Fréttablaðið - 07.06.2007, Síða 86
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég fæ mér jógúrt með mömmu-
múslíi. Það er múslí sem
mamma býr til með einhverjum
tíu tegundum af fræjum og alls
konar dóti. Voða hollt.“
„Þetta er Ásinn sem mér skilst að
sé minnsti Bimminn. Maður er nú
ekkert eins og díler í Breiðholti þó
maður keyri á BMW. Þetta er bara
þægilegur og flottur bíll,“ segir
sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blön-
dal sem keyrir nú um á glæsilegri
BMW-bifreið.
Bílamál Auðuns voru á allra
vörum fyrir nokkrum árum þegar
hann auglýsti Hyundai Coupe-bíl
sinn ítrekað til sölu í sjónvarpsþætt-
inum Strákunum. Þann bíl keypti
hann á bílaláni þegar hann fékk bíl-
prófið 17 ára gamall. Ekki er hægt
að segja að vel hafi gengið að selja
bílinn, þó hann hafi á endanum losn-
að við hann. Þá hafði verðið lækk-
að um 650 þúsund frá því sem Auð-
unn vildi upphaflega fá fyrir hann.
„Það var góð lexía,“ segir Auðunn
nú. „Mér fannst svo sem ekkert að
þeim bíl en konunni minni og vinum
fannst asnalegt að ég væri á sama
sportbíl og þegar ég var 17 ára.“
Eftir að Coupe-ævintýrinu lauk
hefur Auðunn keyrt um á Ren-
ault Megane og Toyta Aygo.
Þangað til nú að hann er
kominn á glæsikerru. Bíllinn
er 115 hestöfl og kostar hátt í
þrjár milljónir króna frá um-
boðinu.
Þrátt fyrir þetta
vill Auðunn alls ekki
meina að hann sé orð-
inn einhver milljóna-
mæringur. „Nei, nei.
Maður er bara búinn
að vera duglegur að spara og svo
langaði mig aðeins að „tríta“ mig.
Svo er ég líka í góðu samstarfi við
B&L. Ég er kannski ekki á neinum
Bubba-bíl en ég er sáttur.“
Auddi flottur á glænýjum BMW
Skemmtiþáttur Dr. Gunna heit-
ir nýr útvarpsþáttur sem hefur
göngu sína á Rás tvö á laugar-
daginn kemur. Í þættinum mun
Dr. Gunni stýra Sólópunkti, sem
er spurningaleikur um tónlist þar
sem sólótónlistarmenn mætast.
Fyrstu keppendur Sólópunkts eru
pönktónlistarmaðurinn Ceres 4 og
Svavar Knútur, söngvari Hrauns.
Í skemmtiþættinum mun Dr.
Gunni líka bjóða upp á óska-
lög fyrir starfsstéttir. „Ein-
hverra hluta vegna hafa ungling-
ar, sjúklingar og sjómenn einok-
að óskalagaþættina en nú ætla ég
að gefa öðrum tækifæri,“ segir
doktorinn. „Tattúgerðarlista-
menn fá fyrstir að velja óskalög
svo það má búast við þungarokki,
nema þeir komi á óvart og velji
bara múm eða balletttónlist.“
Í þættinum verður einnig boðið
upp á sprenghlægilega topp tíu
lista, klikkaðasta lag þáttarins og
svo tónlist úr ýmsum áttum. „Ég
ætla að fylla þáttinn af sumar-
legri stuðtónlist,“ segir Gunni.
Þátturinn verður sem fyrr segir
á laugardögum á Rás tvö frá fjög-
ur til sex.
Býður starfsstéttum upp á óskalög
„Það er mikil hamingja hér eftir
einstaklega vel heppnaðan dag.
Þetta var dásamlegt,“ segir Guð-
mundur Árni Stefánsson, sendi-
herra Íslands í Svíþjóð, sem nú má
með réttu kalla sig tónleikahald-
ara og rótara eftir að hafa staðið
í ströngu við að skipuleggja tón-
leika Stuðmanna í Stokkhólmi á
þriðjudagskvöld.
Í tilefni af landsleik Íslendinga
og Svía í gærkvöldi stóðu Guð-
mundur Árni og félagar í sendi-
ráðinu að margvíslegum uppák-
omum í Stokkhólmi á þriðjudag.
Dagskráin náði hámarki um kvöld-
ið þegar Stuðmenn og fleiri gestir
komu fram á stórtónleikum í hinu
glæsilega Kína-leikhúsi í Stokk-
hólmi.
Um 1100 manns sáu Stuðmenn
spila alla sína helstu slagara, en
þeim til fullþingis voru Björgvin
Halldórsson og KK auk þess sem
30 manns úr karlakórnum Fóst-
bræður tóku lagið.
Íslensk fyrirtæki sem eru að
hasla sér völl í Stokkhólmi studdu
vel við bakið á sendiráðinu og
gerðu það að verkum að gestum
var hleypt á tónleikana endur-
gjaldslaust. Stuðst var við gamla
og góða lögmálið „fyrstur kemur,
fyrstur fær“ og voru Íslendingar í
miklum meirihluta á tónleikunum,
flestir búsettir í Stokkhólmi og ná-
grenni höfuðborgarinnar.
„Þetta fór líka svo ljómandi vel,
nánast fullt hús og rífandi stemn-
ing,“ segir Guðmund-
ur Árni, sem þrátt
fyrir velgengnina
býst ekki við að leggja tónleika-
haldið fyrir sig eftir að pólit-
íska starfsferlinum lýkur. „Nei,
ég held að það liggi alveg ljóst
fyrir. En við erum alveg tilbúin
að gera þetta aftur ef tónleik-
arnir gera Ísland sýnilegt á
erlendum vettvangi,“ segir
sendiherrann.
Eins og áður segir stóð sendi-
ráðið fyrir fleiri viðburðum, til
dæmis pallborðsumræðum um
fótbolta og peninga sem og krafta-
keppni á milli Íslendinga og Svía
þar sem Magnús Ver Magnússon,
fyrrum sterkasti maður heims,
var sérlegur keppnisstjóri. Guð-
mundur segir að 25 stiga hiti og
glampandi sól hafi verið á meðan
kraftakeppninni stóð og að kepp-
endur hafi farið langt með að
drepa sig í hitanum.
„Þeir gáfu sig hins vegar alla í
verkefnið eins og við var að búast
og höfðu það að sjálfsögðu af.“
Svo fór að þjóðirnar skildu jafn-
ar, hlutu hvor um sig sjö og hálfan
vinning, en hundruð manna lögðu
leið sína á Ármannstorgið í hjarta
Stokkhólms þar sem kraftakeppn-
in var haldin á þriðjudag.