Fréttablaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 42
24. MAÍ 2007 FIMMTUDAGUR6 fréttablaðið gott á grillið
Sigurður Ívar Sigurðsson
og Lárus Gunnar Jónasson,
matreiðslumenn á Sjávar-
kjallaranum, sáu um grillveislu
sem haldin var á Kjarvals-
stöðum á dögunum og óhætt
er að segja að réttir þeirra hafi
slegið í gegn. Grillaður humar,
skötuselur og skelfiskur runnu
ofan í gesti, sem óspart létu
það í veðri vaka hversu góður
maturinn var. Fréttablaðið
hafði samband við Sigurð og
innti eftir uppskriftum sem
hann gaf með glöðu geði.
HUMAR Í ENGIFER MARINERINGU
20 stórir humarhalar
8 stórar skeljar af krækling
100 ml ólífu olía
100 g sushi-engifer
10 geirar hvítlaukur
timjan
kumquat
salt og pipar
Aðferð: olía, sushi-engifer og hvít-
laukur sett í matvinnsluvél og
maukað saman í marineringarlög.
Humarinn og kræklingurinn eru svo
marineraðir í þessu í tvo til fimm
tíma áður en því er raðað í grillgrind-
ina ásamt hvítlauk, timjangreinum
eða kumquati sem eru eins konar
litlar appelsínur.
Að lokum er maturinn saltaður og
olían hrist af svo grindin verði ekki
alelda.
Grillað í um það bil 2 til 6 mínútur,
eftir því hversu öflugt grillið er.
MANGÓMAÍS SÓSA
1/2 flaska hvítvín
4 msk. hunang
1 lítri mangó púrre
2 stk. grillaðir maískólfar
2 stk. mangó
1 búnt kóriander
salt
Hvítvín og hunang soðið niður um
helming, þá er mangó purre bætt út
í og soðið niður um 1/2.
Að lokum er mangó, maís og kórí-
ander skorinn út í og sósan smökkuð
til.
SKÖTUSELUR ASÍU BBQ
skötuselur
ferskur ananas
rauður chili (kjarnhreinsaður)
agúrka
vatnsmelóna
lauf
Aðferð: Skötuselurinn er mariner-
aður í asíu bbq í tvo til fimm tíma
(sjá neðar). Svo er hann vafinn inn í
bambus, banana eða hoba-lauf og
settur á pinna ásamt ananas. Smátt
skornir bitar af agúrkum og vatns-
melónum hafðir sem meðlæti.
ASÍU BBQ MARINERING
2 msk. oregano
2 msk. broddkúmen (cummin)
örlítið af sesuan-pipar
100 ml hrígrjónaedik
ein flaska af sake eða hvítvíni
örlítið mulinn svartur pipar
200 ml olía
100 ml bbq-sósa
Edikið og vínið er soðið niður með
kryddinu, sett í matvinnsluvél með
bbq sósu og olíu hellt út á.
mhg@frettabladid.is
Himneskt úr hafinu
Grillaður skötuselur og ananas á pinna.Asíu BBQ skötuselur í hoba-laufum.
Söluaðilar.: Járn og Gler ehf - Garðheimar - ECC - Húsasmiðjan - EGG www.weber.is
Kynntu þér okkar breiða úrval af Weber grillum á næsta sölustað.