Fréttablaðið - 07.06.2007, Qupperneq 69
George Clooney, Brad Pitt, Matt
Damon og félagar eru mættir aftur
í þriðju Ocean´s-myndinni, Ocean´s
Thirteen. Fyrsta myndin, Ocean´s
Eleven, var endugerð samnefndar
myndar frá árinu 1961 með rottu-
genginu í aðalhlutverki; Frank Sin-
atra, Dean Martin og Sammy Davis
Jr. Gerðist hún í Las Vegas, rétt
eins og nýjasta myndin.
Í þetta sinn ætla Ocean (Clooney)
og félagar að ræna spilavítið The
Bank sem er í eigu hins vægð-
arlausa Willys Bank (Al Pacino).
Bank gerir sjálfum sér þann grikk
að svíkja góðvin Ocean illilega og
fyrir vikið kallar hann yfir sig vel
skipulagt og öflugt ræningjagengi
sem ætlar sér að launa honum
lambið gráa.
Auk gæðaleikarans Als Pacino
hefur bæst í hópinn leikkonan
Ellen Barkin, sem leikur aðstoðar-
konu hans, Abigail Sponder. Julia
Roberts og Catherine Zeta Jones
eru hvorugar í leikarahópnum að
þessu sinni.
Leikstjóri er sem fyrr Steven
Soderbergh sem á að baki mynd-
ir á borð við Traffic, Sex Lies and
Videotape og Out of Sight. „Þegar
við vorum að klára aðra myndina
fannst mér sniðugt að við færum
aftur til Las Vegas fyrir þá næstu.
Ein stærsta ástæðan fyrir því að
myndin var gerð var að allir vildu
starfa saman á nýjan leik.
Við vissum samt að það yrðu allir
að taka þátt því annars yrði mynd-
in ekki að veruleika,“ sagði Sode-
bergh.
Ocean aftur til Las Vegas
Richard Gere leikur einn mesta
svindlara allra tíma í kvikmynd-
inni The Hoax. Myndin er byggð
á sannsögulegum atburðum í ævi
Cliffords Irving, sem hélt því
fram árið 1971 að hann hefði feng-
ið leyfi til að skrifa endurminning-
ar auðjöfursins sérvitra, Howards
Hughes.
Eftir að bókin kom út þurfti hann
að hafa sig allan við til að sanna
að hann hafi virkilega fengið leyf-
ið en ekki bara skáldað í eyðurn-
ar. Auk Gere fara með helstu hlut-
verk í myndinni Marcia Gay Hard-
en, Hope Davis, Julie Delpy og
Alfred Molina. Leikstjóri er Sví-
inn Lasse Hallström sem á að baki
myndir á borð við Cider House
Rules, Chocolat og Casanova.
Svindlarinn
Cliff Irving
George Clooney, Brad Pitt og Matt
Damon settu allir handarför sín og
fótspor á frægðarstéttina í Holly-
wood í tilefni af frumsýningu á
myndinni Ocean´s 13. Jerry Wein-
traub varð jafnframt fyrsti fram-
leiðandinn til að komast á frægðar-
stéttina.
„Ef ég þyrfti að vera skríðandi
með þremur öðrum náungum gæti
ég ekki hugsað mér betri menn til
þess en þá,“ sagði Clooney við at-
höfnina. Weintraub var jafnframt
hæstánægður.
„Ég geri mér fulla grein fyrir
því að þetta snýst allt saman um
mig en ekki þessa þrjá náunga,“
sagði hann.
Á frægðarstéttina
Leikarinn Russel Crowe hefur
stofnað sitt eigið framleiðslu-
fyrirtæki sem nefnist Fear Of God
Films. Fyrsta myndin undir hatti
þess verður rómantíska gaman-
myndin Dolce´s Inferno sem byggð
er á handriti Marks Staufer.
„Ég hlakka til að vinna með
Mark því hann er mjög hæfileika-
ríkur höfundur,“ sagði Crowe.
Hann hefur áður daðrað við fram-
leiðslu því fyrir fimm árum fram-
leiddi hann heimildarmyndina
Texas. Crowe leikur næst í Hróa
Hattar myndinni Nottingham í
leikstjórn Ridleys Scott, sem ein-
mitt stýrði honum svo eftirminni-
lega í Gladiator.
Stofnar nýtt
fyrirtæki
HÚSIÐ OPNAR KL. 23.00
H MIÐAVERÐ 1500 KR.ÚSIÐ OPNAR KL. 23.00
MIÐAVERÐ 1500 KR.
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
SSSÓL
SUNRISE
BONANSA
VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA
2. Í AFMÆLI
GÓÐIR ÍSLENDINGAR
GULLFOSS OG GEYSIR
DJ. GHOST
PLUGG’D
FÖSTUD. 8. JÚNÍ 2007
LAUGARD. 9. JÚNÍ 2007