Fréttablaðið - 14.06.2007, Qupperneq 56
„Mér finnst gott að hugsa
stórt. Ef þú ætlar að hugsa
eitthvað á annað borð, þá
er alveg eins gott að hugsa
stórt.“
Argentínsk yfirvöld gefast upp
Í tilefni af 120 ára fæðingarafmæli
Guðjóns Samúelssonar munu Akur-
eyrarbær, Arkitektafélag Íslands og
Minjasafnið á Akureyri bjóða upp á
fyrirlestur og gönguferð með leiðsögn
í kvöld. Þar mun Pétur H. Ármanns-
son arkitekt fjalla um Guðjón og verk
hans og í framhaldi verður boðið upp
á gönguferð með leiðsögn um þann
hluta bæjarins sem ber sterkust ein-
kenni Guðjóns.
Guðjón var einn fyrsti íslenski arki-
tektinn og er höfundur opinberra bygg-
inga sem setja sterkt svipmót á Akur-
eyri. Akureyrarkirkja er þar efst á blaði
og er fyrir löngu orðin ein af táknmynd-
um bæjarins. Hann sat í fyrstu skipu-
lagsnefnd ríkisins sem sett var á fót
árið 1921 og var einn af aðalhöfundum
fyrsta Aðalskipulags Akureyrarkaup-
staðar sem samþykkt var árið 1927.
Í þessu fyrsta skipulagi var lagður
grunnur af bæjarmynd sem í má enn
sjá leifar af í miðbæ og hluta Oddeyr-
ar. Hugmyndir Guðjóns um skipulag
bæja eru mjög athyglisverðar í ljósi
sögunnar. Í þeim er í fyrsta sinn gert
ráð fyrir aðgreiningu atvinnusvæða
og íbúðarsvæða en slíkar hugmyndir
áttu mjög upp á pallborðið í skipulagi
alla 20. öldina.
Einnig er athyglisvert hvernig gert
var ráð fyrir þremur byggðarkjörn-
um á Akureyri. Vegalengdir milli þá-
verandi hverfa þóttu of langar til þess
að hægt væri að samræma þau á auð-
veldan hátt í eitt skipulag. Því átti
hver byggðarkjarni að vera sjálfum
sér nægur, ef svo má að orði komast.
Einnig má til gamans geta að hvergi er
gert ráð fyrir bílastæðum í uppruna-
lega skipulaginu en bílaeign var ekki
orðin almenn er skipulagið kom út.
Fyrirlesturinn verður á 1. hæð í
Rósinborg (Barnaskóla Akureyrar) og
hefst kl. 20. Húsið verður opið frá kl.
19.30 til skoðunar en það var nýlega
tekið í notkun eftir endurbætur sem
miðuðu að því að halda í sem mest að
upphaflegu útliti hússins en höfundur
þess er einmitt Guðjón sjálfur.
AFMÆLI
Eiríkur Júlíusson
sem lést á Hjúkrunarheimilinu á Höfn 6. júní sl. verður
jarðsunginn frá Hafnarkirkju föstudaginn 15. júní kl. 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðný Sigrún Eiríksdóttir
Magnús Ástvald Eiríksson
2x60 ára
afmæli
verða bæði 60 ára á árinu, Þráinn hinn 16. júní og Guðbjörg 27.
ágúst og af því tilefni bjóða þau og fjölskylda þeirra,
ætting jum, vinum og kunning jum að gleðjast með þeim
og fagna þessum tímamótum, laugardaginn 16. júní í
félagsheimilinu Þingborg í Flóahreppi frá kl. 19-23.
Hjónin
Guðbjörg Þ. Gestsdóttir
og Þráinn Elíasson,
Stekkholti 13, Selfossi,
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
Guðný Egilsdóttir
Sólvangi, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 15. júní kl. 13.00.
Jón Birgir Þórólfsson Brynja Einarsdóttir
Einar Jónsson Eygló Karlsdóttir
Guðný Agla Jónsdóttir Ásmundur Ívarsson
Jóhann Gunnar Jónsson Silja Þórðardóttir
og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, sonur, tengdasonur og
bróðir,
Sveinn Steindór Gíslason
húsasmíðameistari, Arnarheiði 20,
810 Hveragerði,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 7. júní sl. Útför hans fer
fram frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 16. júní kl. 14.
Magnea Ásdís Árnadóttir
Árni Steindór Sveinsson Jóhanna Sigurey Snorradóttir
Snorri Þór og Eva Björg
Sigurbjörg Sara Sveinsdóttir Þorsteinn Karlsson
Ásdís Erla, Katrín Ósk og Bjarkar Sveinn
Eva Rós Sveinsdóttir
Sigurbjörg Steindórsdóttir
Árni St. Hermannsson
Sigurbjörg Gísladóttir og Svanhvít Gísladóttir
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
MOSAIK