Fréttablaðið - 19.05.2007, Side 44

Fréttablaðið - 19.05.2007, Side 44
hús&heimili SÉRHÖNNUÐ OMMILETTU- PANNA veitir nýja sýn á matreiðslu þessa morgunverðar meistarans. Eggin festast ekki við pönnuna og ekki þarf að hafa áhyggjur af því að snúa pönnukökunni því pannan er jú tvöföld, þú ein- faldlega snýrð henni við. Herra Eggbert er líka voða sætur og hægt er að fá handþeytara í sama stíl. Pannan kostar 2.990 krónur en þeytarinn 799 krónur. Fæst í Debenhams. Verbúð 8 við Geirsgötu, 101 Reykjavík, Sími 553 1500Opið 7-21 alla daga vikunnar G S æ g r e i f a n s Humarsúpa r i l l ve is l a Fiskur á grillið Hin fullkomna humarsúpa samkvæmt New York Times Hinar vinsælu dönsku bókahillur komnar aftur Tekk - Kirsuberja - Hlynur Hringið og biðjið um mynda- og verðlista „Kollarnir endurspegla persónu- leika þriggja kvenna sem tengjast mér sterkum böndum. Mig lang- aði að vinna með þrjár kynslóð- ir kvenna og gera húsgögn sem táknuðu persónuleika þeirra,“ segir Anna Þórunn Hauksdóttur, nýútskrifaður vöruhönnuður, frá Listaháskóla Íslands. Fyrsti kollurinn er gerður eftir persónuleika langömmu Önnu sem var fædd árið 1867. Hún var af þeirri kynslóð sem klæddist upphlut daglega og bar skart úr víravirki. Kollurinn er svartur með ein- faldar línur og skartar kýr með fallegu víravirki eftir Helgu Ósk Einarsdóttur gullsmið. „Lang- amma var fátæk og barnmörg. Þau þurftu að þiggja af sveitinni en áttu þó eina mjólkurkýr sem var þeim afar dýrmæt. Víravirkið minnir mig á styrk og þrautseigju kvenna. Er fíngert og hefur sterka byggingu,“ segir Anna Þórunn. Annar kollurinn er rósótt- ur ruggukollur með prjónuðum hnöppum. Hann er eftir ömmu Önnu Þórunnar, sem fæddist 1907. „Amma var stórgerð, hlýleg og glaðleg kona. Hún bjó í sveit og var mjög gestrisin og yndisleg. Hún hafði alltaf tíma fyrir barna- börnin og réri með okkur í fang- inu á meðan hún söng og sagði sögur. Síðan prjónaði hún stans- laust dúkkuföt og þessvegna eru prjónaðir hnappar á kollinum,“ segir Anna sem er mikill fagur- keri eins og stóra systir hennar sem á þriðja kollinn. „Systir mín er grannvaxin og falleg kona. Ávallt vel til höfð á háum hælum. Hún er dugleg og fylgin sér og sannkölluð nútíma- kona sem sinnir bæði frama og fjölskyldu. Síðan er hún mjög hjátrúarfull, svo ég setti dem- ant í setuna, því hann á að vernda gegn öllu illu,“ segir Anna Þór- unn. Stólarnir eru allir til sölu og Anna Þórunn tekur einnig að sér að gera kolla eftir persónuleika fólks ef þess er óskað. Kollarnir eru til sýnis á út- skriftarsýningu Listaháskóla Ís- lands í Kartöflugeymslunni við Ártúnshöfða sem stendur til 27. maí. Sýningin er opin alla daga milli klukkan 12.00-18.00. rh@frettabladid.is Minni kvenna í nútímalegri hönnun Þrjár kynslóðir kvenna eru hugmyndin á bak við útskriftarverkefni Önnu Þórunnar Hauksdóttur vöruhönnuðar. Þrjár kynslóðir kvenna endurspeglast í hönnun Önnu Þórunnar Hauksdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 19. MAÍ 2007 LAUGARDAGUR4

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.