Fréttablaðið - 14.06.2007, Page 36
14. JÚNÍ 2007 FIMMTUDAGUR4 fréttablaðið garðurinn
Á baklóð Verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen er sannkall-
aður lystigarður. Þangað getur
starfsfólkið leitað í ró fjarri
skarkala umferðarinnar.
Á góðviðrisdögum kvartar flest
skrifstofufólk undan því að þurfa
að sitja inni við tölvuna. Það horf-
ir eymdarlega út um gluggann á
þá sem ganga léttklæddir framhjá
og njóta sólarinnar. Þegar kaffi-
pásurnar loks koma er lítið annað
hægt að gera en fara út á bílastæði
og þaðan er fólk fljótt að hörfa.
Málum er ekki svo háttað hjá
starfsmönnum Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen, VST, en
starfsfólkið hefur greiðan aðgang
að gróðurparadís í bakgarði fyrir-
tækisins. Þangað leitar það til að
endurnýja kraftinn og næra and-
ann, sérstaklega þegar vel viðrar.
Á góðviðrisdögum er jafnvel grill-
að í hádeginu og þá láta fáir sig
vanta í herlegheitin.
Saga garðsins á rætur sínar að
rekja aftur til byggingar húsnæðis
VST. „Þegar húsið var byggt árið
1967 voru miklar klappir á lóðinni
að húsabaki og Sigurður heitinn
Thoroddsen verkfræðingur, sem
var mikill náttúruunnandi, lagði
mikið upp úr því að þeim yrði hlíft
og að þær yrðu ekki fyrir hnjaski
af ágangi vinnuvéla sem notaðar
voru við bygginguna,“ segir Sig-
urður Þórðarson verkfræðingur
og líffræðingur en hann var einn
af þeim sem tók þátt í gróðursetn-
ingu og uppbyggingu garðsins.
Fyrsta verkið í garðinum var að
leggja túnþökur. Síðan var Reyn-
ir Vilhjálmsson landslagsarkitekt
fenginn til að hanna endanlegt
útlit lóðarinnar áður en hafist
var handa við sjálfa gróðursetn-
inguna. „Vorið 1981 var svo efnt
til gróðursetningardags þar sem
starfsfólk verkfræðistofunnar og
fjölskyldur þeirra komu saman og
gróðursettu tré og runna á lóðinni
í samræmi við skipulagsuppdrátt-
inn,“ segir Sigurður.
Það gekk ekki þrautalaust að
koma plöntunum niður því jarð-
vegsþykktin var ekki alltaf næg,
enda grunnt niður á klappirnar.
„Sums staðar þurftum við aðeins
að færa plöntur til og koma þeim
fyrir í sprungum eða þar sem
jarðvegsþykktin var meiri,“ segir
Sigurður. „En niður fóru plönturn-
ar í megindráttum í samræmi við
skipulagið.“
Nú er allur gróður í garðin-
um vel á veg kominn, tré orðin
myndarleg og ýmsar blómplönt-
ur blómstra við rætur þeirra.
„Mér finnst mikilvægt að fólk hafi
griðastað í vinnunni. Stað sem það
getur farið á til að endurnæra sig
svo það komi tvíeflt aftur í vinn-
una,“ segir Sigurður. „Mér finnst
eiginlega að hvert fyrirtæki ætti
að hafa slíkan stað en garðurinn
hér hefur margsannað gildi sitt
fyrir þá sem starfa og hafa starf-
að á stofunni.“
tryggvi@frettabladid.is
Paradís við vinnustað
Starfsmenn VST nota hvert tækifæri til að fara út í garðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Áður en hafist var handa við uppgræðsluna á baklóð Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen var þar ekkert nema berar klappir.
Sigurður Þórðarson, verkfræðingur og líffræðingur, vann um árabil hjá VST.
TOPLINE
gluggar og hurðir
DANLINE gluggar
Hafðu samband og við ráðleggjum þér
Gluggar Sólhýsi
Hurðir Svalalokanir
Einangrunargler - Öryggisgler - Speglar
Frábær lausn í bæði
gamalt og nýtt:
Einbýlið, fjölbýlið, sumarhúsið
eða hvar þar sem fegurð
og gæði njóta sín
Ægisbraut 30 300 Akranes Sími: 431 2028 Fax: 431 3828
Netfang: glerhollin@glerhollin.is Heimasíða: www.glerhollin.is