Fréttablaðið - 07.06.2007, Side 22
hagur heimilanna
Ísland hefur fallið ört niður
lista yfir þau OECD-lönd
sem hafa ódýrasta verð á
fjarskiptaþjónustu. Kerf-
ið hér á landi mætti vera
gegnsærra að mati forstjóra
Póst- og fjarskiptastofnun-
ar.
Verð á fjarskiptaþjónustu á Íslandi
er orðið óhagstæðara í samanburði
við önnur OECD-lönd en það hefur
verið síðustu misserin. Á árunum
2002 til 2004 voru Íslendingar
meðal þriggja efstu þjóða á lista
yfir OECD-lönd sem hafa verið
með lægsta verðið á fjarskipta-
þjónustu, utan eftirágreiddrar far-
símaþjónustu. Nú hefur hins vegar
orðið breyting á eins og kemur
fram í ársskýrslu Póst- og fjar-
skiptastofnunar 2006. Frá árinu
2004 hefur Ísland fallið niður í
níunda sæti yfir ódýrustu fyrir-
framgreiddu farsímaþjónustunnar,
áttunda sæti farsímaþjónustu í
áskrift, og hefur fjórðu ódýrustu
fyrirtækjasímana, eins og sjá má á
töflu hér til hliðar.
Hrafnkell Gíslason, forstjóri
Póst- og fjarskiptastofnunar, segir
að verð hafi vissulega hækkað hér
á landi í krónutölum. Það sem skipt-
ir höfuðmáli sé hins vegar að verð í
öðrum löndum hefur verið að
lækka. „Viðskiptahættir úti eru
öðruvísi en hér. Verðsamkeppnin
þar er mun beinni. Auglýst er eftir
þjónustu á grundvelli ákveðins
verðs. Þú kaupir GSM-þjónustu
vegna þess að að mínúta kostar svo
og svo mikið.“ Hrafnkell bendir á
að slíkar auglýsingar tíðkist ekki
hér á landi, þar sem reynt er að ná í
viðskiptavini með „pakkatilboðum“
þar sem mínútuverð er tengt við
aðra þjónustu fjarskiptafyrirtæk-
isins. „Allt er á sama stað og fólk
færð afslátt af heildinni. Þetta er
ekki eins gegnsætt kerfi. Pakkatil-
boð eru vissulega einnig algeng
erlendis en mín tilfinning er sú að
mjög sjaldan er vísað hér á landi í
beint verð á fjarskiptaþjónustu og
þá er yfirleitt hálf sagan sögð.
Hér skapast líka meiri tryggð við
fjarskiptafyrirtækin vegna bindis-
samninga og hreyfanleiki neytenda
verður minni. Tekið var á þessu í
síðustu breytingum á fjarskipta-
lögum. Bindissamningar höfðu
verið tólf mánuðir í ADSL-þjónustu
en þeim var stytt í sex mánuði.“
Fyrirtækið Teligen sér um að
reikna verðsamanburðinn milli
landa. „Teligen reiknar út ákveðna
körfu sem er talin vera týpísk notk-
un neytanda. Körfunni var breytt
2006 og þá varð okkar samanburð-
ur óhagstæðari eftir það. Svarið við
óánægjuröddum vegna þessa er að
notkunarmynstur hefur almennt
breyst og því var eðlilegt að breyta
þessari körfu.“
Ísland ekki lengur með
ódýrustu símaþjónustuna
Kristín Linda Jónsdóttir, kúabóndi
í Miðhvammi í Aðaldal og ritstýra
Húsfreyjunnar, kann ýmis húsráð.
Skilaði leðurjakka með kögri