Fréttablaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 36
BLS. 6 | sirkus | 8. JÚNÍ 2007 Þ etta er svakalegt sjokk en von-andi verður þetta dropinn sem fyllir mælinn og fær hann til að snúa við blaðinu fyrir alvöru,“ segir Sveinbjörg Karlsdóttir, móðir Karls Bjarna Guðmundssonar, sem er betur þekktur sem Kalli Bjarni, fyrsta Idol- stjarna landsins. Sveinbjörgu var, líkt og öðrum þeim sem standa nálægt Kalla Bjarna, verulega brugðið þegar hún frétti af handtöku hans vegna smygltilraunar á tveimur kílóum af kókaíni. Segist ætla að taka sig á Kalli Bjarni var að koma frá Frank- furt í Þýskalandi og fannst kókaínið í farangri hans. Hann var í kjölfarið úrskurðaður í þriggja vikna gæslu- varðhald og hefur Sveinbjörg, móðir Kalla, ekki fengið að hitta son sinn þar sem hann dvelur í einangrun. Aðal- heiður Hulda Jónsdóttir eða Alla, eins og barnsmóðir Kalla Bjarna er jafnan kölluð, mætti á Keflavíkurflugvöll til að taka á móti Kalla, sem þá var hvergi sjáanlegur. Sveinbjörg var í símasam- bandi við Öllu allan tímann. „Ég vissi ekkert hvar hann væri og var hrædd um að hann hefði verið barinn þarna úti eða eitthvað enn verra. Við reyndum að afla upplýsinga um ferðir hans og hvort hann hefði komið inn í landið en fengum ekkert að vita. Um hádegisbilið daginn eftir tilkynnti lögreglan mér að hann hefði verið handtekinn og um kvöldið voru fjölmiðlar komnir með þetta,“ segir Sveinbjörg, sem vonast til þess að þetta verði til þess að Kalli Bjarni hverfi til betra lífernis. „Ég vona að Kalli Bjarni muni snúa við blaðinu. Hann sendi mér bréf úr fangelsinu þar sem hann segist loks- ins skilja þá leið sem hann var að feta og segist ætla að taka sig á. Hann tal- aði mikið um forvarnir og ætlar sér að standa sig,“ segir Sveinbjörg. Bara burðardýr Sveinbjörg segist vera fullviss um það að sonur sinn hafi aðeins verið burðardýr. Hann hafi ekki verið að flytja þetta inn fyrir sjálfan sig. „Það segir sig sjálft. Hann var á frystitogara með fín laun en átti aldrei krónu. Hann gat ekki einu sinni keypt mjólk fyrir heimilið. Það er ekki möguleiki að hann hafi getað fjármagnað kaup á þessum fíkniefnum. Ég þurfti meira segja að láta hann hafa pening til að hann gæti verslað í fríhöfninni fyrir börnin sín. Kalli hafði slasast á sjónum, var búinn að vera í landi í rúman mánuð og þurfti á aðgerð að halda. Ég held að hann hafi verið byrjaður aftur í dópinu en veit það ekki fyrir víst. Mitt álit er að hann hafi skuldað peninga og hafi verið neyddur til að gera þetta. Ég hef samt enga sönnun,“ segir Sveinbjörg. SVEINBJÖRG KARLSDÓTTIR, móðir Idolstjörnunnar Kalla Bjarna, hefur fengið að kynnast lífinu á þann hátt sem ekki er hægt að óska neinni manneskju. Hún lenti í bílslysi þegar hún gekk með Kalla Bjarna og var ráðlagt að eiga hann ekki til að geta náð fullum bata. Hún er nú öryrki en segist ekki sjá eftir neinu. Dóttir hennar var komin í ræsið vegna fíkniefnaneyslu og óttaðist Sveinbjörg á hverjum degi í mörg ár að hún myndi fá símtal frá lögreglunni þar sem henni væri tjáð að dóttir hennar væri látin. Hún hefur nú náð sér á strik en þá dynur ógæfan yfir Kalla Bjarna, sem tekinn var með tvö kíló af kókaíni í Leifsstöð á fimmtudaginn fyrir rúmri viku, Sveinbjörg segist standa með syni sínum í gegnum þykkt og þunnt. Jafnvel þótt dópið hafi tekið allt frá Kalla Bjarna, fjölskylduna, tónlistarferilinn og frelsið. SVEINBJÖRG KARLSDÓTTIR, MÓÐIR KALLA BJARNA, SNÝR EKKI BAKI VIÐ BÖRNUM SÍNUM Í ERFIÐLEIKUM „HANN HEFUR TEKIÐ HÆFILEIKANA Í NEFIГ Á TOPPNUM Kalli Bjarni sést hér fagna sigrinum í Idol Stjörnuleit snemma árs 2004. „AUÐVITAÐ ER ÞETTA OFT ERFITT EN ÞETTA ERU BÖRNIN MÍN. SAMA HVAÐ Á GENGUR MUN ÉG ALDREI SNÚA VIÐ ÞEIM BAKI. ÉG KEM ALLTAF TIL MEÐ AÐ HJÁLPA ÞEIM.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.