Fréttablaðið - 19.05.2007, Síða 36
Skoda Octavia sigraði í spar-
aksturskeppni FÍB og Atlants-
olíu. Meðal keppenda var Ford
GT.
Þegar kemur að mótorsporti er
fólk duglegt að finna óteljandi
leiðir til að keppa. Ein þeirra er að
eyða sem minnstu bensíni og um
það snýst sparaksturskeppni FÍB
og Atlantsolíu.
Keppnin fór þannig fram að lagt
var af stað frá plani Húsgagna-
hallarinnar í Ártúnsbrekku til
Þingvalla um Mosfellsdal. Þaðan
beinustu leið niður á Selfoss, svo
til Eyrarbakka og að lokum um
Þrengslin aftur á upphafsreit. Sá
sem eyddi minnstu bensíni vann.
Eins einfalt og það verður.
Sigurvegari keppninnar var
Ragnar Borgþórsson á Skoda Oct-
avia 1,9 l TDI dísil. Hann eyddi
3,51 lítra á hundraðið sem verður
að teljast frábær árangur. Í öðru
sæti var Brynjar S. Þorgeirsson
á Ford C-Max en hann eyddi 3,75
lítrum á hundraðið. Þess má geta
að í þjóðvegaakstri gefur Ford upp
að C-max eyði 7,2 lítrum á hundr-
aðið. Í þriðja sæti var svo Eiríkur
Einarsson á Toyota Auris D4D, en
Auris er arftaki Corollu.
Mikla athygli vakti þátttaka
Gísla G. Bjarnasonar á Ford GT.
Þrátt fyrir að vera upprunalega
hannaður fyrir þolaksturskeppnir
telst GT seint til sparneytnari bíla,
enda 550 hestöfl. Gísla tókst þó að
koma eyðslunni niður í 11,31 lítra
á hundraðið og er því ótvíræður
sigurvegari er litið er á eyðslu á
hvert hestafl.
Octavia sigraði
B&L frumsýnir í dag Freeland-
er 2 frá Land Rover.
B&L frumsýnir aðra kynslóðina af
Land Rover Freelander í dag. Um
verulegar breytingar er að ræða á
milli kynslóða, bæði hvað útlit og
búnað snertir, auk þess sem Free-
lander 2 kemur á markað hér á
landi í séríslenskri sport-útgáfu.
Íslenska útgáfan er búin út með
hliðsjón af búnaðarstigi sport-
jeppa í lúxusflokki. Meðal staðal-
búnaðar er ný TD4 2,2 l dísilvél
sem skilar 160 hestöflum og 400
Nm togi.
Útlitslega ber nýja kynslóðin
augljósan Land Rover ættarsvip
og leynir skyldleikinn við Range
Rover Sport og Discovery sér því
ekki. Þess má geta að Freelander 2
er eini jeppinn í sínum flokki sem
hlotið hefur fimm stjörnur frá
Euro NCAP fyrir öryggi farþega.
Frumsýningin stendur frá kl 12
til 16 í sýningarsal B&L að Grjót-
hálsi. Í tilefni dagsins hefur í sam-
vinnu við Bandalag skáta verið
komið upp níu metra háum klifur-
vegg fyrir framan söludeild Land
Rover og er gestum og gangandi
boðið að spreyta sig á því skemmti-
lega verkefni að klífa vegginn.
Freelander 2
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4 • SÍMI 562 6066
SUMARDEKK
HEILSÁRSDEKK
OLÍS SMURSTÖÐ
BÓN OG ÞVOTTUR
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
RAGEYMAÞJÓNUSTA
BREMSUKLOSSAR
PÚSTÞJÓNUSTA
Japan/U.S.A.
STÝRISENDAR,
SPINDILKÚLUR
OG FÓÐRINGAR
í jeppa í miklu úrvali
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000