Fréttablaðið - 19.05.2007, Qupperneq 70
var frumsýnd. Myndin er stjörn-
um prýdd og því mikið um að
vera á rauða teppinu þegar Jake
Gyllenhall, Chloe Sevigny, Mark
Ruffalo, Robert Downey Jr. og
læknirinn vinalegi úr ER, Anthony
Edwards, mættu á teppið.
David Fincher sló í gegn með
myndinni Se7en árið 1995 og
stimplaði Brad Pitt inn á kortið.
Á eftir fylgdi myndin Fight Club
sem náði hálfgerðum költ-status og
Panic Room. Zodiac er sannsögu-
leg mynd og fjallar um raðmorð-
ingjann fræga í San Francisco á
sjöunda áratugnum sem kallaði sig
Zodiac og skrifaði bréf til helstu
dagblaða á svæðinu. Jake Gyllen-
hal átti þarna stórleik og hefur náð
að stimpla sig inn sem einn mikil-
vægasti leikarinn af hans kynslóð
eftir Óskarsverðlaunatilnefningu
fyrir Brokeback Mountain í fyrra.
Zodiac hefur fengið mikið lof
gagnrýnenda og þykir besta mynd
Finchers, jafnvel of fullkomin.
Seinna um kvöldið var síðan rúm-
enska myndin 4 Months, 3 Weeks and
2 Days eftir Christian Mungiu frum-
sýnd, en hún fær góða dóma gagn-
rýnanda. Ekki var samt mikið um
húllumhæ á rauða dreglinum þegar
sú mynd var frumsýnd og greini-
legt að í Cannes eins og annars stað-
ar eru það Hollywood-stjörnur sem
draga að sér mesta athyglina. Ekki
fer mikið fyrir tali um góða lýsingu,
kvikmyndatöku og klippingu sem
heyrist oft á kvikmyndahátíðum þar
sem kvikmyndanördar koma saman
heldur eru það stjörnur, stjörnur og
aftur stjörnur sem skipta máli.
Nú þegar hafa líka verið frum-
sýndar í keppninni franska myndin
Les chanson d’amour eftir Christop-
he Honoré og rússneska myndin Iz-
gnanie eftir Andrei Zvyagintsev. En
keppnin er enn þá komin of stutt af
stað og of snemmt er að segja til um
hvaða myndir eru sigurstrangleg-
astar. 22 myndir taka þátt í keppn-
inni. Meðal annarra er Emir Kustur-
ica mættur aftur til leiks með Prom-
ise Me This og Gus Van Sant með
Paranoid Park. Íslandsvinurinn Qu-
entin Tarantino á mynd í keppninni,
Death Proof, þar sem hryllingurinn
heldur áfram og spennandi að sjá
hvernig honum verður tekið í Cann-
es. Fatih Akin sem sló í gegn með
Head On árið 2004 og vann Berl-
ínarbjörninn reynir nú við Gull-
pálmann. Rússinn Alexander Sok-
urov var heiðursgestur Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðarinnar í fyrra og
er núna með myndina Alexandra í
keppninni.
Cannes virðist vera að velja leik-
stjóra þetta árið sem áður þóttu of
avant-garde fyrir Cannes og er Sok-
urov einn þeirra. Hátíðin reynir
að hafa meira listrænt gildi þó að
Hollywood-stjörnurnar og markað-
urinn fái ennþá mestu athyglina.
Joel og Ethan Cohen-bræður eru
nokkurs konar eftirlætissyn-
ir Cannes og snúa aftur með það
sem þeir þekkja best, þunglyndis-
lega mynd sem þeir kalla Paranoid
Park og fjallar um hjólabrettastrák
sem drepur óvart öryggisvörð. Þeir
gagnrýnendur sem hafa séð mynd-
ina segja hana jafnvel bestu mynd
þeirra, eftir nokkrar frekar mis-
heppnaðar tilraunir til að gera grín-
myndir á borð Oh Brother Where
Art Thou. Joel og Ethan mættu
fyrst á Cannes 1987 með aðra mynd
sína Arizona Junior, 1991 unnu þeir
Gullpálmann fyrir Barton Fink,
árið 1996 unnu þeir bestu leikstjórn
fyrir hittarann Fargo og aftur 2001
fyrir The Man Who Wasn´t There.
