Fréttablaðið - 07.06.2007, Síða 60

Fréttablaðið - 07.06.2007, Síða 60
„Ég er eins og dýr matseð- ill, þú getur skoðað en hefur ekki efni á neinu.“ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Skúli Breiðfjörð Jónasson fyrrv. kaupfélagsstjóri, Mýrarvegi 117, Akureyri, andaðist á heimili sínu mánudaginn 4. júní. Útförin verður auglýst síðar. Guðrún Guðríður Guðmundsdóttir Elín Skúladóttir Oddfríður Skúladóttir Kristinn Skúlason Anna Pétursdóttir Jóhann Skúlason Margrét Guðmundsdóttir Skúli Jónas Skúlason Þórhildur Höskuldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Þórir Einarsson Sléttuvegi 21, áður Háaleitisbraut 56, lést á Landspítala Fossvogi föstudaginn 1. júní. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. júní kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Félag aðstand- enda Alzheimerssjúklinga. Margrét Sigurðardóttir Sigurður Örn Búason Þórunn Sighvats Elsa Hrönn Búadóttir Sigurður Jónasson Guðbjörg Guðmundsdóttir Jón Hrafn Jónsson Einar Már Guðmundsson Jóna Hálfdánardóttir Guðrún Eygló Guðmundsdóttir Heiðar F. Jónsson Hafdís Björk Guðmundsdóttir Jóhann Sveinsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær dóttir okkar og systir, Guðbjört Lóa Sæmundsdóttir Lyngholti í Dýrafirði, lést mánudaginn 4. júní síðastliðinn. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 12. júní kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna eða Barnaspítala Hringsins. Auðbjörg Halla Knútsdóttir Sæmundur Kr. Þorvaldsson Salvör Sæmundsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Aðalbjörn Stefánsson Hraunbæ 26, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju mánudaginn 11. júní kl. 13.00. Sigurbjörg Ernudóttir Erna Kristín Sigurjónsdóttir Jóhann Þór Sigfússon Einar Stefán Aðalbjörnsson Signý Ingvadóttir Stefán Aðalbjörnsson Helga Irma Sigurbjörnsdóttir barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Elín Sigurðardóttir Fögrukinn 9, Hafnarfirði, lést á heimili sínu aðfaranótt sunnudags 3. júní. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstu- daginn 8. júní og hefst kl. 15.00. Trausti Ó. Lárusson Auður Traustadóttir Guðmundur Á. Tryggvason Anna Kristín Traustadóttir Sigrún Traustadóttir Óskar Lárus Traustason Guðrún Pálsdóttir Elín Ósk, Trausti, Svava Dís, Bjarni, Tryggvi, Páll Arnar og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ríkarður Magnússon múrarameistari, Hrafnistu, Hafnarfirði, andaðist sunnudaginn 20. maí. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Magnús S. Ríkarðsson Halldóra M. Ríkarðsdóttir Ríkarður M. Ríkarðsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Gunnar Þormóðsson pípulagningameistari lést á Líknardeild Landspítalans þann 4. júní 2007. Útför verður frá Digraneskirkju þann 11. júní kl. 11.00. Aðstandendur. Ástkær faðir, tengdafaðir og afi, Þórir Hans Ottósson Hátúni 10b, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 31. maí á líknardeild Landspítalans, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 8. júní kl. 11.00. Aðstandendur. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, dóttir og tengdadóttir, Alrún Magnúsdóttir Hlíðarbyggð 42, Garðabæ, lést 6. júní á Kvennadeild Landspítalans. Gunnar Ingimarsson Guðmunda Inga Gunnarsdóttir og fjölskylda Eyrún Harpa Gunnarsdóttir og fjölskylda Magnús Þór Gunnarsson Alma Lindqvist Einar Runólfsson Guðmunda Guðnadóttir Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson MOSAIK Í dag verður haldið mál- þing á Grand hóteli kl 13-16, um persónumiðaða umönn- un fólks með heilabilun. Það eru JPV útgáfa, Fagdeild hjúkrunarfræðinga í öldrun- arþjónustu og Nordic Ligths sem efna til málþingsins í til- efni af nýrri þýðingu Svövu Aradóttur á bókinni Ný sýn á heilabilun eftir Tom Kit- wood. „Kitwood skrifaði bók- ina 1997 og lést árið eftir,“ segir Svava sem hefur nýtt sér kenningar hans við nám- skeiðahald á vegum fyrir- tækis síns Nordic Lights, sem sérhæfir sig í fræðslu um heilabilun og umönnun fólks með heilabilunarsjúk- dóma. Svava er hjúkrunarfræð- ingur að mennt en hefur sér- hæft sig í umönnun fólks með heilabilun. „Námskeið- in sem ég hef haldið hér á landi hafa fengið mjög góðar undirtektir og því fannst mér orðin brýn þörf á að koma þessu til skila á íslenskri tungu. Þá fór ég í það að fá þýðingarréttinn í samstarfi við JPV útgáfu,“ segir Svava og bætir því við að bókin hafi þótt mjög bylt- ingakennd þegar hún kom út á sínum tíma. „Nú eru kenningar Kitwoods orðn- ar þekktar um allan heim og búið að þýða bókina á fjölda tungumála.“ Svava segir nálgun Kit- woods á viðfangsefnið mjög áhugaverða en hann var prófessor í sálfræði, nátt- úrufræðingur og guðfræð- ingur. „Hann segir að fyrst og fremst eigi að horfa á per- sónuna, eða manneskjuna, í miðpunktinum og síðan er sjúkdómurinn hluti af því. Þannig vill hann leggja áherslu á persónulega heild einstaklingsins í stað þess að hafa stöðluð viðmið í um- önnun þar sem allir eru sett- ir undir sama hatt.“ Svava segir að þegar fólk með heilabilun sé í umönn- unarumhverfi þar sem eng- inn skilningur eða þekking er á sjúkdóminum og jafnvel enginn metnaður þá geti ekki annað en farið illa. „Skila- boðin í bókinni eru að hægt sé að hægja á ferlinu með fé- lagssálfræðilegu umhverfi. Fólk þarf að finna skilning og umhyggju og hjálp við að varðveita persónulega heild sína þegar sjúkdómurinn hefur tekið frá því allt mik- ilvægi og öll hlutverk vegna færnisskorts. Þar að auki er umhverfið oft dæmandi og jafnvel lamandi vegna þess að fólk veit ekki hvað það á að gera. Það leiðir til enn minna sjálfstrausts, sjálfs- forræðis, ótta og angist- ar,“ segir Svava en henni finnst það gríðarlega brýnt að stjórnvöld marki stefnu í sambandi við málefni fólks með heilabilun. „Hvaða úr- ræði viljum við bjóða upp á önnur en hjúkrunarrými? Hvernig veljum við það fólk sem vinnur þessi störf og hvaða kröfur gerum við til þeirra? Það geta ekki allir unnið þessi störf því þetta er erfiðasta umönnun sem hugsast getur,” segir Svava.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.