Fréttablaðið - 14.06.2007, Side 38

Fréttablaðið - 14.06.2007, Side 38
 14. JÚNÍ 2007 FIMMTUDAGUR6 fréttablaðið garðurinn Arkitektar hjá Arkiteó hafa sett gamla hugmynd í nýjan búning. „Við höfum sett fram tillögu að sumarbústað sem líkist burstabæ. Þótt formið sé gamaldags, er bú- staðurinn hugsaður sem nýtísku- legt hús,“ segir Einar Ólafsson, hjá arkitektastofunni Arkiteó. „Gaflarnir eru mikið opnir, í glerflötum og opið á milli hæða,“ heldur Einar áfram. „Í stærri bú- stöðum þar sem tvær burstir eru fyrir, er glerbygging á efri hæð- inni. Hún tengir burstirnar saman, þannig að hægt er að ganga á milli þeirra. Velja má um eina, tvær og þrjár burstir, allt eftir því hvern- ig húsið er hugsað. Maður getur til dæmis valið um einbýli, rað- eða parhús, þannig að möguleik- arnir eru fjölmargir þótt formið sé að vissu leyti gamaldags. Síðan má ekki gleyma því að svona húsnæði er algjörlega viðhaldsfrítt.“ Einar segir hönnun sumarbú- staðanna í takt við þá stefnu stof- unnar að teygja sig aðeins lengra en gengur og gerist. Auk þess upp- fylli þeir allar helstu kröfur nú- tímamannsins og falli vel inn í umhverfið, sem samrýmist þeirri hugmyndafræði Arkiteó að hanna húsnæði sem er sniðið eftir þörf- um viðskiptavina og umhverfis. „Arkiteó sérhæfir sig einnig í hönnun öllu hefðbundnari bústaða,“ bendir Einar þó jafnframt á. „Sem dæmi get ég nefnt stílhreina bú- staði með herbergjum sem snúa í útsýnisátt. Hægt er að ganga út úr þeim öllum á stóra verönd, sem er hugsuð sem tenging við umhverfi og náttúru. Svo eru stórir, lóðrétt- ir gluggar á bústöðunum í stað lá- réttra, alveg eins og á heilsárs- eða einbýlishúsum. Þannig getur ungl- ingurinn læðst inn og út úr húsi eins og honum sýnist,“ bætir hann við og hlær. Einar segir dæmin hér að ofan sýna svo ekki verði um villst, að fólk geri sífellt meiri kröfur varð- andi hönnun sumarbústaða. „Áður fyrr var meira farið eftir skúffu- teikningum við hönnun bústaða og þá var lítill sem enginn metnaður lagður í þá. Fólk var bara sátt við að eiga þak yfir höfuðið, í stað þess að huga betur að eigin þörfum og umhverfisins. Nú vill það stærri og vandaðri gerðir af hefðbundn- um T- og L-laga bústöðum. Í dag eru sumarbústaðir því engu síðri en vönduð einbýlishús.“ roald@fretta- Burstabæir aftur í notkun Auk hefðbundins rýmis eru í húsinu koníaksstofa, tómstundaherbergi, bíósalur, gufubað og innilaug. Hérna sést hvernig hús eftir Arkiteó er gert með það í huga að falla sem best að umhverfinu. Húsið myndar ákveðinn ramma utan um útisvæði sem tengist eldhúsi, borð- og setustofu. Gestahús/listagallerí lokar rammanum. Einar Ólafsson arkitekt segir Íslendinga gera meiri kröfur um gæði sumarbú- staða en áður fyrr. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Tillaga Einars og félaga að sumarbústað með burstabæjarsniði, er nokkuð nýstárleg. Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins Vörn gegn brunaslysum frá Danfoss Termix One tengigrind til hitunar á neysluvatni Stillanlegt hitastig neysluvatns Stórminnkar slysahættu af völdum heita neysluvatnsins Jafn þrýstingur á heitu og köldu neysluvatni, lengir líftíma blöndunartækja Léttari þrif, enginn kísill á flísum og hreinlætistækjum Vönduð vara, lítill viðhaldskostnaður Áralöng reynsla stjórnbúnaðar við íslenskar hitaveituaðstæður Auðveld í uppsetningu Snyrtileg hlíf fylgir • • • • • • • • www.stillumhitann.is Bæjarlind 6, Kóp. • s. 534 7470 • www.feim.is Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-16 MUSKOKA FURU STÓLAR Nú getum við boðið þessa frábæru hönnun úr FURU 12,500,-kr 39,000,-kr tvöfaldur stóll m/borði FEIM - Lenen Bjerre

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.