Fréttablaðið - 07.06.2007, Blaðsíða 74
„Víkingarnir eru farnir að
streyma að. Við erum byrjuð að
reisa tjaldbúðir og þetta er allt
saman að koma,“ segir Jóhannes
Viðar Bjarnason fjörugoði á
Fjörukránni í Hafnarfirði. Hann
stendur fyrir hinni árlegu vík-
ingahátíð þar í bæ sem hefst nú á
föstudaginn.
Jóhannes býst við um hundrað
víkingum erlendis frá og viðlíka
fjölda innlendra víkinga.
„Það verða stanslausar uppá-
komur frá morgni til kvölds alla
helgina og nóg um að vera fyrir
alla,“ segir Jóhannes. Heilir
lambsskrokkar verða eldaðir yfir
opnum eldi, leikhópar og tónlist-
arfólk leikur listir sínar. Magnús
Ver verður með keppni um sterk-
asta víkinginn og það verða bar-
dagar, glímur og bogfimikeppni.
Einnig verður handverksfólk við
vinnu sína. Það mun smíða sverð
og hnífa að fornum sið, skera út,
vefa og margt fleira.
Erlendu gestirnir hafa marg-
ir sitt lifibrauð af því að ferðast á
milli víkingahátíða og selja hand-
verk sitt. Jóhannes segir strang-
ar reglur gilda um klæðaburð vík-
inga, efni, muni og annað. Allt
þarf að eiga sér fyrirmynd í forn-
um munum. „Íslensku víkingarnir
eru sjaldnast í víkingafötum dag-
lega en ég sjálfur hef nú reyndar
klæðst víkingaklæðnaði síðustu
sautján ár.“
Víkingahátíðin verður sett á
föstudaginn klukkan 17 við Fjöru-
krána og verður opin alla helgina.
Henni lýkur svo með heljarinnar
blóti sunnudaginn sautjánda júní.
Víkingar herja á Hafnarfjörð
Áhorfendur sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar ráku
margir hverjir upp stór augu í gærkvöldi en þá var
mættur á skjáinn Guðmundur nokkur Benedikts-
son, knattspyrnumaður úr Val, til að lýsa leik Eng-
lendinga og Eista. Guðmundur, sem hefur lýst enska
boltanum á samnefndri sjónvarpsstöð síðustu þrjú
ár, hefur hafið störf sem íþróttafréttamaður á Sýn.
„Enski boltinn er skemmtilegasta íþrótt í heimi
svo ég gat ekki annað en fylgt henni þegar tæki-
færið gafst,“ segir Guðmundur, en sem kunnugt er
tryggði Sýn sér sýningarréttinn á enska boltanum
fyrir skemmstu.
Síðustu þrjú ár hefur Skjárinn haft réttinn á enska
boltanum og þar hefur Guðmundur verið einn af
aðalþulunum. Það fer því fjarri að hann sé einhver
nýgræðingur í bransanum. „Ég þekki þetta ágæt-
lega og hef líka svo ofboðslega gaman af þessu. Það
skiptir mestu máli,“ segir Guðmundur, sem vænt-
anlega fær einnig að spreyta sig í að lýsa öðrum
íþróttagreinum en fótbolta í framtíðinni. „Ég er vel
að mér í flestum íþróttum
Störf Guðmundar í sjálfri fréttamennskunni
verða þó af skornum skammti í sumar á meðan
hann er sjálfur í eldlínunni í Landsbankadeildinni.
„Ég myndi alveg treysta sjálfum mér til að vera
hlutlaus í íþróttaumfjöllun en það er spurning hvort
aðrir myndu taka mark á mér,“ segir Guðmundur og
hlær. Vegna nýja starfsins útilokar Guðmundur ekki
að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið í sumar. „Ég
er ekki farinn að spá í þá hluti á þessari stundu. Það
verður bara að fá að koma í ljós í haust.“
Gummi Ben í íþróttafréttirnar
Skemmtistaðir í Reykjavík
hafa í síauknum mæli tekið
upp svokallaðan „dress-
code“ eða fatareglur fyr-
ir gesti sína. Þar virðast
hettupeysur og derhúfur
vera efst á útrýmingarlist-
anum.
„Þetta er fyrst og fremst varúð-
arráðstöfun því við viljum geta
borið kennsl á gesti staðarins ef
eitthvað kemur upp á. Þess vegna
biðjum við fólk að taka ofan höf-
uðfatið um leið og þeir ganga inn.
Síðan geta menn svo sem sett það
upp aftur þegar inn er komið,“
segir Arnar Þór Gíslason, fram-
kvæmdarstjóri Óliver.
Á dögunum bar á því að fyrir
framan skemmtistaðinn væri fólki
gert skylt að taka ofan derhúfurn-
ar og jafnvel fara úr hettupeys-
um. „Við leyfum okkur að gera at-
hugasemdir við klæðnað hjá fólki
því við höfum lent í því að fá stóra
fyrirtækjahópa, merkta ákveðn-
um vörumerkjum, beint ofan af
fjalli sem samræmist ekki kröf-
um staðarins,“ bætir Arnar við og
segir að gestir staðarins taki yfir-
leitt vel í athugasemdir dyravarða
og stundum hafi fólk hreinlega
farið heim, skipt um föt og mætt
galvaskt aftur.
Arnar Þór neitaði því staðfast-
lega að gestum staðarins væri
meinuð innganga væru þeir í
hettupeysum. „Menn verða auðvit-
að að vega það og meta hvort fötin
eru hluti af einhverju „lúkki“ eða
ekki. En Óliver er auðvitað staður
fyrir alla, hvort sem þeir eru með
derhúfur eða í hettupeysum en við
viljum bara að gestir okkar séu
snyrtilegir til fara.“
Á Thorvaldsen var manni ný-
lega gert að fara úr útivistarúlpu
og sagði Emil Ólafsson skemmt-
anastjóri að hann sæi prívat og
persónulega um það að fólk væri
í „trendy klæðnaði“ eins og hann
komst sjálfur að orði. „Það sam-
anstendur meðal annars af jakka-
fatajakka, skyrtu og leðurskóm
eða fínum strigaskóm,“ útskýr-
ir Emil sem telur vera til hóp Ís-
lendinga sem vill fara á fínni staði
og vilji skemmta sér í friði með
sínum vinum.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Austurbergi 5 111 Reykjavík Sími 570 5600
Símbréf 567 0389 Tölvupóstur: fb@fb.is
www.fb.is
Innritun í Fjölbrautaskólann í Breiðholti
er á netinu eða á skrifstofu skólans
frá 09:00 til 15:00 og lýkur 11. júní.
Mánudaginn 11. júní verða
náms- og starfsráðgjafar skólans
til viðtals frá kl. 9 – 18.