Fréttablaðið - 07.06.2007, Page 46
7. JÚNÍ 2007 FIMMTUDAGUR10 fréttablaðið norðurland
Í Saltvík við Húsavík eru haldin
reiðnámskeið, rekin hestaleiga
og boðið upp á gistingu. Elsa
Skúladóttir, einn af eigendum
Saltvíkur, segir að sífellt fleiri
erlendir ferðamenn komi
hingað til lands að prófa
íslenska hestinn.
Elsa segir að starfsemin í Saltvík
sé í raun tvískipt. „Annars vegar
erum við sjálf með hestaleigu
og reiðnámskeið og hins vegar
erum við verktakar fyrir Íshesta
og bjóðum upp á styttri og lengri
hestaferðir,“ segir hún.
Í Saltvík er einnig boðið upp á
gistingu fyrir þá sem það vilja.
„Við gefum okkur aðallega út fyrir
að vera með svefnpokagistingu
en erum að byrja með gistingu
í rúmum. Við erum með þrjár
tegundir af lengri hestaferðum
og í einni ferðinni er boðið upp
á uppábúið rúm sem er alltaf
að verða vinsælla og vinsælla,
annars er algengast að allir séu
í svefnpokum. Svo erum við með
heita potta og höfum verið að
bæta aðstöðuna heilmikið,“ segir
Elsa.
Vinsældir hestaferðanna eru
stöðugt að aukast og segir Elsa
að síðasta ár hafi verið algjört
metár. „Í fyrra vorum við með tólf
ferðir yfir sumarið en allt stefnir
í að þetta sumar verði enn betra
og við erum með bókaðar þrettán
ferðir. Í ferðunum eru aðallega
útlendingar og yfirleitt bara einn
og einn Íslendingur innan um, en
við vorum samt með tvær stórar
ferðir í fyrra sem í voru eingöngu
Íslendingar,“ segir hún.
Elsa segir að erlendu ferða-
mennirnir séu ekkert hræddir
við að fara í langar hestaferðir.
„Þetta er yfirleitt mjög vant reið-
fólk sem kemur en nýjungarnar
hjá því felast í íslenska hestinum
og villtri náttúrunni.“
Einnig er boðið upp á styttri
ferðir fyrir þá sem treysta sér
ekki í margra daga útreiðar og til
dæmis er hægt að kaupa tveggja
tíma útreiðatúr og þriggja tíma
hvalaskoðun saman í pakka.
„Þessar ferðir erum við með í sam-
starfi við Gentle Giants á Húsavík
og þær hafa verið rosalega vin-
sælar. Hægt er að velja um hvort
er gert á undan og það hefur verið
alveg sitt á hvað en yfirleitt sama
daginn. Allir hafa verið ofsalega
ánægðir með þessar ferðir.“
Þó aðal starfsemi Saltvíkur fari
fram á sumrin er líka ýmislegt
um að vera á veturna og nú er
boðið upp á reiðnámskeið allan
ársins hring. „Við prófuðum í
fyrsta skipti í vetur að vera með
vetrarnámskeið og settum okkur
það markmið að vera ánægð með
eitt námskeið sem myndi ganga.
Það endaði með fimm námskeiðum
á viku með 32 krökkum á aldrinum
sex til sextán ára. Það var alveg
æðislegt og við vorum að fá
inn mikið af krökkum sem hafa
kannski ekki verið í neinu öðru en
hafa fundið sig í hestunum,“ segir
Elsa ánægð.
emilia@frettabladid.is
Hesturinn heillar marga
Elsa og fjölskylda hennar reka Saltvík. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Íslenska náttúran er falleg og hefur
mikið aðdráttarafl.
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4