Fréttablaðið - 07.06.2007, Qupperneq 66
Spennusagan Grafarþögn eftir
Arnald Indriðason hlaut frönsku
bókmenntaverðlaunin Grand Prix
des Lectrice de Elle í síðustu viku.
Þetta eru önnur þarlendu verð-
launin sem bókin hlýtur en þess
má geta að saga hans Mýrin hefur
einnig hlotið tvenn frönsk bók-
menntaverðlaun.
Grand Prix des Lectrice de
Elle eru þekkt verðlaun í Frakk-
landi sem hafa verið veitt í fag-
urbókmenntum frá 1970 og fyrir
glæpasögur frá 2003. Verðlaunin
hafa áður hlotið bækur á borð við
Tell No One eftir Harlan Coben
og Shutter Island eftir Dennis
Lehane.
Arnaldur
lofaður
Tónlistarhópurinn adapter
gengst nú í annað sinn fyrir
tónlistarhátíðinni frum- en
markmið hennar er að vera
vettvangur fyrir flutning
samtímatónlistar í Reykja-
vík. Að þessu sinni verða
frumflutt sjö verk eftir
þýsk og íslensk tónskáld
auk þess sem leitað verður í
sarp ítalsks tónasmiðs sem
er fáheyrður hér á landi og
efnt til Feldman-maraþons.
Gunnhildur Einarsdóttir, hörpu-
leikari og einn forsprakka adapter,
segir að hátíðin í fyrra hafi mælst
afar vel fyrir, einkum hjá tónlist-
aráhugafólki sem fagnaði tæki-
færi til að hlýða á verk frægari
tónskálda 20. aldarinnar. „Okkur
fannst um að gera að endurtaka
leikinn,“ segir Gunnhildur en afar
góð stemning skapaðist í Iðnó þar
sem tónleikarnir fóru fram. Nú er
stefnan sett á Kjarvalsstaði en þar
heldur adapter þrenna tónleika en
hópinn skipa auk Gunnhildar þau
Kristjana Helgadóttir sem leik-
ur á flautur, Ingólfur Vilhjálmsson
klarinettuleikari, píanóleikararnir
Marc Tritschler og Elmar Schram-
mel og slagverksleikarinn Matthias
Engler.
Hinir fyrstu fara fram kl. 20
annað kvöld en þá verða frum-
flutt sjö verk. Þrjú verkanna eru
eftir íslensk tónskáld; Atla Ingólfs-
son, Davíð Brynjar Franzson og
Inga Garðar Erlendsson. Hin fjög-
ur eru eftir þýsku tónskáldin Tom
Rojo Poller, Asmus Trausch, Se-
bastian Winkler og Yoav Pasovsky.
Stjórnandi verður Manuel Nawri.
Tónleikar þessir eru liður í þýsk-
íslensku samstarfsverkefni adap-
ater og tónskáldafélagins Klang-
netz sem starfar í Berlín en meðal
markmiða þess er að rannsaka
nýjar leiðir til þess að flytja sam-
tímatónlist í samvinnu við aðrar
listgreinar. „adapter er í grunninn
þýsk-íslenskt samstarfsverkefni,
við höfum starfað mikið með þýsk-
um tónskáldum og listamönnum og
vildum skipuleggja stærra verkefni
í kringum það,“ útskýrir Gunnhild-
ur. Hópurinn leitaði til tónskáld-
anna sjö sem öll sömdu verk fyrir
óvenjulega hljóðfæraskipan kvint-
ettsins sem myndar kjarna adapter.
Gunnhildur segir að verkefni þetta
hafi heppnast afar vel: „Við héldum
þrenna tónleika í Þýskalandi með
þessari efnisskrá og fengum mjög
góð viðbrögð,“ segir hún og árétt-
ar að Íslendingar mæti miklum vel-
vilja hjá Þjóðverjum. Gunnhildur
segir verkin afar kraftmikil og for-
vitnileg. „Þau eru samin fyrir sömu
hljóðfærin og eru öll afar ólík. Það
er áhugavert að heyra hversu mis-
munandi slík verk eru þó að þau
séu samin á sama tíma fyrir sama
tilefni.“
Hópurinn endurnýjar kynni
hlustenda af tónskáldinu Franco
Donatoni á tónleikum laugardags-
kvöldins en verk eftir hann var
flutt á síðustu frum-hátíð. Nú leika
félagar hópsins fimm mismun-
andi einleiksverk þessa ítalska tón-
skálds sem ekki hljóma oft hér á
landi. „Donatoni samdi mikið af
einleiksstykkjum fyrir alls konar
hljóðfæri. Hann var sérstakt tón-
skáld með sérstætt tónamál,“ segir
Gunnhildur og bætir við að verk-
in séu afar virtuósísk og krefjandi
fyrir tónlistarfólkið.
Körfurnar á listamennina verða
ekki minni á sunnudaginn þegar
flautuleikarinn Kristjana, Matthias
slagverksleikari og Elmar Schram-
mel píanóleikari flytja verk Mort-
ons Feldman „For Philip Guston“
frá árinu 1984. Gerður var góður
rómur að flutningi hópsins á verk-
inu „Crippled Symmetry“ í fyrra
en hann tók hálfan annan tíma. „Nú
göngum við alla leið og flytjum verk
sem verður tæpir fimm tímar,“ út-
skýrir Gunnhildur og spaugar með
að hún sé ekki alveg viss hvern-
ig flytjendurnir muni halda út það
maraþon. „Þetta verður ábyggilega
talsvert álag en Matthias og Elmar
hafa spilað það áður.“ Hún segir að
verkið sé mikil upplifun fyrir hlust-
endur en ekki sé ætlast til þess að
þeir sitji við allan tímann heldur
geti þeir komið og farið. „Verkið
var samið til flutnings á listasafni
og er tileinkað vini Feldmans sem
var málari.
Ég hvet bara fólk til þess að koma
og skora á það að sitja sem lengst –
þetta verður alveg einstakt ferða-
lag inn í magnaðan tónheim. Tón-
listin hans Feldmans er afar falleg
og mjög hæg, það er vart hægt að
lýsa henni.“
Tónleikarnir á sunnudaginn hefj-
ast kl. 12 og standa til kl. 17. Þeir
fara fram í einum hliðarsal Kjar-
valsstaða.
4 5 6 7 8 9 10
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is