Fréttablaðið - 07.06.2007, Qupperneq 12
Ekki kemur til greina
að breyta starfsemi greiningar-
deildar ríkislögreglustjóra (RLS)
þannig að hún fái heimildir til rann-
sókna þó rökstuddur grunur um
afbrot sé ekki fyrir hendi, segir
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra.
Björn segir spurninguna frekar
snúast um hvort stofna eigi örygg-
is- og greiningarþjónustu innan
lögreglunnar með heimildum til
slíkra rannsókna. „Ég hef kannað
þetta mál, en hef ekki tekið ákvörð-
un um framhald þess,“ segir Björn
í tölvupósti til blaðamanns, en hann
féllst ekki á að veita viðtal.
Spurður hvort þörf sé á því að
stofna þjóðarör-
yggisdeild hér-
lendis, sem hefði
hlutverk sam-
bærilegt við
öryggisþjónust-
ur erlendra ríkja,
segir Björn að
hér sé þörf á því
að vera á varð-
bergi gagnvart
hættum, en
hversu langt menn vilji ganga í því
að veita lögreglu slíkar heimildir
ráðist af vilja Alþingis. Þar hafi
komið fram að ekki verði gengið
lengra á þessari braut án þess að
koma á fót eiginlegri öryggis- og
greiningarþjónustu lögreglu hér-
lendis. Björn segist þeirrar skoð-
unar að öryggis- og greiningar-
þjónusta eigi að vera hluti lögreglu,
en ekki sérstök stofnun. Ef um yrði
að ræða deild innan lögreglu þyrfti
hún að hafa svipaðar heimildir og
lögregla hefur nú, utan við að deild-
in yrði að geta hafið rannsókn máls
án þess að rökstuddur grunur lægi
fyrir um afbrot.
Að mati starfshóps um öryggis-
mál er vænlegast að eftirlitsnefnd
skipuð af Alþingi annist eftirlit
með slíkri öryggis- og greiningar-
þjónustu, og segir Björn það fylli-
lega raunhæft að slíkur háttur
verði hafður á.
Skráning er hafin í Reykja-
víkurmaraþon Glitnis en kjörorð
hlaupsins í ár er Allir sigra!
Reykjavíkurmaraþonið verður
haldið laugardaginn 18. ágúst og er
24. hlaupið frá upphafi.
Glitnir heitir í fyrsta skipti á við-
skiptavini sína sem taka þátt í
hlaupinu og greiðir 500 krónur til
góðgerðarmála fyrir hvern kíló-
metra sem hlaupinn er og 3.000
krónur fyrir hvern kílómetra sem
starfsmaður Glitnis hleypur.
Lárus Welding, forstjóri Glitnis,
segist sjálfur ætla að hlaupa tíu
kílómetra í maraþoninu. „Ég hef
ekki hlaupið heilt maraþon áður en
ég hef þó verið nokkuð virkur í
íþróttum og hef hlaupið tíu kíló-
metra þannig að ég ætti að geta
þetta,“ segir Lárus og bætir við að
mikilvægasta markmiðið með
hlaupinu sé aðallega tvíþætt. „Með
hlaupinu erum við að styrkja gott
málefni og bjóðum viðskiptavinum
okkar að gera hið sama. Um leið
samtvinnum við það við persónu-
leg markmið hvers og eins um að
halda sér í formi og hugsa vel um
heilsuna,“ segir Lárus.
Í fyrra komu um átta hundruð
erlendir gestir í hlaupið. Í ár er von
á jafnmörgum ef ekki fleirum til
landsins í tilefni af hlaupinu.
Forstjórinn hleypur 10 kílómetra
Bankastræti • Fjörður • Kringlan • Laugavegur 178 • Smáralind
IXUS 75
7,1 milljón pixla
3" skjár
Linsa 5.8 - 17.4mm
Myndskeið (video)
Sjálfvirk myndataka
2 eða 10 sek
Sumarstemning
Mynda
vél fyr
ir
ljósm
yndaf
yrirsæ
tur
Opið á Kletthálsi 11
mánudaga til föstudaga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16
100%
lán
af völdum
bílum
*
*
M
ið
að
v
ið
1
00
%
lá
n
fr
á
SP
F
já
rm
ög
nu
n.
Gott úrval Pajero Sport
á frábærum kjörum
Notaðir bílar í toppstandi!
Dráttarbeisli og sumar- og vetrardekk
fylgja öllum Pajero Sport jeppum
Nýlegir og góðir eldri Pajero Sport jeppar
á verði frá aðeins 1.190.000 kr.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA