Fréttablaðið - 07.06.2007, Page 44
7. JÚNÍ 2007 FIMMTUDAGUR
Sumarsýning á verkum Hildar
Bjarnadóttur stendur nú yfir á
Heimilisiðnarsafni Blönduós.
Margir ferðamenn sækja sér fróð-
leik og skemmtun með því að skoða
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi.
Nýlega var opnuð sumarsýning
2007 í hluta Heimilisiðnaðarsafnsins
með verkum Hildar Bjarnadótt-
ur textíllistamanns. Hildur sækir
handavinnuaðferðir til fortíðarinn-
ar og setur þær í samhengi við nú-
tíðina, listina og samfélagið, að sögn
Elínar S. Sigurðardóttur, safnstjóra
Heimilisiðnaðarsafnsins.
„Hildur leggur mikla vinnu í
verk sín, sem við fyrstu sýn virð-
ast kannski einföld. Hún vefur
til dæmis málarastriga og býr til
mynstur í hann með þráðum sem
hún hefur málað áður, í stað þess
að mála á striga eins og listmálari,“
lýsir Elín gegnum síma. Hún nefnir
fleiri athyglisverðar aðferðir Elín-
ar eins og orkeringu og flos og lýsir
skemmtilegu myndverki af kúreka
sem sveiflar þræði sínum utan um
sig og menningu sína. Það er nokk-
uð sem maður verður að sjá með
eigin augum til að skilja fullkom-
lega. Því er gott tilefni til að koma
við á Heimilisiðnaðarsafninu þegar
leiðin liggur um Blönduós eða hrein-
lega gera sér þangað ferð.
Þess má geta að Hildur hefur
hlotið verðlaun fyrir verk sín bæði
hér á landi og erlendis. Þeirra á
meðal er íslenska sjónlistaorðan
fyrir myndlist sem hún fékk á síð-
asta ári. - gun
Ofið, flosað og orkerað
Hér nýtir Hildur aðferðir salúnvefnaðar og tengir með því málverk og handverks-
hefð.
Hér hefur Hildur fundið útsaumaðan dúk og flosað í mynstrið svo útkoman minnir á mosa eða skófir á steinum.
PRÓFAÐU...
...að kalla nafnið þitt þegar þú stendur við tjörnina innst í Ásbyrgi.
...að veiða síli í Botnsvatni fyrir ofan Húsavík.
...að baða þig í Jarðböðunum í Mývatnssveit.
...að leggjast niður á bakka Laxár í Aðaldal og horfa upp í himininn
á meðan þú hlustar á árniðinn og fuglasönginn.
MÆLT ER MEÐ...
...listsýningunni í Laxárvirkjun.
...Safnahúsinu á Húsavík.
...Samgönguminjasafninu Ystafelli.
...Nonnahúsi á Akureyri.
LEIÐSÖGUSKÓLINN
ICELAND TOURIST GUIDE SCHOOL
www.mk.is
Starfslýsing:
Ferðalög um fegurstu staði Íslands.
Upplifun náttúru og sögustaða ásamt
miðlun fróðleiks um land og þjóð til
erlendra og innlendra ferðamanna.
Ef þetta hljómar eins og eitthvað sem þú vilt
starfa við getur þú sótt um í Leiðsöguskólanum
því þetta er lýsing á starfi leiðsögumanns.
Afþreyingarleiðsögn
Almenn leiðsögn
Gönguleiðsögn
Leiðsögn með Íslendinga - NÝ NÁMSLEIÐ!
Hafðu samband og
fáðu nánari upplýsingar!