Fréttablaðið - 19.05.2007, Síða 82
Það er ekki hægt að segja
að lífið leiki við Harry
Bretaprins þessa dagana.
Fyrr í vikunni var ákveð-
ið að hann fengi ekki að
fara til Íraks með herdeild
sinni eins og hann óskaði.
Nú hafa yfirmenn hersins
bannað Harry að skemmta
sér á næturklúbbum.
Harry prins hefur verið fyrirskipað
að „halda sér á mottunni“. Það eru
bresk hermálayfirvöld sem skipa
svo fyrir og Harry hefur lofað því
að hlýða að þessu sinni. Fyrr í vik-
unni var ákveðið að prinsinn fengi
ekki að fara á vígvöllinn í Írak
eins og hann vildi. Nú telja yfir-
menn hans Harry fyrir bestu að
hann haldi sig frá næturklúbb-
um næsta hálfa árið eða svo,
á meðan hersveit hans er
í Írak. Ástæða þess er sú
að það þykir ekki sæma að
myndir birtist í dagblöðum
af Harry að skemmta
sér á nóttunni á
meðan félagar hans
eru í lífshættu á víg-
vellinum.
Harry hefur verið fastagest-
ur á heitustu klúbbunum í London
en verður nú að láta af þeim heim-
sóknum í bili. Samkvæmt fréttum í
breskum fjölmiðlum sættir Harry
sig við þessa ákvörðun. Hann er
eftir sem áður afar vonsvikinn
yfir því að fá ekki að berjast í Írak
og ekki bætir þetta úr sök. Harry
finnst klúbbabannið þó skiljanlegt,
öfugt við þá ákvörðun að hann þurfi
að sitja heima.
Nú er unnið að því að finna
Harry nýtt hlutverk í hernum á
meðan hersveit hans er í Írak. Eitt
af því sem þykir koma sterklega til
greina er að hann verði færður í líf-
varðasveit sem gætir drottningar-
innar, ömmu hans. „Fyrst hann fær
ekki að berjast er alveg eins gott
að skella honum á hestbak og
setja hann á vakt,“ sagði
heimildarmaður The Sun í
konungsfjölskyldunni.
Harry greyið hefur þó
fengið gleðifréttir sem
hjálpa honum að kom-
ast yfir þessi vonbrigði.
Kærasta hans, hin 21 árs
Chelsy Davy, hefur af-
lýst hluta af heims-
reisu sinni til að
vera með Harry.
Hún átti að leggja
af stað í lok mán-
aðarins en hefur
í staðinn ákveð-
ið að eyða
sumrinu með
Harry.
„Ging gang gúllí gúllí...? Jájá við
syngjum það meðal annars,“ segir
Sigurður Úlfarsson, formaður
Skátakórsins sem fagnar nú tíu
ára afmæli sínu. Og efnir til stór-
tónleika í Grensáskirkju í dag
klukkan 16 í dag. Stjórnandi kórs-
ins er Margrét Sigurðardóttir.
Skátakórinn er þrjátíu manna,
blandaður, meðlimir á aldrinum
25 til 70 ára og á efnisskránni eru
íslensk þjóðlög, kórlög og ensk
lög. Þó skátar séu, að sögn Sigurð-
ar, frægir „kassagítarmorðingj-
ar“ og kvöldvökukóngar syngj-
andi í tíma og ótíma, eru skátakór-
ar fremur sjaldgæft fyrirbæri.
„Já, við ætlum einmitt að hefja
tónleikana á því að fá gesti til að
syngja með. Skátar úr Kópavogi
koma vopnaðir kassagíturum og
efna til hópsöngs.“
Mikið stendur til hjá skátum
og Skátakórnum. Skátahreyfing-
in sjálf er hundrað ára um þess-
ar mundir. Fyrir hundrað árum
fór sjálfur Baden Powell í útilegu,
og „the rest is history“ eins og þar
stendur. Til að fagna því verður
alheimsmót skáta á Bretlandseyj-
um um mánaðamótin júlí/ágúst og
þar verður skátakórinn að sjálf-
sögðu.
„Þarna verða um fjörutíu þús-
und manns og þar af um fjög-
ur til fimm hundruð Íslendingar.
Við teljum að þarna fari einhver
stærsti æskulýðshópur sem um
getur,“ segir Sigurður hress og
kátur.
Kassagítarmorðingjar og kvöldvökukóngar
Úrslitaþáttur American Idol verð-
ur í beinni útsendingu í fyrsta sinn
á Stöð 2 næstkomandi miðviku-
dagskvöld.
„Það er orðin tímaskekkja að
bjóða ekki upp á úrslitaþáttinn í
beinni því það fer út um allt hver
vinnur keppnina. Þess vegna vild-
um við koma til móts við áhorf-
endur Stöðvar 2 á þennan þátt,“
segir Skarphéðinn Guðmunds-
son, upplýsingafulltrúi hjá 365.
„Í síðasta þætti voru 42 milljón-
ir atkvæða greiddar, sem gefur
eitthvað til kynna um stærðina á
þessu. American Idol er langvin-
sælasti þátturinn í Bandaríkjun-
um og ólíkt annars staðar í heim-
inum hefur hann orðið vinsælli og
vinsælli með hverju árinu.“
Allir sigurvegararnir í Ameri-
can Idol hafa komist á plötusamn-
ing og flestir hverjir náð miklum
vinsældum. Verður því fróðlegt að
sjá hver ber sigur úr býtum á mið-
vikudagskvöldið.
Úrslit Idol
sýnd í beinni
15%
afsláttur
aðeins í 4 daga
18 - 21 maí
Sumartískan
TAX FREE
Kringlunni s.512 1766