Fréttablaðið - 24.05.2007, Síða 43
FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 7gott á grillið fréttablaðið
ALMENNINGSGRILL má finna víða á
höfuðborgarsvæðinu. Borgarbúar þurfa ekki
að leita langt að útigrilli þar sem vinahópar
og fjölskyldur geta komið saman og gert sér
glaðan dag.
Hér eru nokkrir tilvaldir staðir:
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Hljóm-
skálagarðurinn, Viðey og Miklatún. Í Heið-
mörk eru mörg grill. Útigrill eru á Hallarflöt,
í Vífilsstaðahlíð, Sandahlíð og í námunni í
Urriðahrauni. Í Kópavogi er stórt yfirbyggt
útigrill í Guðmundarlundi uppi á Vatnsenda.
Við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði eru tvö útigrill
sem allir mega nota og á skógræktarsvæðinu í
Hamrahlíð við Vesturlandsveg er fínt grill.
Að grilla getur boðið upp á
ýmsar matreiðsluaðferðir
aðrar en þá að henda matnum
á grillið.
GUFUGRILLUN Setjið fisk
eða grænmeti á álpappír og vefj-
ið honum svo lauslega utan um en
gætið þess að hafa loftgat svo alvöru
gufusoðning geti átt sér stað. Setj-
ið pakkann ekki á heitasta staðinn á
grillinu heldur frekar út í jaðrana svo
innihaldið sjóði hægt og vel. Þessi
aðferð gerir það að verkum að safinn
sem er í matnum helst innra með
honum og því er hvorki þörf á að
olíubera matinn né krydda hann sér-
staklega. Það má þó alveg líka.
GRILLAÐ Á TEINI Hér þarf opinn
eld, tíma og mun meiri fyrirhöfn en
við venjulegt grillstand en það er al-
gerlega þess virði öðru hvoru og
vekur gríðarlega lukku. Á teini er lítið
mál að elda heilan fugl eða stórt
lambalæri án þess að safinn leki úr.
Rekið teininn í gegnum kjötið, helst í
gegnum miðjuna þar sem jafnvægið
er best, og kjötið grillast jafnt.
REYKT GRILL Það er óskaplega
gott að hafa örlítið reykbragð af grill-
matnum. Hægt er að fá viðarkurl úr
ýmsum trjátegundum, sem gefur
gott bragð. Gott er að bleyta upp í
kurlinu í svona klukkustund og strá
því svo yfir kolin. Þá kviknar síður í
kurlinu en reykurinn verður þeim
mun meiri og bragðið þar af leiðandi
líka. Það er líka gott að strá ferskum
kryddjurtum yfir kolin áður en elda-
mennskan hefst, til að fá aðeins
öðruvísi en alveg jafn gott bragð af
grillmatnum góða.
Grillað
á ýmsa
vegu
Fisk má gufusjóða á grillinu.
OLÍA Á GRILLIÐ
Með því að bera olíu á grindina á
grillinu er hægt að koma í veg fyrir að
maturinn festist við. Best er að smyrja
olíuna á grindina rétt áður en maturinn
er lagður á grillið. Ef olían er borin á of
snemma er hætta á að hún brenni upp.
Ágætt er að væta hreinan klút með olíu
og halda á honum með grilltöng og
þrýsta honum á grindina til að
smyrja hana með olíunni.