Fréttablaðið - 14.06.2007, Qupperneq 46
14. JÚNÍ 2007 FIMMTUDAGUR14 fréttablaðið garðurinn
Garðurinn við Urðargil
5 á Akureyri er fallegur
og snyrtilegur. Hjónin og
eigendurnir, Kristín Sig-
tryggsdóttir og Karl Friðrik
Karlsson, útbjuggu beðin
og smíðuðu allt í garðinum.
„Við höfðum áður búið í blokk
og höfðum engan garð svo þegar
við fluttum hingað misstum við
okkur alveg í garðyrkjunni,“
segir Kristín Sigtryggsdóttir en
hún og eiginmaður hennar, Karl
Friðrik Karlsson, hafa útbú-
ið fallegan garð í kringum íbúð
sína í raðhúsi í Urðargili á Ak-
ureyri. Hjónin fluttu með fjöl-
skyldu sína í Urðargilið árið 1999
en byrjuðu að vinna í garðinum
tveimur árum síðar. Í dag er um
ákaflega fallegan garð að ræða
og það skemmtilega er að Kristín
og Karl gerðu allt sjálf. „Við
byrjuðum bara án þess að vita í
rauninni hvað við vorum að gera.
Fyrsta árið sáðum við í garðinn
og árið eftir skárum við úr fyrir
stallinum og settum runna. Þar á
eftir skárum við beðin út,“ segir
Kristín og bætir við að garður-
inn hafi tekið mikið af þeirra
tíma. „Þetta er hins vegar svo
skemmtilegt. Við erum með mat-
jurtagarð og ræktum okkar eigin
kartöflur, tvær tegundir af gul-
rótum, kál, salat og jarðarber. Ef
vel sprettur get ég byrjað að taka
upp úr matjurtagarðinum um
mánaðamótin júlí-ágúst og fer
þá út í garð og klippi út í salat-
ið með matnum,“ segir hún bros-
andi. Hjónin fengu viðurkenn-
ingu frá Akureyrarbæ í fyrra
fyrir garðinn sem þau segja hafa
verið afar skemmtilegt.
indiana@frettabladid.is
Skemmtilegt að
vinna í garðinum
Kristín og Karl Friðrik njóta sólarinnar á pallinum allan daginn.Allur garðurinn er snyrtilegur og fallegur.
Karl Friðrik smíðaði fallegan kassa utan
um ruslatunnuna sem Kristín skreytti
með blómum.
Hjónin Kristín Sigtryggsdóttir og Karl
Friðrik Karlsson útbjuggu garðinn sjálf .
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
Kofinn er það nýjasta í garðinum en bóndinn smíðaði hann fyrir tveimur vikum undir verkfærin. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
Byko stendur fyrir skemmtilegum leik í sumar þar sem allir strákar
og stelpur eru hvött til að taka upp hamar og sög og sýna hvað í þeim
býr. Verkefnin eru í senn einföld og skemmtileg, að smíða annað hvort
kofa eða kassabíl, og ef framkvæmdagleðin er slík þá má auðvitað
smíða hvort tveggja. Allir krakkar, 15 ára og yngri, geta tekið þátt.
Þegar að smíðinni er lokið eru síðan teknar að minnsta kosti þrjár
myndir af meistaraverkinu og þær sendar til BYKO, í tölvupósti á
kofi@byko.is eða kassabíll@byko.is eða í pósti merktum Kofa- og
kassabílaleiknum.
Dómnefndin er ekki skipuð neinum aukvisum en í henni sitja Mar-
grét Pála Ólafsdóttir hjá Hjallastefnunni, Siggi Sigurjóns leikari,
Steve Christer og Margrét Harðardóttir hjá Studio Granda, Þormóð-
ur Dagsson hjá bílablaði Morgunblaðsins og Tinni Sveinsson, ritstjóri
Húsa og Híbýla.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum. Í fyrsta sæti er tívolíferð
fyrir fjölskyld-
una til Kaup-
mannahafnar,
innifalinn hót-
elgisting og
ferð í Tívolí
(tveir fullorðn-
ir og tvö börn). Í
öðru sæti í hvor-
um flokki fyrir
sig er vöruút-
tekt fyrir 20.000
krónur í BYKO
og í þriðja sæti
er 10.000 króna
úttekt.
Skilafrestur
mynda rennur
út 8. apríl.
- tg
Keppni um kofa
og kassabíla
Fyrstu verðlaun í
leiknum er ferð fyrir
fjölskylduna í Tívolí
í Kaupmannahöfn.
Engin mánaðargjöld - þú átt kerfið!