Fréttablaðið - 07.06.2007, Side 30
Eins og nýlega hefur komið fram telja
365 miðlar á sér brot-
ið með þeirri ákvörð-
un Egils Helgasonar
að flytja þátt sinn Silf-
ur Egils yfir til RÚV og
ráða sig þar til starfa
frá 1. júní sl. Ástæðan er sú að
fyrirtækið telur að bindandi
samningur hafi verið kominn á
milli Egils og 365 miðla um að
hann stýrði þætti sínum á Stöð
2, a.m.k. næstu tvö árin. Í um-
ræðum hefur komið fram að
margir telja slíkar samnings-
skuldbindingar léttvægar og
skilja ekki af hverju fyrirtæk-
ið er að gera sér rellu út af mál-
inu. Virðast jafnvel halda að 365
vilji neyða Egil „með fógeta-
valdi“ til að starfa hjá sér, sem
auðvitað getur aldrei gerst. Tel
ég nauðsynlegt að skýra málið
frekar.
Viðræður okkar Egils um gerð
nýs samnings hófust í lok
mars sl. og á fundi hinn 19.
apríl náðum við saman í megin-
atriðum. Vildi Egill þó fá stutt-
an frest áður en endanlega yrði
gengið frá málinu. Hann sendi
mér skilaboð að morgni 22. apríl
um að hann gengi að því sem
við hefðum rætt um störf hans
fyrir fyrirtækið og við gengum
í síma frá munnlegum samningi
í framhaldi af því. Við ákváðum
að staðfesta þann samning með
tölvupóstsendingum okkar á
milli og sendi ég honum um hæl
eftirfarandi tölvupóst:
„Sæll Egill,
Staðfesti að eins og
við töluðum um í síman-
um áðan, þá er kominn
á samningur milli okkar
til a.m.k. 2ja ára, með
einum greiddum mán-
uði vegna sumarleyf-
is. Launagreiðsla til EH
xxx/mán. [fellt út vegna
trúnaðar]. Að öðru leyti
í samræmi við þann
ramma sem gilt hefur og það
sem farið hefur okkar á milli, en
við skulum klára skriflega út-
gáfu af þessu í vikunni.“
Egill svaraði átta mínútum
síðar: „OK, móttekið, ég fer á
laun 1. sept. – kv. Egill.“
Ég tel að fleiri gögn styðji mál-
stað 365 miðla en fer ekki út
í það plássins vegna. Þetta er
kjarninn. Ég hygg að öllum sé
ljóst sem lesa þessi samskipti að
ef málið hefði horft við á hinn
veginn, þ.e. 365 miðlar ákveð-
ið að taka þátt Egils af dagskrá,
en hann ekki verið að ráða sig
annars staðar, þá hefði fyrirtæk-
ið verið bundið við það að greiða
honum laun í tvö ár. Alveg krist-
altært! Það verður auðvitað að
virka í báðar áttir. Egill er reynd-
ar ekki venjulegur launamað-
ur, heldur sjónvarpsstjarna, sem
semur um hátt gjald til langs
tíma fyrir sig og vörumerki sitt.
Fyndist fólki eðlilegt að fótbolta-
stjarna sem hefði gengið frá 2ja
ára samningi við eitt lið gæti
bara labbað í burtu frá þeim
samningi? Myndi fólk þá segja:
Ja, hann verður auðvitað að ráða
með hvaða liði hann spilar mað-
urinn? Nei, aldeilis ekki. Allir
vita að þegar svona mál koma
upp í fótboltanum þarf að semja
um félagaskiptin.
Egill verður þó ekki frekar en
fótboltamaðurinn færður í bönd-
um inn á völlinn eða í stúdíóið.
Markmið 365 miðla með væntan-
legum málarekstri er einfaldlega
að fá staðfest hver lagaleg staða
málsins er, þannig að hægt sé að
vinna úr málinu á réttum grund-
velli. Það er í raun skylda okkar
sem stjórnum 365 miðlum að
fylgja málinu eftir, fyrst við telj-
um brotið á fyrirtækinu.
Það er 365 miðlum að meina-
lausu að Egill kjósi fremur að
starfa hjá RÚV, ef hann tekur
þær ákvarðanir í samræmi við
aðrar samningsskuldbindingar
sínar, en framkoma Egils í garð
365 miðla hefur verið vægast
sagt óvenjuleg. Í símtali 22. maí
innti ég Egil eftir stöðu mála, þar
sem m.a. stjórnarmenn og nánir
samstarfsmenn hjá 365 báru
venslafólk Egils og nafngreinda
starfsmenn RÚV fyrir því að
hann væri að fara þangað. Egill
fullvissaði mig um að samningur
okkar stæði eins og stafur á bók
og ekkert væri að marka kjafta-
sögur um annað. Þessu skýrði ég
frá innan fyrirtækisins og við
trúðum Agli. Á þessum tíma voru
liðnar um þrjár vikur frá því að
hann gekk frá samningi við RÚV.
