Fréttablaðið - 07.06.2007, Side 16
„Er í alvöru verið
að rífa niður rekkana? Hann Víg-
lundur vildi kaupa þá fyrir marg-
ar milljónir!“ segir Davíð
Scheving Thorsteinsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri og eig-
andi Sólar hf.
Rekkarnir umræddu eru átta
hæða lagergeymsla úr járni sem
SR-verktakar eru í óða önn að rífa
niður við Þverholt. Þeir voru kæli-
geymsla Sólarverksmiðjunnar
frægu, sem Davíð rak í tæp 45 ár
og framleiddi meðal annars Svala
og Trópí. Þar eiga nú að rísa íbúðir
fyrir námsmenn og Davíð segir
það tímanna tákn.
„Hér var Ölgerðin, þarna var
Garnastöðin, Pípugerðin, ÍSAGA
og svo var Vinnufatagerðin hér,“
segir hann og bendir yfir svæðið.
Margt hefur breyst síðan 1951,
þegar Davíð hóf hér störf.
„Þegar ég kom voru þetta sam-
tals 320 fermetrar en þegar ég fór
voru þeir 10.000,“ segir hann stolt-
ur í bragði.
Fyrirtækið óx stöðugt og á
blómskeiði þess störfuðu þar um
300 manns og seldu milljón Svala
á mánuði.
Davíð er hingað kominn til að
kveðja Golíat, risavaxinn lyftara
sem var fluttur til landsins árið
1980. Golíat var fyrsta og líklega
stærsta vélmenni sem flutt hefur
verið til Íslands.
Risinn tók við vörubrettum
gegnum lítið op og kom þeim
fyrir í kæligeymslunni. Starfs-
mennirnir sjálfir vissu ekki hvar
vörurnar voru geymdar, þeir
spurðu bara Golíat. Þetta þótti
afar fullkomin tækni. „Hornrétt
hnitakerfi, eins og það heitir á
fagmáli,“ segir Davíð sposkur á
svip.
„í gegnum Golíat hafa farið
vörur eins og Trópí, Svali, Ljómi,
Sólblóma, Seltzer og vatn fyrir
tugmilljarða króna. Aldrei bilaði
hann!“ segir Davíð.
„Allir sem hafa rekið bissness
vita hvílíkt viðhald lyftarar
þurfa, en þarna þurfti aldrei
neitt,“ segir Davíð, sem undrast
mjög að sama tækni hafi ekki
verið innleidd í öll frystihús á
Íslandi. „Þarna var líka notuð
innlend orka í stað olíu arab-
anna,“ segir hann og kveður.
Davíð kveður vélmennið
Golíat með sárum söknuði
Davíð Scheving Thorsteinsson stofnaði Sólarverksmiðjuna við Þverholt. Hann flutti svo inn Golíat sér til
hjálpar, fyrsta og stærsta vélmenni Íslandssögunnar. Nú er verið að rífa Sólina hans Davíðs og Golíat gamli
verður seldur í brotajárn. Risann vantaði aldrei í vinnu og ekki þarfnaðist hann viðhaldsins.
NÝJAR OG BETRI JÚMBÓ
HYRNUR Í NÆSTU VERSLUN
Mahmoud Ahmadinejad,
forseti Írans, sagði í gær að það
væri of seint
að stöðva
kjarnorkuáætl-
un Írans.
„Íran er
komið fram hjá
þeim stað sem
þeir vilja að
við stoppum,“
sagði forsetinn
á blaðamanna-
fundi.
Forsetinn
varaði jafn-
framt Banda-
ríkjastjórn og Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna við að herða
efnahagsþvinganir gegn Íran.
„Við ráðleggjum þeim að sleppa
þrjósku og barnalegum leikjum.“
Ahmadinejad ræddi einnig um
óöldina í Írak. „Við erum tilbúnir
til að hjálpa íraska fólkinu. Við
getum tjaldað öllu til.“
Segir of seint
að stoppa
Lögreglan er ekki í stakk
búin til að rannsaka höfundarrétt-
arbrot á netinu á viðunandi hátt.
Fjármagn sem veitt er til tækni-
deilda nægir ekki til að rannsaka
allt það sem ætti að rannsaka.
Efnahagsbrotadeild Ríkislög-
reglustjóra hefur rannsakað mál
sem tengist skráaskiptaforritinu
DC++ síðan í lok árs 2004. Nú fyrst
hillir undir lok rannsóknarinnar,
tveimur og hálfu ári síðar.
„Það er auðvelt að spyrja af
hverju við rannsökum ekki þetta
og hitt, en þessi mál eru flókin og
þurfa mannskap,“ segir Helgi
Magnús Gunnarsson, saksóknari
efnahagsbrota hjá Ríkislögreglu-
stjóra. „Ef við ætlum að sinna
þessari tegund mála sérstaklega
hjá Ríkislögreglustjóra þarf að
byggja upp betri tæknideild.“
Vinsælasta skráaskiptasvæðið á
Íslandi í dag er IsTorrent, en þar
skiptast þúsundir Íslendinga á höf-
undaréttarvörðum lögum, kvik-
myndum, leikjum og forritum.
Helgi vildi ekki segja hvort Rík-
islögreglustjóri væri að rannsaka
IsTorrent, en útilokaði það ekki.
„Það þarf að rífa upp hugarfarið
og gera umræðu um þessi mál að
uppeldisþætti. „Að þessu leyti
virðast Íslendingar bera minni
virðingu fyrir lögum en nágranna-
þjóðirnar.“
Tæknideildina þarf að efla
Norsk Hydro
staðfesti í gær að fyrirtækið
ætlaði ekki að reisa vatnsafls-
virkjun og álver á Grænlandi.
Norsk Hydro hafði handsalað
samning við heimastjórn
Grænlands um rannsóknir og
undirbúning. Heimastjórnin
ákvað hins vegar að slíta
samstarfi við fyrirtækið og hefja
samstarf við Alcoa um byggingu
340 þúsund tonna álvers.
Raforkuþörf slíks álvers er 500
megavött að lágmarki.
Álver Alcoa á Grænlandi yrði
svipað að stærð og álver fyrir-
tækisins í Reyðarfirði.
Byggja álver á
Grænlandi
Skilnuðum fjölgar
sífellt í Finnlandi og hjónaböndin
eru styttri. Ný gögn sýna að
helmingur hjónabanda endar
með skilnaði og skilnaðir eiga
sér stað fyrr en áður, eftir ellefu
ár að meðaltali, en um síðustu
aldamót stóðu hjónabönd að
meðaltali í tólf ár. Þetta kemur
fram í vefútgáfu Helsingin
Sanomat.
Tíðni hjónaskilnaða hefur líka
aukist. Á sjöunda áratugnum
endaði þriðjungur hjónabanda
með skilnaði og á áttunda
áratugnum var hlutfallið meira
en fjörutíu prósent.
Fleiri skilja í
Finnlandi