Fréttablaðið - 08.06.2007, Qupperneq 34
BLS. 4 | sirkus | 8. JÚNÍ 2007
T ómas Ottó Hansson, fram-kvæmdastjóri Novator, hefur fest kaup á glæsikerru af gerð-
inni Mercedes Benz S65 AMG af bíla-
umboðinu Öskju. Tómas Ottó, sem á
þýskan föður og er að sögn þeirra sem
til þekkja mikill aðdáandi hinna
þýskættuðu Benz-bifreiða, mun nota
bílinn til eigin þarfa en auk þess mun
Novator nýta sér bílinn til að ferja
erlenda gesti félagsins á milli staða í
Reykjavík. Bíllinn er einn sá glæsileg-
asti á Íslandi, með 612 hestafla vél, og
kostar samkvæmt heimildum Sirkus
um 36 milljónir. Bíllinn kom gullleitur
til landsins en verður sprautaður
svartur áður en hann fer á götuna.
Töluvert hefur færst í vöxt að
íslensk stórfyrirtæki og eigendur
þeirra fjárfesti í glæsikerrum með
einkabílstjórum til að ferja gesti og
starfsmenn fyrirtækjanna á milli.
Þannig eru Bakkabræðurnir Lýður og
Ágúst Guðmundssynir með Audi S8-
bíl og Hannes Smárason með BMW
760. Baugur Group hefur einnig yfir
að ráða nokkrum Range Rover-
jeppum sem gestir fyrirtæksins eru
keyrðir um í.
Þetta er ekki fyrsti bíll þessarar teg-
undar Benz sem kemur á götur
borgarinnar. Materia Invest, sem er í
eigu þeirra Magnúsar Ármanns, Þor-
steins M. Jónssonar og Kevins Stan-
ford, flutti inn einn
slíkan í lok mars.
Sá bíll er svartur
og þykir með
huggulegri
bílum á land-
inu.
Heyrst hefur
Veiddu 350 laxa á viku á
Kólaskaga í Rússlandi
Laxveiðimaðurinn Hilmar Hansson og þrír
félagar hans mokveiddu af laxi í opnunar-
vikunni í Ponoi á Kólaskaga í Rússlandi.
Hilmar var þar ásamt tveimur Íslendingum
og einum Breta en hann hefur séð um að
skipuleggja veiðiferðir Íslendinga til Rúss-
lands undanfarin ár. Hilmar veiddi sjálfur
97 laxa og 30 sjóbirtinga en samanlagt
veiddu þeir fjórir 350 laxa. Opnunarvikan
í ánni skilaði 1.017 löxum á 16 stöngum
og segir Hilmar í samtali við Sirkus að
veiðin hafi verið ótrúleg. „Og þetta voru
heldur engin smásíli heldur voru 25 pró-
sent fiskanna yfir 8 pund og nokkrir frá
18 upp í 21 pund,“ segir Hilmar. Fjór-
menningar slepptu öllum löxunum aftur
enda hefðu þeir þurft heilan frystigám
undir aflann til að flytja hann heim eins og
Hilmar orðar það. Hann segir það stöugt
vera að færast í vöxt að íslenskir veiði-
menn skelli sér í vikutúr til Rússlands yfir
sumartímann. „Veiðimenn vilja veiða og
ég get nefnt sem dæmi að það er talið að
allt að 100 þúsund laxar séu í ánni sem
við veiddum í. Það er því nóg eftir af
fiski,“ segir Hilmar og hlær.
GLÆSIKERRA Bíllinn sem Tómas keypti tók sig vel út í sýningarsal Öskju í vikunni.
TÓMAS OTTÓ HANSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI NOVATOR, ELSKAR ÞÝSKA STÁLIÐ
KAUPIR 36 MILLJÓNA BENZ
EIGA EINS BÍL
Athafnamennirn-
ir Magnús
Ármann og
Þorsteinn M.
Jónsson fjárfestu
í eins bíl og
Tómas Ottó fyrir
skömmu.
É g lék í þremur söngleikjum á Íslandi á einu ári og gat einfaldlega ekki hugsað
mér að leika enn eitt hlutverkið í
söngleik. Það var ástæðan fyrir
því að ég hafnaði hlutverki í
söngleiknum,“ segir leikkonan
Halla Vilhjálmsdóttir í samtali
við Sirkus spurð um ástæðu þess
að hún hafnaði hlutverki í söng-
leiknum Eurobeat sem setja á
upp á West End í London í haust.
„Ég lék í Túskildingsóperunni,
Footloose og Hafinu bláa og fékk
nóg,“ segir Halla.
Henni var boðið hlutverkið eftir
að hún mætti í prufur sem voru
hennar fyrstu þar ytra í eitt og
hálft ár, eða frá því að hún kláraði
námið í London og kom til Íslands.
„Ég þurfti á því að halda að fara í
prufur og sanna það fyrir sjálfri
mér og umboðsmanninum mínum
að ég gæti þetta ennþá. Það gaf
mér smá auka sjálfstraust að sjá
að ég er ekki dauð úr öllum æðum,“
segir Halla og hlær.
Spurð um næstu verkefni segir
Halla það vera algjört leyndar-
mál. „Það er fullt af hlutum í
gangi. Í augnablikinu er ég
atvinnulaus auðnuleysingi en
það breytist bráðum,“ segir Halla
og bætir við að hún sé alveg til í
að ströggla svolítið. „Ég er ekki
of góð fyrir það.“
HAFNAÐI HLUTVERKI Í
SÖNGLEIK Í LONDON
VILL EKKI ENDA Í SÖNGLEIKJUM Halla segist hafa hafnað hlutverkinu í söngleikn-
um vegna ótta við að festast í slíkum hlutverkum.