Fréttablaðið - 07.06.2007, Side 26
Gistinóttum á hótelum á fyrsta árs-
þriðjungi fjölgaði um sautján pró-
sent milli ára. Þetta sýna nýbirtar
tölur frá Hagstofu Íslands. Gisti-
nætur á fyrstu fjórum mánuðum
ársins voru samanlagt 293.200 en
voru 250 þúsund á fyrsta þriðjungi
ársins 2006.
Alls staðar fjölgaði gistinóttum.
Mest varð fjölgunin þó á Austur-
landi þar sem gistináttafjöldinn
jókst um tæp 73 prósent. Minnst
varð hún á Suðurnesjum, Vestur-
landi og Vestfjörðum eða sex pró-
sent.
Í aprílmánuði fjölgaði gistinótt-
um á hótelum um tólf prósent milli
ára. Þær voru 89.900 í ár og fjölg-
aði um 8.900 milli ára. Má rekja
fjölgunina bæði til útlendinga og
Íslendinga.
Mest varð fjölgunin á Norður-
landi þar sem gistinóttum fjölgaði
um rúman helming. Þær fóru úr
4.600 í 6.900 milli ára. Minnst varð
fjölgunin á Suðurlandi. Þar fjölg-
aði gistinóttum úr 9.000 í 9.500
milli ára. Í takti við fjölgun gisti-
nátta fjölgaði einnig gistirýmum á
hótelum í apríl. Bæði fjölgaði her-
bergjum og rúmum um ellefu pró-
sent milli ára. Hótel sem opin voru
í apríl síðastliðnum voru 73 en 74 í
sama mánuði árið 2006.
Gistinóttum fjölgar
um sautján prósentLýsi hefur gengið frá kaupum á 53 prósentum í fyrirtækinu IFEX ehf. Lýsi átti fyrir 47 prósent í
félaginu og á nú félagið allt. Kaupverð er trúnað-
armál.
IFEX, sem var stofnað fyrir sex árum, framleið-
ir gæludýrafóður fyrir hunda og ketti úr íslensk-
um sjávarafurðum og Harðbita og Snakkbita til
manneldis. Hjá fyrirtækinu starfa tíu manns í Þor-
lákshöfn.
Katrín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Lýsis,
segir kaupin skemmtilega viðbót við framleiðslu
fyrirtækisins og sjái það mikla möguleika á markaði
með hollustufæði fyrir gæludýr, jafnt hér sem
erlendis.
Markaður með heilsuvörur fyrir gæludýr hefur
vaxið gríðarlega um allan heim, að hennar sögn.
„Fólk er farið að hugsa afskaplega vel um gælu-
dýrin sín,“ segir Katrín og bendir á sem dæmi að
lífslíkur hunda séu í mesta lagi 15 ár. „Fólk vill
helst að dýrin lifi sem lengst og við góða heilsu. Nú
komum við til móts við gæludýraeigendurna með
heilsufæði og fæðubótarefnum fyrir dýrin,“ segir
hún.
Lýsi framleiðir fæði fyrir dýrin
Eignarhaldsfélagið Imon, sem er í
eigu athafnamannsins Magnúsar
Ármanns, er orðið stærsti stofn-
fjáreigandinn í Byr sparisjóði
með um 9,59 prósenta hlut. Hlutur
þessi er metinn á rúma 3,4 millj-
arða króna miðað við nýleg við-
skipti með stofnfé sparisjóðsins.
Magnús kom inn í SPH á sínum
tíma. Sparisjóðurinn sameinaðist
SPV undir merkjum Byrs. Í sam-
tali við Fréttablaðið sagðist hann
hafa bætt hlut sinn jafnt og þétt á
undanförnum mánuðum. Magnús
situr í stjórn Byrs.
Hraunbjarg ehf., félag í eigu
MP Fjárfestingarbanka, var áður
stærsti stofnfjáreigandinn. Félag-
ið seldi nýverið 4,5 prósent stofn-
fjár í Byr og heldur nú utan um
4,62 prósenta hlut.
Magnús Ármann
stærstur í Byr
Hluturinn er metinn á 3,4 milljarða króna.
Greinendur hjá Glitni og færeyska
bankanum Eik Banka mæla með
því að fjárfestar kaupi hlutabréf í
Föroya Banka. Einkavæðing bank-
ans hefst í næstu viku en Land-
stjórnin í Færeyjum hyggst selja
allt að 66 prósentum hlutafjár.
Útboðsgengi liggur á bilinu 162-
189 danskar krónur á hlut sem
þýðir að markaðsvirði bankans er
um 21 milljarður miðað við efri
mörk. Íslendingum stendur til boða
að kaupa í útboðinu.
Eik Banki bendir á að klassískar
hlutabréfakennitölur fyrir bank-
ann séu lágar í samanburði við
meðalstórar fjármálastofnanir í
Danmörku. Q-hlutfall (markaðs-
virði/bókfært eigið fé) liggur á bil-
inu 1,26-1,47 ef miðað er við sölu-
verð hlutafjárins. Til samanburðar
er meðaltalsgildið 2,43 hjá bönkun-
um í Danmörku. „Hlutabréf í För-
oya Banka eru heldur ekki dýr
þegar V/H-gildið [markaðsvirði/
hagnaður] er skoðað,“ segja sér-
fræðingar hjá Eik.
Glitnir bendir á að efnahagur
gefi til kynna að Föroya Banki sé
spennandi kostur. Bankinn byggir
fjármögnun sína að stórum hluta á
innlánum eða 69 prósentum af
efnahag. Þetta er útlánabanki sem
hyggur á vöxt í þóknunartengdri
starfsemi.
„Bankinn er að vísu lítill miðað
við markaðsvirði en að okkar mati
mun hann fyrr en seinna verða
hluti af mun stærri banka og er þá
líklegt að íslensku viðskiptabank-
arnir muni sýna honum talsverðan
áhuga,“ segir orðrétt í Morgun-
korni Glitnis.
Samkvæmt samþykktum bank-
ans er engum hluthafa heimilt að
fara með meira en tíu prósent
atkvæðisréttar.
Íslensku bankarnir gætu sýnt bankanum talsverðan áhuga í framtíðinni.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
37
74
8
06
/0
7
Deuter Aircontact
50+10 SL
Dömupoki í Aircontactlínunni frá Deuter.
Sérhannaður fyrir konur.
Verð 21.990 kr.
Deuter Futura 32 AC
Futura línan, sú mest selda í Evrópu!
Dagpoki ársins í Outdoor tímaritinu 2004 og 2006.
Regnvörn, Aircomfort burðarkerfi, 32 lítrar.
Verð 10.990 kr.
Futura 22 l.: 8.990 kr.
Futura 28 l.: 8.990 kr.
Futura 38 l.: 12.990 kr.
Millet Hiker 38 l
Frábær dagpoki.
Innbyggð regnvörn.
Verð 12.990 kr.
Hiker 28 l verð: 10.990 kr.
Hiker 22 l verð: 9.990 kr.
.
Aircontact pokarnir frá Deuter
eru með stillanlegu baki,
óviðjafnanlegu loftflæði,
og innbyggðum regnpoka.
Frábærir í lengri ferðir.
Verðlaunabakpo