Í Fréttablaðinu hefur komið
fram að Páll Magnússon útvarps-
stjóri er einn þeirra sem segjast
ekki skilja þegar fólk er þving-
að til vinnu með „fógetavaldi“.
„Mér finnst afskaplega sérkenni-
legt þegar fólk vill hætta í vinnu
sinni, að vinnuveitandi skuli
hanga á því eins og hundur á
roði. En menn þurfa auðvitað að
fljúga eins og þeir eru fiðraðir,“
segir Páll.
Maður hlýtur að spyrja: Er
það orðin opinber stefna í ríkis-
rekstrinum að líta á þá sem ein-
hverja furðufugla sem telja enn
að það eigi að virða gerða samn-
inga?
Það er því miður komið fram
sem flestir vissu, og Samkepn-
iseftirlitið lýsti í umsögn sinni
um RÚV-frumvarpið í vor, að sú
lagasetning hefur raskað mjög
samkeppnisstöðu á fjölmiðla-
markaði. Stjórnendur RÚV hafa
nú þrjá milljarða króna af skatt-
peningum til að yfirbjóða það
sem fyrir er á markaðnum, í
þeim tilgangi að búa til eftirsótt-
ara auglýsingasjónvarp. Þó kast-
ar tólfunum þegar ríkisfyrirtæk-
ið varðar ekkert um hvort samn-
ingar annarra kunni að hafa
verið brotnir í því ferli. Hvað
finnst menntamálaráðherra og
öðrum stjórnvöldum sem málið
snertir? Er það svona sem hlut-
irnir eiga að vera?
Höfundur er forstjóri 365 miðla.
Silfur Egils Helgasonar
Egill fullvissaði mig um að samningur okkar stæði eins og stafur
á bók og ekkert væri að marka kjaftasögur um annað. Þessu
skýrði ég frá innan fyrirtækisins og við trúðum Agli. Á þessum
tíma voru liðnar um 3 vikur frá því að hann gekk frá samningi
við RÚV.
Þær upphæðir sem
hafa verið nefndar sem
launagreiðslur til mín
bæði frá 365 og RÚV
eru fjarri veruleikan-
um eins og blaðamenn
Fréttablaðsins hefðu
getað komist að ef þeir
hefðu haft samband við mig. Veit
ég ekki hvaðan upplýsingar um
þær eru komnar. Skipti mín yfir
á Ríkisútvarpið eru ekki vegna
þess að þar hafi mér boðist meiri
peningar – heldur vegna þess að
ég tel framtíðarhorfurnar bjart-
ari í því fyrirtæki.
Samskipti mín við 365 und-
anfarna daga hafa styrkt mig í
þeirri trú. Það er betra að byggja
upp en rífa niður.
Í þessu ljósi er reyndar kald-
hæðnislegt að það blasir við að
í sumar verð ég á launalausum
uppsagnarfresti frá 365 − en eins
og komið hefur fram hefur fyrir-
tækið ekki greitt mér laun
á sumrin – án þess þó að
geta unnið fyrir mér ann-
ars staðar. Ég er ekki einu
sinni viss um að ég megi
blogga.
Eins og komið hefur fram
hef ég ákveðið að heiðra
meintan „samning“ við 365.
Ég hafna því að hann hafi
verið gerður, en til að koma
í veg fyrir þjark fyrir fóg-
eta og dómstólum kýs ég að fara
þessa leið. Vona þá að málið sé úr
sögunni.
Það er dagljóst að í hinum
meinta „samningi“ er 3 mán-
aða uppsagnarfrestur. Í síðasta
tölvupósti sem mér barst frá
Ara Edwald stendur að samning-
urinn verði að öðru leyti (fyrir
utan laun) „í samræmi við þann
ramma sem gilt hefur“. Í fyrri
samningum mínum við fyrirtæk-
ið hefur ávallt verið 3 mánaða
uppsagnarfrestur.
Ég hef þegar sagt upp hinum
meinta „samningi“. Þættir sem
ætlunin er að ég stjórni fyrir
RÚV fara í loftið í haust eins og
ráðgert var.
Auðvitað vildi ég vera á laun-
um eins og talað er um í dálki
Fréttablaðsins. Staðreyndin er
hins vegar að laun blaða- og fjöl-
miðlamanna á Íslandi eru frekar
léleg, sérstaklega ef miðað er við
forstjóra og lögmenn.
Höfundur er umsjónarmaður
Silfurs Egils.
Athugasemd frá
Agli Helgasyni
Eins og komið hefur fram hef
ég ákveðið að heiðra meintan
„samning“ við 365. Ég hafna
því að hann hafi verið gerður,
en til að koma í veg fyrir þjark
fyrir fógeta og dómstólum kýs
ég að fara þessa leið.
Ef þú kaupir Miele þvottavél eða þurrkara færðu
kaupverðið endurgreitt með betri meðferð á þvottinum
Íslenskt stjórnborð
Ný og betri tromla
Verð frá kr.106.600
Hreinn sparnaður
1.
verðlaun
í Þýskalandi
W2241WPS
Þurrkari T223
Verð frá kr. 78.540
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is