Þeim verður því vafalaust vel tekið
í Cannes þetta árið.
Stemningin í Cannes er engri lík.
Cannes er lítill strandbær í Suður
Frakklandi og ekki margar kvik-
myndahátíðir sem fara fram niður
við strönd í sumar og sól. Cann-
es er líka hátíð ríka fólksins, skút-
ur og snekkjur liggja alls staðar við
höfnina og það þykir fínt að koma
til Cannes, gista á ofurdýrum hótel-
um og klæða sig upp í ofurfína kjóla
til að fara í bíó. Það fer enginn inn á
rauða dregilinn nema í sínu fínasta
pússi.
Cannes er stærsta kvikmynda-
hátíð í heimi og markaðurinn í
kringum hana er risastór. Þar má
sjá fólk „víla og díla“ allan daginn.
Þar eru framleiðslufyrirtæki sem
keppast við að selja myndirnar
sínar og allir eru sveittir í síman-
um allan daginn. Þannig er Cann-
es sambland af artí-kvikmyndhátíð
og amerískri hátíð því bransagaur-
arnir eru úti um allt. Áhorfend-
ur og aðdáendur flykkjast á há-
tíðina og fyrir utan höllina má sjá
slagsmál um miða því færri kom-
ast að en vilja og ekki auðvelt fyrir
almúgann að komast inn í höll-
ina Festival de Palais. Úti um allt
eru ljósmyndarar tilbúnir að taka
myndir þegar næsta stjarna sést
labba niður götuna og á kvöldin er
mikið líf og fjör út á götu og partí-
ið heldur að sjálfsögðu áfram langt
fram á nætur. Hér eru endalaus
boð og partí.
Meðfram ströndinni á La Crois-
ette þar sem höllin stendur er
troðið af fólki sem smeygir sér
um milli pálmatrjáa með tilheyr-
andi hamagangi og látum. Þar má
sjá stjörnur jafnt sem „wanna-
bes“, stelpur uppstrílaðar
reyna að láta taka eftir sér og
keppast um athygli ljósmynd-
ara sem eru úti um allt. Hér
er líka ríka og fallega fólkið,
venjulega fólkið sem gengur
samt um í Gucci og Louis Vuitt-
on eins og ekkert sé sjálfsagðara,
gistir á lúxushótelum eða á risa-
snekkjunum sem setja svip sinn
á frönsku Rivíeruna. Sumir koma
til Cannes og fara aldrei í bíó, þeir
eru of uppteknir við að samning-
ana, hanga á barnum og að mæta
í partíin.
Í heimi fræga fólksins þykir líka
fínt að láta sjá sig í Cannes og þess
vegna má sjá stjörnur eins og Jess-
ica Simpson mæta upp úr þurru og
djamma með Jude Law og Noruh
Jones í frumsýningarpartíinu.
Með aukinni ásókn í land og fjölbreyttari nýtingu þess
er mikil þörf á fagfólki sem hefur víðtæka þekkingu á
náttúru Íslands og sjálfbærri nýtingu hennar. Við
Landbúnaðarháskóla Íslands er boðið upp á nám í
náttúru- og umhverfisfræði. Áhersla er lögð á náttúru
Íslands, áhrif mannsins á umhverfið, sjálfbæra nýtingu
náttúrugæða og náttúruvernd.
Námið er góð undirstaða undir allt framhaldsnám í
náttúruvísindum. Það hentar vel fyrir margvísleg störf
að umhverfismálum sem krefjast sérþekkingar á
íslenskri náttúru, s.s. umsjón, stjórn og skipulag
umhverfismála og landnýtingar, eftirlit og umsjón
með náttúruverndarsvæðum og mat á umhverfisáhrif-
um. Einnig er námið kjörið fyrir kennslu í náttúru-
fræðum á grunn- og framhaldsskólastigi.
Nánari upplýsingar er að fá á vef LbhÍ – www.lbhi.is
Umsóknarfrestur er til 4. júní.
Náttúru- og
umhverfis-
fræði
Hvanneyri · 311 Borgarnes
Sími 433 5000 · www.lbhi.is