Fréttablaðið - 14.06.2007, Qupperneq 22
hagur heimilanna
Jón Magnússon, nýkjörinn þingmað-
ur frjálslyndra, segist ennþá þurfa að
spara, þrátt fyrir þingmannslaun.
Erlend tímarit allt of dýr á Íslandi
Söfn og sögusýningar eru
vinsælir viðkomustaðir.
Best er að kynna sér söfnin
á netinu eða símleiðis áður
en mætt er á staðinn, því
mörg þeirra bjóða upp á af-
slátt fyrir aldraða, börn eða
fjölmenna hópa.
Söfnum um upphafsár Íslands-
byggðar hefur fjölgað umtalsvert
undanfarin ár. Mörg þessara safna
beita nýstárlegum leiðum til að
kynna bernskuár þjóðarinnar
fyrir innlendum gestum sem og
erlendum.
„Hingað hafa komið um þrjátíu
þúsund gestir á þessu ári sem
hefur verið opið, bæði Íslendingar
og útlendingar,“ segir Sigurborg
Hilmarsdóttir, safnvörður Land-
námssýningarinnar 871 +/-2 í Aðal-
stræti. „Gestirnir eru yfirleitt
afskaplega ánægðir, við heyrum
ekkert nema hrós.“
„Vorið er búið að vera svakalega
gott hjá okkur,“ segir Kjartan
Ragnarsson, forstöðumaður Land-
námsseturs í Borgarnesi. „Það
koma margir hópar úr fyrirtækj-
um og skólum. Nú erum við með
matsölustaðinn á setrinu opinn til
hálf níu á kvöldin og það hefur
vakið lukku.“
Aðgangseyrir á íslensk söfn er
svipaður, sama hvar ber niður. „Við
erum með hófstillt verð og höfum
aldrei fengið kvörtun yfir því,“
segir Kjartan.
Sigurborg segir það helst vera
erlenda ferðamenn sem nefna
verðlagið.
„Norðurlandabúarnir kippa sér
ekkert mikið upp við verðið, en
þeir sem koma frá Suður- og
Austur-Evrópu, þeim finnst þetta
ægilega dýrt.“
Fjöldi áhugaverðra sögu-
sýninga í boði á sumrin