Fréttablaðið - 07.06.2007, Side 28

Fréttablaðið - 07.06.2007, Side 28
greinar@frettabladid.is Þegar Harry Truman sendi einkabréf af skrifstofu sinni í Hvíta húsinu, límdi hann utan á umslögin frímerki, sem hann hafði keypt sjálfur í næsta póst- húsi. Hann hafði verið kjörinn varaforseti 1944, tók við forseta- embættinu við fráfall Franklins Roosevelt vorið 1945 og fyrirskip- aði nokkru síðar kjarnorkuárás- irnar á Hírósíma og Nagasakí til að flýta stríðslokunum. Japanar gáfust upp, stríðinu lauk. Trum- an kvaddi þá George Marshall ut- anríkisráðherra á sinn fund og lagði fyrir hann áætlun um end- urreisn Evrópu úr rústum stríðs- ins. Þegar Truman hafði lýst áætl- uninni, sagði hann við Marshall: Ég fel þér að hrinda Marshall-áætlun- inni í framkvæmd. En herra for- seti, sagði Marshall, nafngiftin er röng, þetta er þitt verk. Fundi slit- ið, sagði Truman. Því eru engin takmörk sett, sagði Truman síðar, hverju hægt er að koma til leiðar í stjórnmálum, standi manni á sama um hverjir fá þakkirnar. Í fyrradag, 5. júní, voru sex- tíu ár síðan George Marshall lagði fram Marshall-áætlunina í skóla- slitaræðu í Harvardháskóla. Fram- leiðsla í evrópskum landbúnaði og iðnaði hafði stöðvazt eða því sem næst, svo að hungursneyð blasti við um alla álfuna. Hvað vakti fyrir Truman og þeim? – annað en að gera öðrum gott. Einkum fernt. Í fyrsta lagi þurftu Banda- ríkin sjálf á því að halda, að Evr- ópa risi upp aftur, því að Evrópu- löndin höfðu verið helzti markaður fyrir bandarískar afurðir. Og ekki bara það: Þar stóð vagga þeirrar menningar, sem er nú líftaug gjör- valls hins menntaða heims, svo að vitnað sé orðrétt í innlenda sam- tímaheimild um málið. Í annan stað hefðu Evrópuþjóðirnar á eigin spýtur ef til vill gripið til áætl- unarbúskapar sem örþrifaráðs eftir stríðið og með því móti færzt nær sovézkum búskaparháttum. Í þriðja lagi þótti brýnt að hamla gegn því, að almenningur snerist til kommúnisma. Í fjórða lagi þótti Kananum brýnt að búa svo um hnútana, að Evrópa gæti af eigin rammleik staðizt ásælni Sovétríkj- anna, en þau voru nú orðin helzti andstæðingur Bandaríkjanna á al- þjóðavettvangi. Til þess þurfti einkum að endurreisa Þýzkaland, sem hafði áður verið hryggjar- stykkið í atvinnulífi álfunnar og myndað mótvægi við Sovétríkin. Marshall-hjálpin var því ekki ein- göngu góðverk, hún þjónaði einn- ig hagsmunum Bandaríkjanna. Þannig varð til mesta og árangurs- ríkasta þróunaráætlun allra tíma. Hjálparféð nam röskum 13 milljörðum Bandaríkjadollara í fjögur ár (1948-52). Mest voru þetta beinir styrkir, afgangur- inn var ódýr lán. Fjárhæðin nam tæpum sex prósentum af lands- framleiðslu Bandaríkjanna 1947 eða tæplega einni og hálfri pró- sentu af framleiðslu á ári þessi fjögur ár. Þetta er sjö sinnum meira fé miðað við landsfram- leiðslu en Bandaríkin veita nú til þróunarhjálpar, og eru Banda- ríkjamenn þó þjóða örlátastir í dollurum talið, en ekki í hlutfalli við landsframleiðslu. Marshall- fénu var dreift til sautján Evrópu- landa til að reisa þau við, einkum iðnað, landbúnað og verzlun, og til að renna styrkum stoðum undir lýðræði og frelsi. Ella myndu fá- tækt, atvinnuleysi og örvænting meðal almennings veita komm- únistum byr undir báða vængi í Vestur-Evrópu: það var hugsunin. Í upphafi áttu einnig Austur-Evr- ópulöndin, þar sem Rauði herinn réð lögum og lofum eftir stríðið, að njóta góðs af Marshall-hjálp- inni, en Sovétríkin kærðu sig ekki um það. Þessi lönd þágu aðstoðina: Austurríki, Belgía, Bretland, Dan- mörk, Frakkland, Grikkland, Hol- land, Ísland, Írland, Ítalía, Lúxem- borg, Noregur, Portúgal, Svíþjóð, Sviss, Tyrkland og Vestur-Þýzka- land. Bretar, Frakkar, Ítalar og Þjóðverjar fengu mest í dollurum talið, en Íslendingar fengu mest miðað við mannfjölda og notuðu féð til að reisa virkjanir og verk- smiðjur og kaupa togara. Marshall-áætlunin bar mikinn árangur í bráð og lengd. Fram- leiðsla í Evrópu jókst um 15 til 25 prósent um hjálpartímann. Evr- ópskur iðnaður gekk í endurnýjun lífdaganna. Truman forseti lagði Marshall-áætlunina til grundvall- ar, þegar Bandaríkin hófu þró- unarhjálp í stórum stíl handa þriðjaheimslöndum 1949. Þegar Marshall-hjálpinni lauk 1952, var hættan á valdatöku kommúnista í Vestur-Evrópu liðin hjá, iðnað- arframleiðsla álfunnar var orðin þriðjungi meiri en hún hafði verið fyrir stríð, og Vestur-Þýzkaland var í örum vexti. Helzti samstarfs- vettvangur iðnríkjanna í efna- hagsmálum, OECD, varð til í beinu framhaldi af Marshall-hjálpinni, og einnig ESB. Hvers vegna hefur þróunarað- stoð handa Afríku ekki skilað jafn- miklum árangri? Það er löng saga; hún bíður. Sumir telja, að Banda- ríkjastjórn hefði átt að leggja fram nýja Marshall-áætlun handa Rússum eftir 1991 til að beina þeim inn á réttar brautir. Hefði það verið gert, hefðu Bandaríkja- menn og Evrópuþjóðirnar kannski minni áhyggjur af Rússlandi núna og óöldinni þar. En Kaninn vildi ekki hjálpa Rússum, segja sumir: kannski kaus hann helzt, að Rúss- land kæmist ekki á fætur. Marshall-hjálpin Þegar Samfylkingin kynnti umhverf-is- og virkjanastefnu sína undir yfir- skriftinni Fagra Ísland var sérstaklega til þess tekið að á komandi fimm árum yrði hlé á stóriðjuframkvæmdum í land- inu. Á degi tvö í stjórnarsamstarfinu kom svo í ljós að álitamál varðandi Þjórsárver og Norðlingaölduveitu höfðu ekki verið rædd í stjórnarmyndunarviðræðunum á þann hátt að lyktir fengjust og niðurstaða. Um það báru mis- vísandi yfirlýsingar frá hendi oddvita ríkisstjórnar- flokkanna vitni. Ef um pólitískt hjartans mál hefði verið að ræða má ætla að málið hefði verið til lykta leitt. En þegar á degi tvö í ríkisstjórnarsamstarfinu hafði semsé komið í ljós að Fagra Ísland hafði verið látið sitja á hakanum. Nú er runninn upp þriðji dagurinn þar sem Fagra Ísland kemur upp í hugann. Gengið hefur verið frá orkusölusamningi vegna nýs álvers í Helguvík og ná skuldbindingar orkusala aldarfjórð- ung fram í tímann. Orkusalarnir eru Hitaveita Suð- urnesja og Orkuveita Reykjavíkur. Ekki er vitað um neina tilburði af hálfu ríkisstjórn- arinnar til að hafa áhrif í þá átt að fá þessum áformum breytt og er það óræk staðfesting á því að stóriðjustefnan er hér á fullri ferð og greinilega enginn pólitískur vilji fyrir öðru. Ákvarðanir sem orkufyrirtækin taka varða landsmenn alla. Þær skipta máli í efnahags- legu tilliti að ógleymdri náttúrunni því virkja þarf til að afla orkunnar. Jafnvel þótt beisluð orka væri fyrir hendi er ljóst að þörfin fyrir orku fer vaxandi – aðrir nýtingarmöguleikar en stóriðja skjóta upp kollinum í vaxandi mæli og er það ótrúleg skammsýni að binda orku landsmanna áratugi fram í tímann í þágu erlendra stóriðjufyr- irtækja. Allt þetta lætur hinn glaði Samfylkingar- meirihluti á Alþingi sér í léttu rúmi liggja. Nú er spurningin hvað gerist á degi fjögur. Verð- ur Fagra Íslandi áfram fórnað til að svala löngunum og þrám til að verma sætin í Stjórnarráði Íslands? Ég geri ráð fyrir að þeim sem kusu Samfylkinguna út á Fagra Ísland sé ekki skemmt og vel gæti svo farið að nú færu að stirðna