í
mönnum.“
Auglýsingar sendist á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
„Íhaldið hefur alltaf verið karlrembu-
svínastía og það breytist ekki nema með
hormónagjöf.“
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
Guðrúnar Jónasdóttur
frá Öxney (Guðrúnar í Galtarey)
Sérstakar þakkir fyrir frábæra umönnun færum við
starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi.
Hreinn Jóhannsson Geirþrúður Kjartansdóttir
Sigríður Jóhannsdóttir Reynir Vilhjálmsson
Brynja Jóhannsdóttir Þorvaldur Ólafsson
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Ólafur Auðunsson
frá Ysta-Skála, til heimilis að Stuðlaseli 15,
lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn
17. maí.
Áslaug Ólafsdóttir
Guðrún Ólafsdóttir
Auður Ólafsdóttir Guðmundur Tryggvi Sigurðsson
Ólafur Haukur Ólafsson Sigrún Konráðsdóttir
Þorri Ólafsson Guðný Gísladóttir
og barnabörn.
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Brynleifur Jóhannesson
bílamálarameistari, Stekkjargötu 81, Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn
15. maí. Jarðarförin auglýst síðar.
Lilja Markúsdóttir
Jón Axel Brynleifsson Ingunn Sigurðardóttir
Brynja Brynleifsdóttir Mallios Phillip Mallios
Jóhann Brynleifsson Sigríður Garðarsdóttir
Karl Brynleifsson Jónína Skaftadóttir
Tóbías Brynleifsson Margrét Jónsdóttir
Jósep Brynleifsson Melanie Brynleifsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, amma, tengdamóðir
og systir,
Agatha Sesselja
Sigurðardóttir
lést á Landspítalanum við Fossvog þann 15. maí sl.
Útför verður auglýst síðar.
Jóhanna Baldursdóttir
Stefanía Ellý Baldursdóttir
Sigrún Baldursdóttir
tengdasynir, barnabörn og systkini.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðni A. Ólafsson
Núpalind 2, Kópavogi,
andaðist á Landspítala háskólasjúkrahúsi Fossvogi
miðvikudaginn 16. maí. Útförin verður auglýst síðar.
Valgerður Á. Blandon
Ingibjörg Unnur Guðnadóttir Ragnar Sigurðsson
Valgerður Selma Guðnadóttir Guðbjörn Björgólfsson
Þorbjörg Guðnadóttir Helgi S. Reimarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir,
bróðir, afi og langafi,
Oddgeir Halldórsson
Ferjubakka 8, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
11. maí. Jarðarför fer fram frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 22. maí kl. 13.00.
Sigurbjörg Guðvarðardóttir
Hörður Oddgeirsson Kristín Hafsteinsdóttir
Hanna Halldórsdóttir
Rúna Halldórsdóttir
Oddur Halldórsson
Guðrún Halldórsdóttir
og afabörn.
Róbert Kárason,
Frostafold 6, Reykjavík, áður til heimilis
að Ásgarði á Svalbarðsströnd,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut
þriðjudaginn 15. maí sl. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju fimmtudaginn 24. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd.
Hlíf Harpa Róbertsdóttir
Arna Vala Róbertsdóttir Elías Már Hallgrímsson
Páll Róbertsson Auður Sólmundsdóttir
Heiðdís Ellen Róbertsdóttir
Arnfríður Róbertsdóttir
og barnabörn.
Ástkær sonur minn, bróðir okkar og
mágur,
Ásþór Sigurðsson
verkstjóri, Garðarsbraut 77, Húsavík,
andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 15. maí síðastlið-
inn. Jarðarförin tilkynnt síðar.
Jóhanna Sigfúsdóttir
Ólafur Ármann Sigurðsson Þórunn Ástrós Sigurðardóttir
Guðrún Sigurðardóttir
Óðinn Sigurðsson
Edda Sigurðardóttir Jón Pétursson
Margrét Sigurðardóttir Árni Grétar Gunnarsson
Klara Valgerður Sigurðardóttir Hafliði Jónsson
Þórsteinunn Rut Sigurðardóttir
AFMÆLI