Fréttablaðið - 07.06.2007, Page 31
Þórdís Claessen elskar dökkblátt og hefur gam-
an af því að sjá gallabuxur eldast eins og vín.
„Öll þessi föt eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér, þó
að reyndar sé það hrein tilviljun að bæði skórnir og
hettupeysan séu frá Adidas. Ég er enginn sérstak-
ur aðdáandi Adidas en verð samt að viðurkenna að
hönnuðir þeirra kunna réttu handtökin þegar kemur
að hönnun „retro“ sportfatnaðar,“ segir Þórdís og
vísar um leið þeirri athugasemd blaðamanns frá að
fötin séu eitthvað strákaleg. „Mér finnst þetta ekk-
ert strákaleg föt. Dökkblár er bara einn af uppáhalds
litunum mínum og ef fólki finnst hann strákalegur
þá verður bara að hafa það,“ segir hún og hlær. „Ég
keypti þessar fínu Levis 511 gallabuxur í Manchest-
er á dögunum og á eftir að hafa gaman af því að sjá
hvernig þær eldast. Því er nefnilega svipað farið með
gallabuxur og rauðvín. Þær verða betri með aldrin-
um.“
Fyrir utan það að reka bolabúðina Ósómu ásamt
vini sínum Gulla, vinnur Þórdís að ýmsum auka-
verkefnum. Meðal annars tók hún að sér útlitshönn-
un Vildarleiðar Landsbankans fyrir ungt fólk og auk
þess notar hún tímann til að fylgja eftir bók sinni
um götulist í Reykjavík, en sú bók er eftir Þórdísi og
var gefin út af Gingko Press í Bandaríkjunum „Rétt
í þessu var ég að lesa lista yfir mest seldu bækur
landsins og þar er hún í öðru sæti,“ segir þessi káta,
kraftmikla stelpa að lokum.
.
Strákastelpa í stelpustrigaskóm