Fréttablaðið - 07.06.2007, Side 8

Fréttablaðið - 07.06.2007, Side 8
 Fara þarf yfir lög um fjár- reiður stjórnmálaflokkanna sem sett voru á síðasta ári, að mati for- sætisráðherra. Formaður Fram- sóknarflokksins vakti athygli á því á Alþingi í gær sem hann kall- aði inngrip DV og áhrifamanns úr viðskiptalífinu inn í kosningabar- áttuna í vor. Lög um fjárreiður stjórnmála- flokkanna tóku gildi 1. janúar síð- astliðinn, og í kjölfarið gerðu flokkar sem sæti áttu á Alþingi samkomulag um hámarksfjárhæð sem hver flokkur mátti verja í auglýsingar fyrir kosningar. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, spurði for- sætisráðherra um skoðun hans á tvenns konar inngripi í kosninga- baráttuna í umræðum um störf þingsins á Alþingi í gær. Annars vegar hafi þar verið um að ræða aukablað DV sem gefið hafi verið út í um 100 þúsund eintökum mið- vikudag fyrir kosningar. Hins vegar heilsíðuauglýsingar Jóhann- esar Jónssonar í Bónus þar sem fólk hafi verið hvatt til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn en strika yfir nafn Björns Bjarnasonar dóms- málaráðherra. Hann spurði forsætisráðherra hvort hann hygðist beita sér fyrir því að lög um fjárstuðning við stjórnmálaflokka yrðu endurskoð- uð í framhaldinu, en þar eru sett takmörk á fjárstyrki til stjórn- málaflokka. Geir H. Haarde forsætisráð- herra sagði þau tilvik sem Guðni nefndi hafa komið á óvart. Hann hafi sjálfur sagt í kosningabarátt- unni að færa ætti aukablað DV á reikning stjórnarandstöðunnar. Fara þurfi yfir reynsluna af lög- unum, og hvernig nýta megi reynslu undanfarinna mánaða. Bent var á við lagasetninguna að mögulega yrðu til hliðarsamtök við stjórnmálaflokkanna sem beittu sér í kosningabaráttu, sagði Geir. Þetta þurfi að skoða. Össur Skarphéðinsson iðnaðar- ráðherra sagði farið inn á var- hugaverða braut ef einhverjir vilji hrófla við tjáningarfrelsi eða prentfrelsi. Stjórnmálamenn veiti oft pústra og lemstur, en verði á móti að geta tekið við slíku sjálfir. Það verði Guðni Ágústsson að til- einka sér, í stað þess að „væla“ undan pústrum á Alþingi. Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, benti á að það sé ekki bara aukablað DV sem horfa þurfi til. Eins megi spyrja á hvaða reikning eigi að setja leiðaraskrif og staksteina Morg- unblaðsins, eða leiðara Þorsteins Pálssonar, ritstjóra Fréttablaðs- ins. Þarf að fara yfir lög um fjármál flokka Meint inngrip DV og Jóhannesar Jónssonar í kosningabaráttuna í vor verða tilefni til þess að farið verður yfir lög um fjárreiður stjórnmálaflokkanna. Verum með fallegar tær í sumar! ll í NÝTT Bylting í meðferð á fótsveppi … – sveppasýkingarlyfið sem einungis þarf að bera á einu sinni! FÆST ÁN LYFSEÐILS Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis). Ekki má nota Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar. Lyfið er eingöngu ætlað til húð-meðferðar á fótum. Lamisil Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Lamisil Once. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að bera á einu sinni. Best er að bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel þótt einkenni sjáist einungis á öðrum fæti. Þetta tryggir algjöra eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir sjaldnast húðina. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Kirkjulundi 17, 210 Garðabæ. 20% afs láttur af toppgr æjum fyr ir glugga þvottinn Ármúla 23 • Reykjavík Sími: 510 0000 Miðási 7 • Egilsstöðum Sími: 470 0000 Brekkustíg 39 • Njarðvík Sími: 420 0000 Grundargötu 61 • Grundarfirði Sími: 430 0000 - hrein fagmennska! GLUGGAÞVOTTASKINN/SKAFA Visa Versa gluggaþvottaskinn/skafa – 20% fljótlegra að nota þvottaskinn og gluggaþvöru í einu áhaldi. Til í tveimur stærðum. Auðvelt að festa á skaft til að framlengja. Til í tveimur stærðum. HREINIR OG GLERFÍNIR GLUGGAR Tilboðið gildir til 30. júní eða á meðan birgðir endast. GLUGGAÞVOTTASÁPA Gluggaþvottasápan sem fagmaðurinn notar. HIFLO ÞVOTTAKÚSTUR HiFlo þvottakústur – samanstendur af 10 m slöngu, bursta með stillanlegum lið, sápuskammtara og 64 umhverfisvænum sáputöflum. Hægt er að kaupa mismunandi lengdir á sköftum (fylgja ekki með). GLUGGAÞVARA Gluggaþvara með þægilegu griphandfangi. Endurbætt gúmmí sem skilur engar rákir eftir sig. Auðvelt að festa á skaft til að framlengja. Til í þremur stærðum. E N N E M M /S ÍA /N M 28 06 7 Skráningar á námskeið á vegum Íþrótta og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar (ÍTR) fara fram á Rafrænu Reykjavík í fyrsta skipti í ár. Þannig skrá foreldrar börn sín á námskeið í gegnum vef Reykjavíkurborgar. Steingerður Kristjánsdóttir, verkefnisstjóri á skrifstofu ÍTR, segir aðsókn á námskeiðin mikla og nægt starfsfólk. „Leikjanám- skeiðin fyrir börn á aldrinum sex til níu ára eru vinsælust. Við erum einnig með siglingaklúbba, smíða- velli, gæsluvelli og frístunda- klúbba. Frístundaklúbbarnir eru fyrir börn á aldrinum tíu til tólf ára. Þá geta krakkarnir ráðið því sjálf hvort þau koma og hvað þau gera en það eru þó leiðbeinendur á staðnum og laus dagskrá yfir dag- inn.“ Steinunn segir að vel hafi geng- ið að koma til móts við börn með sérþarfir í gegnum tíðina. „Hvert barn er sérstakt og með ólíkar þarfir en við reynum að manna í stöður stuðningsfulltrúa sé þess óskað og yfirleitt hefur gengið vel að fá stuðningsfulltrúa fyrir þau börn sem þess þurfa.“ Steinunn segir markmið nám- skeiðanna að börn njóti útiveru og upplifi borgina á nýjan hátt, meðal annars með því að fara á söfn og í fjöruferðir. Leikjanámskeiðin vinsælust

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.