Fréttablaðið - 19.05.2007, Page 42

Fréttablaðið - 19.05.2007, Page 42
hús&heimili Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar, Skaftahlíð 25, 105 Reykjavík, sími: 550-5000 Ritstjórar: Kristín Eva Þórhallsdóttir kristineva@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid. is. Auglýsingar: Anna Elínborg Gunnarsdóttir, 550-5806, aeg@365.is Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is. Forsíðumynd: Nordic photos/Getty images „Við hjónaleysin fórum í búð með notuð húsgögn í Kópavogi að leita að einhverju allt öðru. Ég man nú ekki hvað það var en það var eitt- hvað mjög mikilvægt sem okkur vantaði,“ segir Katrín og bætir því við að þá hafi þau rekist á þetta sófasett. „Við áttum nátt- úrlega ekki eina einustu krónu þannig að það var stór ákvörðun að taka upp kreditkortið, strauja það og fjárfesta í þessu,“ segir hún og hlær. „Sófasettið er búið að vera hjá okkur núna í tvö ár og þetta er besta fjárfestingin sem við gerð- um þegar við fluttum. Það kost- aði 40.000 krónur og við náðum að greiða það þetta sama ár,“ segir Katrín hlæjandi. „Það er svo erfitt þegar maður á engan pening að vera að eyða í eitt- hvað svona en við höfum þakkað fyrir það æ síðan að hafa keypt sófasettið. Það er mjög þægilegt og einstakt,“ bætir hún við. „Það eina sem við þurftum að gera var að styrkja botninn því hann var orðinn dálítið siginn.“ Katrín segir settið vera frá árinu 1960 og hafa verið í eigu sömu fjölskyldu þannig að það hafi verið ótrúlega vel með farið. „Hvort sem við erum með boð eða að horfa á sjónvarpið, lesa bók eða eitthvað þá er sófasettið alltaf notað þannig að það er bara hjarta heimilisins,“ segir alþingismaður- inn Katrín Jakobsdóttir. - sig Hjarta heimilisins Katrín Jakobsdóttir, nýkjörinn alþingismaður, segir sófasettið hennar vera uppáhalds- hlutinn á heimilinu. Katrín Jakobsdóttir alþingismaður situr í sófanum með syninum Jakobi. Sófasettið er uppáhaldshlutur Katrínar á heimilinu enda segir hún settið vera hjarta heimilisins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1. Tekanna og bolli sem saman mynda eina heild. Þegar ekki er verið að nota bollann er hægt að sestja tekönnuna ofan á hann. Sniðugt fyrir einyrkjann. Fæst í Söstrene Grene á 421 kr. 2. Telaufin þarf að geyma á þurr- um stað. Box eins og þetta henta því einstaklega vel. Söstrene Grene, 199 kr. 3. Svartur teketill úr þungum málmi. Það ætti ekki að skvettast svo auðveldlega upp úr þessum gæðalega katli sem fæst í Líf og list á 8.460 kr. 4. Teketill frá Beehouse. Falleg hönnun og fæst í nokkrum litum. Þá er sniðugt að fá grind undir ketilinn til að halda honum heit- um. Fæst í Te og kaffi á 4.120 kr. Fáðu þér sopa Tedrykkja á sér aldalanga hefð. Hinn vestræni heimur er löngu kolfallinn fyrir drykknum góða og svolgrar í sig grænu, ávaxta-, kamillu- og jurtatei. Tekatlar eru því ómiss- andi hlutir í tilveru tedrykkjumannsins. 1 3 4 2 19. MAÍ 2007 LAUGARDAGUR2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.