Fréttablaðið - 07.06.2007, Qupperneq 10
Magnús Ólafsson,
aðstoðarforstjóri Mjólkursamsöl-
unnar, segir að hann og aðrir for-
svarsmenn fyrirtækjanna sem
Samkeppniseftirlitið (SE) gerði
húsleit hjá á þriðjudag, geri sér
fyllilega grein fyrir því að fyrir-
tækin þurfi að lúta samkeppnis-
lögum á markaði.
SE fjarlægði gögn í kassavís af
skrifstofum MS, Osta- og smjör-
sölunnar og Auðhumlu svf. á
þriðjudag. Fyrir hendi er rök-
studdur grunur um brot fyrir-
tækjanna á samkeppnislögum.
Magnús sagði, þegar leitin stóð
sem hæst, að honum þætti málið
undarlegt, ekki síst í ljósi þess að
mjólkuriðnaðurinn væri undan-
þeginn samkeppnislögum. Hann
segist þá hafa átt við að samruni
afurðastöðva lyti ekki lögunum.
Magnús segir einnig að í rök-
semdafærslunni sem fylgir dóms-
úrskurðinum um húsleitarheim-
ildina, komi einungis fram að
Mjólka hafi kvartað yfir viðskipta-
háttum fyrirtækjanna, og að Nettó
og Samkaup hafi auglýst vörur frá
MS á grunsamlega lágu verði.
Hann fullyrðir að MS hafi selt vör-
urnar fullu verði og endursölu-
verðið sé verslananna að svara
fyrir. Hann neitar því að fleiri
atriði komi fram í rökstuðningn-
um.
„Ég tel mig ekki geta farið í
smáatriðum út í ástæður húsleit-
arinnar,“ segir Páll Gunnar Páls-
son, forstjóri SE. „En við höfum
verið að fylgjast með þessum
markaði og það eru ýmsar saman-
teknar ástæður fyrir því að við
förum í þessa húsleit.“
Magnús gagnrýnir jafnframt
SE fyrir harkaleg vinnubrögð.
„Það þarf enga húsleit í svona.
Röksemdafærslan er svo þunn að
hún heldur hvorki vatni né vindi
og allar upplýsingar sem SE hefði
þurft liggja á lausu. Það er verið
að gera fyrirtækið tortryggilegt
með húsleit.“
Páll Gunnar segir að eðlilega
hafi verið að öllu staðið. „Það var
mat okkar, sem stutt var af hér-
aðsdómi, að það væri nauðsynlegt
að fara í þessa húsleit. Um það er
ekkert meira að segja.“
Páll segir að athugun á gögnun-
um sé hafin en vill ekkert gefa
uppi um það hversu langan tíma
rannsóknin mun taka.
Búðir auglýstu
grunsamlega
lágt vöruverð
Aðstoðarforstjóri MS segist nú vel vita að mjólkuriðn-
aður þurfi að lúta samkeppnislögum á markaði. Ýms-
ar ástæður fyrir húsleit, segir Samkeppniseftirlitið.
Meðal þeirra eru grunsamlegar auglýsingar verslana.
Nautarúllan frá SS er vafin inn í
netta rönd af svínaspekki,
taðreykt en þó með mildu en
sjarmerandi reykbragði sem
minnir dálítið á hangikjöt. Það er
því tilvalið að nota SS nautarúllu
á svipaðan hátt og hangiálegg
eða feta nýjar slóðir eins og t.d.
hér er sýnt. Nautarúllan hefur
fengið gullverðlaun í
fagkeppnum bæði hér heima og
erlendis.
Ilmandi
álegg frá SS
www.ss.isF
íto
n
eh
f.
/
S
ÍA
„Íslensk blóm
eru harðgerð,
kröftug og fersk.“
Björn Sigurbjörnsson, garðyrkjumaður.
Í áratugi hafa íslenskir garðyrkjubændur unnið að því að byggja upp
og rækta úrval af garðplöntum fyrir íslenska veðráttu.
Nýttu þér dýrmæta þekkingu og reynslu íslenskra garðyrkjubænda.
VELDU ÍSLENSK SUMARBLÓM, SÉRMERKT ÞÉR.
Tveir fulltrúar íbúa á
Njálsgötu sem valdir voru á
íbúafundi á mánudagskvöld sitja í
dag fund í sérstökum samráðs-
hópi borgarinnar og íbúanna
vegna fyrirhugaðs heimilis fyrir
heimilslausa á Njálsgötu 74.
Á fundi samráðshópsins munu
fulltrúar íbúanna afhenda fundar-
mönnum frá Reykjavíkurborg lög-
fræðiálit Karls Axelssonar lög-
manns um fyrirhugaða starfsemi á
Njálsgötu 74. Mun það meðal ann-
ars vera niðurstaða Karls að starf-
semina ber að flokka sem stofnun
en ekki sem heimili. Þar með beri
borgaryfirvöldum að setja málið í
grenndarkynningu.