brosin hinna brosmildu. Höfundur er þingflokksformaður VG. Fagra Ísland – dagur þrjú D eilur um starfslok Egils Helgasonar á Stöð 2 beina athyglinni enn á ný að einkennilegri stöðu Ríkis- sjónvarpsins á fjölmiðlamarkaði. Fyrir liggur að Agli stóð til boða samningur um að þáttur hans, Silf- ur Egils, yrði á dagskrá Stöðvar 2 að minnsta kosti næstu tvö ár. Ljóst er hins vegar að Silfrið verður ekki sýnt þar heldur hefur göngu sína í Ríkisútvarpinu í haust. Í framhaldi af þessu – og það alveg ótengt atvinnufrelsi Egils – vaknar sú klassíska spurning hvort eðlilegt sé að Ríkissjónvarp- ið teygi sig eftir dagskrárefni sem vitað er að hinn frjálsi mark- aður mun sjá áhorfendum fyrir? Áhugamenn um fjölbreytta og öfluga innlenda dagskrárgerð hljóta að svara þeirri spurningu neitandi. Nærtækara hefði verið fyrir Ríkisútvarpið að taka fjármunina sem fara í Silfur Egils og búa til nýtt og ferskt efni, í stað þess að eyða þeim í þátt sem hefur verið í opinni dagskrá á annarri stöð. Vissulega er Silfrið þrautreynd og góð formúla sem öllum stöðvum er sómi að hafa á sinni dagskrá. Þá kröfu má hins vegar gera til Ríkissjónvarpsins – og á hiklaust að gera – að það stuðli að nýsköpun og aukinni fjölbreytni í innlendri dagskrárgerð. Um þá kröfu er hægt að hafa eitt orð: „menningarhlutverk“. Og það er einmitt orðið sem oftast er gripið til þegar réttlæta þarf tilveru ríkisfjölmiðlunar í þessu landi. Sannarlega er það líka verðugt hlutverk. Brjóstvörn Ríkissjón- varpsins er að tryggja framleiðslu á innlendu efni, hvort sem það eru fréttir og fræðsla, hreinræktuð skemmtun á borð við Spaug- stofuna eða Tíu fingur Jónasar Sen. Með þeim tekjum sem Ríkissjónvarpið fær frá skattborgur- unum er stofnunin í þeirri einstöku stöðu að hún hefur listrænt frelsi í dagskrárgerð sinni. Þeir sem borga geta nefnilega ekki sagt upp áskriftinni að Ríkissjónvarpinu þótt þeim mislíki það sem er þar í boði. Því miður virðist núverandi stjórnandi stofnunarinnar, Páll Magnússon, annað hvort ekki kunna að meta þetta frelsi, eða hreinlega ekki skilja það. Átakanlegt dæmi um afstöðu útvarpsstjóra til hlutverks Ríkis- sjónvarpsins eru kaupin á sjónvarpsréttinum á Evrópukeppninni í fótbolta 2008. Þar yfirbauð Ríkissjónvarpið sjónvarpsstöðvarn- ar Skjásport og Sýn og keypti útsendingarréttinn á um 100 millj- ónir króna. Þó voru skilyrðin fyrir útsendingunum á þá leið að nítján af 31 leik keppninnar átti að sýna í opinni dagskrá. Þar á meðal úrslitaleikinn og alla aðra veigamestu leikina. Sjónvarpsstjóri keypti sem sagt tólf fótboltaleiki á um 100 milljónir í keppni sem einkastöðvarnar hefðu ella sýnt. Við vitum fyrir víst að Sýn og Skjásport munu ekki taka pen- ingana, sem Ríkissjónvarpið sparaði þeim, og búa til leikna ís- lenska sjónvarpsþáttaröð. Miklu nær er reyndar að snúa þess- ari stöðu við og velta fyrir sér hvaða mat Ríkissjónvarpið hefði getað gert sér úr hundrað milljónunum ef fótboltinn hefði verið látinn einkastöðvunum eftir. Ofuráhersla útvarpsstjóra á markaðsvæna og þrautreynda dagskrárliði hlýtur að vera hollvinum Ríkissjónvarpsins nokk- uð áhyggjuefni. Ef aðeins er leitað á kunnugleg og örugg mið sem tryggja gott áhorf, í stað þess að sýna djörfung og taka áhættu, verður Rík- issjónvarpið óhjákvæmilega eins og hver önnur sjónvarpsstöð. Ríkið þarf ekki að koma að slíkum rekstri. RÚV á villigötum Sjónvarpsstjóri keypti tólf fótboltaleiki á um 100 millj- ónir í keppni sem einkastöðvarnar hefðu ella sýnt.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.