Tíminn - 02.11.1980, Qupperneq 15
Sunnudagur 2. nóvember 1980
15
Lítil
pen
bók
eftir Auði Haralds
komin út
Læknamaflan, lftil pen bók eftir
Auöi Haratds, ér nýkomin út hjá
IÐUNNI. Eftir Auði kom i fyrra
út bókin Hvunndagshetjan, þrjár
öruggar aðferðir til að eignast
óskilgetin börn. Vakti sú bók
verulega athygli og þótti nýstár-
leg.
Læknamafianer fyrstu persónu
saga og lýsir þeirri reynslu sögu-
manns (sem er kona) að veikjast
og þurfa að gangast undir læknis-
aðgerð á spitala. Þarf hún að
heyja harða baráttu við lækna-
stéttina til að fá sjálfa sig og sjúk-
dóm sinn tekin gild i þvi sam-
félagi. Það tekst að visu að lokum
og lýsir sagan sjúkrahúsvistinni
og kynnum af hjúkrunarfólki og
öðrum sjúklingum. — Höfundur
lætur eftirfarandi athugasemd
fylgja: „Algjör tilviljun ræður þvi
ef persónur bókarinnar likjast lif-
andi eða látnu fólki, þvi ég hef svo
sannarlega lagt mig fram við að
hilma yfir uppruna þeirra”.
Læknamafian er i tuttugu köfl-
um, 178 blaðsiður. Steinholt hf.
prentaði. Ólöf Arnadóttir sá um
útlit kápu.
SEÐLABANKI
ÍSLANDS
* cm
JAR)
*
*
Verðtrygging spariskírteina ríkissjóðs byggist nú á raunhæfustu
vísitöluviðmiðun sem völ er á - lánskjaravísitölunni.
Lánskjaravísitalan miðast að 1/3 við byggingarvísitölu og 2/3
við framfærsluvísitölu, og eru hún reiknuð út og birt
mánaðarlega.
Þannig geta eigendur spariskrteina nú fylgst með verðgildi
þeirra og vexti frá einum mánuði til annars.
Lánskjaravísitalan verðtryggir spariskírteinin að fullu.
Vandfundin er öruggari fjárfesting.
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs eru til sölu nú.
Börn í
Reykjavík
Rannsóknir Sigurjóns
Björnssonar
Út er komin bókin Börn I
Reykjavík, rannsóknaniðurstöð-
ur, eftir Sigurjón Björnsson
prófessor. Iðunn gefur út. Er hér
um að ræða greinargerð um sál-
fræðilegar rannsóknir sem gerð-
ar hafa verið á börnum og ungl-
ingum i Reykjavik á vegum
bókarhöfundar og samverka-
manna hans. Gerir höfundur
grein fyrir viðfangsefninu i að-
fararorðum á þessa leið m.a.:
„Hófst rannsóknarstarf þetta
þannig að á árunum 1965 og 1966
voru gerðar allviðtækar athugan-
ir á stóru úrtaki barna og ungl-
inga i Reykjavik á aldrinum 5-15
ára. Markmiðið var m.a. að
ganga úr skugga um tiðni sál-
rænna vandamála og reyna að
varpa einhverju ljósi á tengsl
þeirra viö hugsanlega áhrifaþætti
uppeldislegs og félagslegs eðlis.
Rannsóknum á þessu safni heíur
svo verið haldið áfram til þessa
dags...” Rannsóknirnar hafa
einkum verið þriþættar: Dýptar-
kannanir á sérsviöum, þ.e. úr-
vinnsla afmarkaðra efnissviða
innan heildarrannsóknarinnar. I
öðru lagi eftirrannsóknir á sér-
sviðum þ.e. langtimarannsóknir
á afmörkuðum efnissviðum, og
loks eftirrannsóknir á heildar-
safni, en markmið þeirra er að
kanna geðheilsu barnanna eftir
að þau eru orðin fullorðin og bera
saman við niðurstöður upphafs-
rannsóknarinnar.
Siöasti meginkafli bókarinnar
nefnist Félagsleg lagskipting. Er
þar fjallað um athugun á stétt
foreldra og þvi hversu mikill
munur finnist á uppeldisaöstööu
og þroska barna eftir þvi hvar i
stétt foreldrar standa. —Börn i
Reykjavik er 168 blaðsiður að
stærð, Prentrún prentaði.
Steinhljóð
3. platan komin út
KL — Út er komin þriðja platan i
útgáfuröðinni Steinhljóð, islensk
tónskáld og tónlistarfólk. A
þessari plötu eru tónverk eftir
Askel Másson, flutt af Manuelu
Wiesler flautulaukara, Einari
Jóhannessyni klarinettuleikara,
Þóri Sigurbjörnssyni, sem leikur
á sög, Reyni Sigurðssyni slag-
verksleikara og höfundi sjálfum,
sem leikur á slagverk.
Askell Másson er 28 ára gamall
Reykvikingur. Hann hefur stund-
að tónlistarnám við Tónlistar-
skólann i Reykjavik og i London.
Verk eftir hann hafa verið flutt á
tónlistarhátlðinni Ung Nordisk
Musikfest 1974 og öll árin
1978—1980. Einnig voru flutt verk
eftir hann á Norrænum músik-
dögum 1978.
Upptakan er gerð i Hljóðrita i
Hafnarfirði, en útgefandi er
Steinhljóð, sem Hljóðriti og
Steinar hf. sjá um. Dreifingu ann-
ast Steinar hf.
Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti
Umsokmr nýrra nemenda um nám á vor-
önn 1981 skulu hafa borist fyrir 15. nóvem-
ber n.k. Fjölbrautaskólinn i Breiðholti
getur aðeins veitt injög takmörkuðum
fjölda aðgang að dagskólanum. Hafin
verður fullorðinsfræðsla (öldungadeild.)
á vorönn og þurfa umsóknir um hana að
hafa borist fyrir sama tima.
Valdagur nýrra nemenda i dagskóla og
fullorðinsfræðslu verður auglýstur siðar.
Eldri nemendur sem eru i starfsþjálfun i
atvinnulifinu, eða gerðu hlé á námi á
haustönn, skulu koma á valdag 6. nóvem-
ber kl. 14.00
Skólameistari